Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Page 49

Eimreiðin - 01.05.1908, Page 49
t Merkur Vestur-Islendingur. Þegar tímar líða, og sú stund rennur upp, að saga Vestur-ls- lendinga verður rituð rétt og hlutdrægnislaust, þá hygg ég að margra merkra manna verði getið, sem annaðhvort alls ekki er getið í þeim sögum, sem nú eru til ritaðar af Vestur-íslend- ingum, eða þá aðeins lítillega minst á, og það þá ekki með öllu laust við hlutdrægni, sem því miður oft vill eiga sér stað, ef maðurinn, sem ritað er um, og söguritarinn eru ekki andlegir fóstbræður í skoðunum á öllum mannfélagsmálum. Einn í þeirra tölu ætla ég að sé maður sá, er »Eimreiðin« flytur nú mynd af, BALDWIN LÁRUS BALDWINS- SON, ritstjóri »Heimskringlu«. B. L. Baldwinsson er fæddur á Akureyri við Eyjafjörð 26. okt. 1856. Voru foreldrar hans þau Baldvin Jónsson, ættaður úrSkaga- fjarðarsýslu, og Helga Egilsdóttir, yfirsetukona frá Bakkaseli í Öxna- dal í Eyjafjarðarsýslu. Til 12 ára aldurs ólst hann upp með móður sinni og stjúpa Kristjáni Tómas- syni. Voru þau bláfátæk, höfðu aðeins »til hnífs og skeiðar« sem kallað er, eða vart það, og ólst Baldwinsson því upp í fátækt mikilli og öllum þeim erfiðleikum, sem henni eru samfara. í tvö ár, 11. og 12. aldursár sitt, dvaldi hann í Reykjavík með móður sinni og stjúpa, sem þangað fluttu. Naut hann þar barnaskólamentunar, sem hann notaði sér vel, því snemma bar á því, að hann væri bæði iðinn og námfús. I’egar hann var 1 2 ára, flutti hann norður á Akureyri aftur, til Steins Kristjánssonar járnsmiðs, föður Friðbjarnar bóksala, sem nú er á Akureyri, og konu hans Guðnýjar Kráksdóttur, sem var móður- amma hans. Hjá þeim dvaldi hann til 17 ára aldurs Á þeim árum naut hann sama sem engrar skólamentunar, en þrátt fyrir það var kapp hans og áhugi svo mikill fyrir því að læra, og búa sig undir lífið, bæði í bóklegu og verklegu tilliti, að sautján ára gamall var hann búinn að nema öll almenn fræði, sem ungir menn áttu kost á að nema á þeim tímum á íslandi. Auk þess hafði hann lært dönsku nokkurn veginn vel, mest af sjálfum sér. í henni hafði hann aðeins Baldwin Lárus Baldwinsson. 9

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.