Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 17
93
nú ekki lengur alment kannast við, að áhrif hennar á myndbreyt-
ingar tegunda séu eins mikil, eins og Darwín hugði; og fáir munu
nú vilja halda þeirri kenningu fram, að tilverustríðið sé aðalorsök
breytinga. Eins og fyr var getið, ætlaði Darwín, að eiginleikar
kæmu fram svo sem af hendingu, og náttúruvalið festi þá og full-
komnaði með aðstoð lífsbaráttunnar. Náttúruvalið var nokkurs
konar vél til að skapa nýjar tegundir; smábreytingarnar söfnuðust
saman í vissa stefnu, af því þær voru hentugar fyrir tegundina og
vopn í lífsbaráttunni. Hér byggir Darwín á tvennu, sem hann gat
eigi sannað: i. að smábreytingar séu ættgengar og hlaðist saman í
veruleg afbrigði. 2. að smábreytingar hafi þýðingu fyrir líf og dauða
einstaldinga. Nú mun vera óhætt að fullyrða, að sannað sé, að
þessar grundvallarhugmyndir séu rangar. Eins og fyr var getið,
er breytileiki tegunda mjög svo takmarkaður, og smábreytingar
eru oftast gagnslausar í lífsbaráttunni; til þess að tegundirnar
hefðu veruleg not af breytingunum, yrðu þær að vera mjög stór-
feldar stökkbreytingar. Óvinirnir bíða ekki eftir því, að bráð þeirra
sé að breytast og að búast til bardaga í mörg hundruð ár;
hungrið rekur á eftir, og því verður að fullnægja. Menn hafa líka
farið að athuga og rannsaka, hvort eiginleikar þeir, sem einkenna
tegundir þær, sem nú lifa, væru þýðingarmiklir í samkepninni og
lífsbaráttunni; en það hefir sýnt sig, að það er mjög sjaldan hægt
að sýna, að tegunda-einkennin hafi veruleg áhrif í þessu efni.
Við grundvallaratriðin í úrvalskenningunni hafa heimspekingar líka
haft margt að athuga; sérstaklega hefir Eduard v. Hartmann
verið harðleikinn og heimtufrekur um röksemdir.
Darwín er yfirleitt mjög skarpvitur í að sýna, hvernig teg-
undir hverfa við náttúruvalið, en gleymir að færa sönnur á, hvernig
þeir eiginleikar hafa þroskast, sem hjálpa einstaklingnum til að
haldast við og fullkomnast. »Darwín sýnir oss vel«, segir J. G.
Vogt, »hvernig Rússum var útrýmt af vígvellinum, en vér fáum
engar upplýsingar um það, hvernig Japanar hafa fengið yfirburði
sína. Til þess að fá vitneskju um það, þarf sérstaka rannsókn um
sögu Japana, menning þeirra og ætterniseinkenni, sem ekkert eiga
skylt við sjálfan bardagann; en slíkar rannsóknir eru mjög flóknar
og örðugar«. Pessi líking á vel við lífsbaráttu tegundanna; það er
miklu örðugra að sýna, hvernig yfirburðirnir hafa skapast, heldur
en að lýsa tortíming veikra tegunda. Kenningin um náttúruvalið
mætir mörgum örðugleikum; vér veljum nokkur dæmi til skýringar
7