Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 4

Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 4
8o á svipa&an hátt eins og hinar stærri jurtir og dýr. Með marg- breyttum rannsóknum hefir fundist og sannast, að loftið úir og grúir af örsmáum lífögnum, sem alstaðar geta komist að og tímg- ast og aukist með ótrúlegum hraða, þar sem lífsskilyrðin eru hentug. Þetta örsmáa líf hefir hin mestu áhrif á alt hið æðra og margbrotna líf hinna stærri dýra og jurta; þaðan stafa sóttkveikjur allar, sem læknisfræði nútímans altaf er að glíma við, öll rotnun og sundurleysing hinna dauðu líkama o. s. frv. Rannsóknir á þessum smáögnum voru af almenningi langt fram yfir miðja 19. öld álitnar hégómi einn, fordild og sérvizka einstakra vísinda- grúskara, en nú hafa þessar rannsóknir svo mikla þýðingu fyrir mannkynið, að undrum sætir; mannlífið og menningin hefir í mörg- um greinum haft svo mikil not af uppgötvunum þessum, að fram- farirnar hafa aukist stórkostlega; en hér á ekki við að fara lengra út í þá sálma. Pó menn nú þekki aragrúa af örsmáum lífögnum af ýmsum flokkum og með ýmsu eðli, og geti rannsakað margar þeirra mjög nákvæmlega, þá hefir það sýnt sig, að engin þeirra kviknar af sjálfu sér af dauðum efnum, allar eru á einhvern hátt getnar af lífögnum af sama tægi, alveg eins og hin æðri dýr og jurtir. Sjálfskviknun eða sjálfsmyndun hins óæðra lífs þekkist ekki lengur í heimi vísindanna. En einhvern tíma hlýtur lífið þó að hafa byrjað á lægsta stigi á jörð vorri, og þá segja margir, að lífsfræ hljóti að hafa kviknað af ólífrænum efnum snemma á myndunar- tíma jarðarinnar, þegar eðlis-kringumstæður voru alt aðrar en nú. Sumir hafa skapað sér ýmsar fáránlegar sköpunar-tilgátur, sem þeir varla trúa sjálfir, hvað þá heldur aðrir. Hið sanna er, að vísindin hafa ekki hina minstu hugmynd um hinn fyrsta uppruna lífsins á jörðunni. Niðurstaða vísindanna í þessum greinum lýsir sér bezt í orðum Kelvíns lávarðar, hins mikla eðlisfræðings; hann segir: »Líflaust efni getur aldrei orðið að lifandi efni, nema af verkunum lifandi tilveru. Þetta virðist mér vera eins óhaggandi náttúrulögmál eins og þyngdarlögmálið«. Efnafræðingum hefir á seinni tímum tekist að mynda ýmsar lífrænar samsetningar, efnablandanir, sem í náttúrunni koma ein- göngu fyrir í líkömum dýra og jurta; en þar vantar það, sem mest á ríður, lífið sjálft; lifandi og dautt frymi er svo ólíkt hvað öðru, að þar er enginn samjöfnuður mögulegur. Aðalefni hinnar lifandi náttúru er eggjahvítan, en ekki hefir efnafræðingunum þó
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.