Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Page 14

Eimreiðin - 01.05.1910, Page 14
90 að verða undirstaða hentugra stórbreytinga, alt í einu fram, án þess hann gæti gert grein fyrir, hvers vegna þær kæmu eða hvaðan, hvort þær kæmu af tilviljun eða tilgangi, og var þannig þegar í byrjun fótunum kipt undan mekaniskum grundvelli breyt- ingakenningarinnar. Ef breytingin kemur upprunalega fram af tilviljun eða hendingu, beint út í bláinn, getur hún í fyrstu ekki haft neina þýðingu fyrir tegundina, nema hún standi í sambandi við þörf eða nauðsyn. Nú á breytingin að aukast, af því hún er hentug og þroskast með þörfinni; en þetta hlýtur að leiða til hugs- unar um tilgang eða stefnu, sem ekki er hægt að samrýma við hin blindu og tilgangslausu lög aflfræðinnar. Yfirleitt getur Darwín ekki gert grein fyrir orsökum breytinganna eða skýrt frá, hvers vegna þær séu upprunalega hentugar; en þetta skilja aðrir ekki heldur. Darwín hugsar sér, að smábreytingar einstaklinga hlaðist upp og geri þá loks að tegundum. Petta hefir reynst vanhugsað, því rannsóknir hafa sýnt, eins og fyr var getið, að breytileikinn er mjög svo takmarkaður, og einkenni, sem koma fram afhendingu, hverfa jafnaðarlega í næsta ættlið, af því aðrar smábreytingar kæfa þau. Til þess að eiginleikar haldist, þarf stöðuga leiðbein- ingu mannlegrar skynsemi. Menn geta með kynbótum breytt dýrum og jurtum á ýmsan hátt með úrvali þess, er maður vill láta þroskast; en sé nú slíkum kynbótafénaði aftur slept út í náttúruna, hefir reynslan sýnt, að umbreytingar þær, sem komið hafa, hverfa aftur fyr eða síðar. Ef breytingar einstaklinga væru svo margbrotnar og almenn- ar, eins og Darwín hugði, þá hlyti náttúrulífið alt að vera enda- laust sambland af takmarkalausum milliliðum; en svo er ekki; flestar tegundir og smátegundir eru allvel takmarkaðar, þó af nokkrum sé mörg afbrigði, en sum reynast fastari fyrir í eðli sínu, en menn fyr ætluðu. Darwín hefir játað, að búast hefði mátt við þessum milliliðafjölda, en hefir borið það fyrir, að skyldar teg- undir útrými milliliðum; ekki vilja menn nú taka þá undanfærslu gilda. Meðal fornra dýra bjuggust menn við að finna marga milli- liði í jarðlögunum, en mikill misbrestur hefir orðið á því. Enginn hefir enn þá séð neina tegund breytast í aðra með smábreyting- um. Á sögutíma hefir ekki orðið vart við hina minstu breytingu á tegundum; smurðir, helgir íbisfuglar, sem fundist hafa á Egypta- landi, 4 þúsund ára gamlir, eru ekki minstu ögn frábrugðnir sömu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.