Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Blaðsíða 21

Eimreiðin - 01.05.1910, Blaðsíða 21
97 dýr eru stundum fallega lit, og það jafnvel eins lágt settar verur eins og gerlar og bakteríur. Mismunandi breytingar, sem verða samtímis hjá karl- og kvendýri, og þó í samræmi; breyting á óteljandi frumlum (sellum) í líffærunum í vissar stefnur og að vissu takmarki virðast lítt skiljanlegar eftir úrvalskenningunni. Menn komast alstaðar í ógöngur, og því eru flestir náttúrufræðingar al- veg hættir að trúa á blint og mekaniskt náttúruval; því var aðeins trúað, meðan menn enn ekki voru farnir að hugsa málin nógu vel og gagnrýna hin mörgu undrunarverðu aðlögunar-fyrirbrigði, sem náttúran leiðir í ljós. Víð aðalkenninguna skeyttifDarwín ýmsar aukatilgátur, sem áttu að skýra ýmislegt, er ekki var hægt að gera grein fyrir með beinu náttúruvali. Ein af hinum hélztu aukatillögum var kynvalið eða makavalið; það átti helzt að skýra hinn mikla mismun, sem mjög oft er á útliti karldýra og kvendýra. Ekki hefir þessi kenn- ing orðið fyrir minni árásum en aðrar. Fyrst bera menn Darwín á brýn, að hann þar alt í einu flytji sálarlífs-fyrirbrigði inn í mek- aniska heimsskoðun, og geri ráð fyrir listviti hjá fuglum og lægri dýrum; það er t. d. undarlegt, ef páfuglahænur velja maka sinn eftir því, hvernig fjaðrateiknun á stéli karlfugla smátt og smátt gegnum marga ættliði fer fram og lagast að litum og gerð. Dar- wín gleymir að gera grein fyrir því, hvernig mismunur kynja sé kominn í heiminn og hvers vegna hann hafi reynst hentugur; því hin lægri dýr og fjöldi jurta tímgast eingöngu með kynlausri æxlun. Um þetta hafa komið fram margar tilgátur, sumar studdar með tilraunum og rannsóknum, sumar eigi. Mönnum hefir tekist að láta ófrjóvguð egg sumra kynjaðra dýra (t. d. fiðrilda og ígulkerja) þroskast, með því að láta þau í sérstaka vökva, og á annan hátt; en það hefir sýnt sig, að þau dýr, sem úr þeim eggjum hafa komið, hafa verið miklu veikbygðari, svo eitthvað hefir þar vantað. Ef kynseðli er hentugt fyrir dýrið, verður að minnast þess, að einstaklingurinn hefir ekkert gagn af þeirri breytingu, þó afkvæmið kynni að hafa það, svo þetta ríður í bága við meginreglu náttúru- valsins. Yfirleitt hafa menn ekki enn fundið með neinni vissu, að hverju leyti kynseðlið er til fullkomnunar og framfara. Hjá fugl- um getur verið, að makavalið hafi dálitla þýðingu, en trauðlega hjá skriðdýrum og fiskum, þar sem kynin þó stundum eru allólík. Hjá sumum kóngulóm er karldýrið miklu minna en kvendýrið og ósjálegra; kvendýrið drepur og etur maka sinn, þegar það getur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.