Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 57
137
það skoðun hans, áð sú verði aðferðin við húsagerð um allan
heim í framtíðinni.
Petta, sem hér er talið, er aðeins lítill hluti af öllum þeim
aragrúa af nýjum uppgötvunum, sem gerðar voru árið sem leið.
En þær eru, þó ekki séu fleiri taldar, svo merkar, að þær nægja
til að sýna umbrot mannsandans og með hvílíkum risafetum menn
eru farnir að hlaupa áfram á framfaraskeiðinu. Svo lítur nú út
sem framfarir liðinna alda megi nú skoðast sem barnavípur einar;
fyrst nú hafi mannvitið komist á þroskaaldurinn, en þó sjálfsagt
langt í land, að hægt sé að segja, að það hafi náð fullum þroska.
Hve miklar framfarir og uppgötvanir árið 1908 felur í skautisínu,
er ósýnt enn; en vísast er, að það verði enginn eftirbátur næsta
árs á undan, heldur jafnvel skari eins mikið fram úr því, eins og
það skaraði fram úr fyrri árum.
V G.
Vestræn áhrif á Norðurlönd.
Alexander Bugge: Vesterlandenes Indfly-
delse paa Nordboernes og sœrlig Nord?Jicen-
denes ydre Kultur, Levesœt og Sanifunds-
forhold i Vikingetiden. Kristiania 1905.
Spurningin um vestræn áhrif á Norðurlönd á víkingaöldinni
er nú búin aö vera alllengi á döfinni, frá því hún fyrst kom fram,
og má þó enn í mörgum greinum kallast óráðin gáta. Pví enn
eru skoðanir manna um þetta efni mjög skiftar, svo að einn neitar
harðlega, því er annar þykist sanna. Pó eru menn nú altaf að
færast nær og nær markinu og hugmyndir manna óðum að skýr-
ast. Pegar fyrst var farið að ræða um slík áhrif á bókmentirnar
norrænu og goðafræðina, virtust menn nærri því skoða það sem
goðgá, að halda því fram, að ekki væri alt í þeim af norrænum
rótum runnið, heldur margar hugmyndir fengnar að láni annar-
staðar að, er ýmist hefðu orðið samsteyptar þeim hugmyndum,
sem fyrir vóru frá upphafi, eða breytt þeim og umskapað þær að
meira eða minna leyti. Pað er eins og mönnum hafi fundist, að
með þessu væri verið að skerða heiður og sæmd Norðurlandabúa,