Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 42

Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 42
118 ókendum einstigum. Vér fáum aldrei séð fyrir veðrabrigðin í landi eða lofti ókominnar tíðar. Og hvernig sem Uppkastið hefði verið orðað, mundu greinar þess þó ekki geta náð út yfir alla sambúð þjóðanna í reyndinni, af því að lífið er svo fjölbreytilegt og marg- þætt, þegar það kemur á daginn. Tökum t. d. lögin, sem löggjafar þjóðanna semja með alls- konar nákvæmni. Flestöll lög eru þó svo óákveðin, að lífið fer í kringum þau, bæði viljandi og óviljandi, eða sjálfkrafa. Lögunum þarf að breyta í sífellu og vitrir menn sitja við að skýra þau og dæma eftir þeim og sífeldlega dæma þeir dóma sína hver ofan í annan, af því að þau eru aldrei nógu ljós eða nákvæm. Og hvernig mundi þá vera hægt, að semja sambandslög tveggja þjóða svo skýr og ljós, að hvergi orkaði tvímælis orða- lagið meðal misjafnra mannaf En svo kom það á daginn, að þótt betri boð væru ekki auðfengin hjá Dönum, í raun réttri, þá fengust þó leiðréttingar eða endurbætur á þeim orðum Uppkastsins, sem hálust vóru og tvíræðust — eða loforð um endurbætur á þeim. Tetta gerðist á síðasta þingi í herbúðum minnihlutans. Andblástur óvina sam- bandslagauppkastsins knúði fram þessar umbætur og hefðu þeir átt að taka þeim tveim höndum og þakka sjálfum sér umbæt- urnar, þótt þær að vísu breyttu eigi grundvelli samningsins. fegar hér er komið sögunni, er nýi ráðgjafinn búinn að finna Dani og kanna hug þeirra í málinu. Pá var hann búinn að fá fulla vitneskju um það, að hreint konungssamband var ekki fáan- legt. Pá var það orðið lýðum ljóst, að auðveldara er að heimta að öðrum óskir sínar, en að framkvæma sjálfur, og er sú reynsla reyndar eldgömul í veröldinni. GJÖRBREYTINGAMENN TIL VALDANNA. Pað varð á ofanverðu s. 1. sumri, að gjörbreytingamenn komust í stjórnarönd- vegi Dana, og hafði víst fáa eða alls enga menn dreymt fyrir þeim Fróðárundrum. Sá heitir nú Zahle, sem fyrir þeim er, og hafa þeir að baki sér jafnaðarmenn og ýmsar hersveitir aðrar, sem óþarft er að telja, enda er það óvíst enn þá, hversu örugga fylgd þeir eiga í herbúðum þingflokkanna. En hitt er víst: að frjálslyndari stjórnmálamenn geta ekki komið til valda í Danmörku en þessir menn eru með jafnaðarmönnum, því að betri drengir eru ekki til í »þvísa landi«.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.