Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Side 18

Eimreiðin - 01.05.1910, Side 18
94 af handahófi; ótal önnur mætti nefna ef þyrfti. Ef það var hent- Ugra fyrir dýr að vera hvítt eins og snjór, af því óvinir þess sáu það síður, og gátu því ekki drepið það, þá var þessi eiginleiki samkvæmt Darwínskenningu til orðinn á þann hátt, að þeir ein- staklingar, sem ljósastir voru, komust bezt undan til að auka kyn sitt, og svo gekk þessi eiginleiki að erfðum; nú ætlar Darwín, að slíkar breytingar hafi orðið hægt og hægt á löngum tíma; en til þess gagn væri að þessum nýja lit, varð skepnan að breytast snögg- lega, því ekkert gagn var í því fyrir forfeðurna að smábreytast eða verða flekkóttir; það er engin ástæða til að ætla, að rándýrin hefðu hlíft slíkum skepnum, meðan þær voru að fullkomna lit sinn á þennan hátt. Pá er það ekki heldur altaf víst, að liturinn hlífi gegn öllum óvinum; hvíti liturinn hlífir á vetrum ef til vill rjúpunum nokkuð gegn árásum fálkans, sem notar sjónina til að skygnast eftir bráð, en ekki fyrir tóunni, sem fer eftir lyktinni. Annars hefir það verið sýnt með tilraunum, að dýr breyta oft ótrúlega fljótt lit, þegar þau eru flutt í annað umhverfi. Náttúru- fræðingar þykjast líka hafa tekið eftir því, að þessi breyting verður ekki, ef dýrið er blint. Ef þetta er rétt athugað, er það merkilegt, því þá virðist litbreytingin standa í einhverju satnbaniii við vilja og vitundarlíf dýrsins. Staðhæfing Darwíns, að hinir sterkustu, beztu og hentugustu einstaklingar í náttúrunni mundu veljast af sjálfu sér til undaneldis, og þannig smátt og smátt fullkomnast, getur ef til vill stundum háft eitthvað til síns máls; en við nánari íhugun sést, að kenning þessi mjög oft verður að hreinni fjarstæðu. Pegar hvalirnir soga ofan í sig þúsundir af smádýrum, þá velja þeir ekki þau dýr úr til lífs, sem hentugust eru og fullkomnust til tímgunar; þeir svolgra í sig alt, sem að kjafti kemur. Síldum úr vörpunni er ausið upp í tunnur, og þeir einstaklingar, sem einhverja yfirburði hafa, komast ekki fremur af en örkvisarnir; þvert á móti, bæði menn og golþorskar munu helzt velja sér það til átu, sem ásjá- legast er. Pegar engisprettur eða lemmingsmýs tortímast í hóp- um, svo þúsundum og miljónum skiftir, þá eru það ekki lökustu dýrin, sem farast, heldur eðlilega alt upp og niður. Farsóttir drepa dýr, svo þúsundum skiftir; ekki sýkjast dýrin síður fyrir það, þó þau hafi einhvern dálítinn hentugan breytiþróunareigin- leika, skarpari sjón, betri heyrn eða eitthvað því um líkt. Svona mætti óteljandi dæmi tilfæra. Pað getur verið margt annað en

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.