Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 32

Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 32
io8 Hið dapra hauður kefur kolsvört gríma, kafþykt er loftið, engin stjörnu-skíma. Var nú ei skrítið þarna um tíma þenna, að þú, mín kæra, í hug mér skyldir renna ? fað gerðir þú, og þ á er breytt í skyndi, þá glaðnar til og nótt er full af yndi, iðgrænir runnar alla götu viður, og úr þeim hljómar næturgala kliður; ilmblóma mergðin angar mér við fætur, og yfir höfði ljómar skrauthvolf nætur. Við gröf Napóleons. i. Þó að það væri Loðvík XIV., sem stofnaði til »Hotel des Invalides«, þá er það þó miklu fremur nafn Nápóleons, sem yfir- skyggir, — nei, lýsir yfir, ætlaði ég að segja, höllinni, þar sem ætlaður er bústaður frönskum uppgjafahermönnum, ef þess þykja verðir. I kirkjunni er gröf Napóleons mikla, eða réttara sagt, hann býr þar dauður; þessi glæsilega kirkja er umgjörð utan um kistu keisarans. í víðri steinþró stendur stór kista úr fægðum, rauðum graníti, og eru þar geymdar leifar þessa furðulegasta afreksmanns einhvers, sem verið hefir, þessa manns, sem var svo djöfullega duglegur, að 4 miljónir manna biðu bana af hans völdum. Pað er mannkvæmt þarna í kirkjunni, og svona kvað það vera dag eftir dag og ár eftir ár; og þögull mannfjöldinn horfir hugs- andi á þessa kistu, þar sem nú liggur svo kyr sá, sem mesta ókyrð hefir vakið í heiminum, allra dauðlegra manna. Ljósið skín gult og blátt inn um glugga hátt uppi og á Krist á krossinum við gröf miljónamorðingjans, og hafa víst ekki til verið ólíkari menn. Yfir gröfinni standa þessi orð Napóleons: »Je desire que mes cendres reþosent sur les bords de la Seine au milieu de

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.