Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 45

Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 45
121 Sá sem vildi ekki forðum daga steypa sér fram af musteris- bustinni, — hann var ekki sjálfs sín herra í raun og veru, eða a. m. k. ekki verkamaður sjálfs sín. Hann var þjóðarmaður, mann- kynsmaður, sendiboði allsherjaranda. Hann vildi þá ekki voga hamingju náunga sinna. Þess vegna stökk hann ekki fram af musterisbustinni. Ef hann hefði fleygt sér fram af henni, þegar á hann var skorað að gera það, mundi hann eigi hafa getað komið til leiðar þeim dásemdarathöfnum, sem hann vildi og gerði. En hann vogaði sjálfum sér síðar, þegar þess þurfti, til að standa við orð og athafnir og staðfesta það alt saman, sem gert var. Af líkum ástæðum — þó ólíku sé saman að jafna — vogum vér sjálfum okkur, sem göngum undir óhreinu vopnin í landinu, til þess að fylgja fram sannfæringu vorri og styðja málefni þjóðar- innar, sem vér hyggjum vera henni til þrifnaðar. Én vér viljum ekki kasta þjóðinni okkar fram af bustinni, þótt vér vogum vel- ferð sjálfra okkar á fremsta hlunn — og lengra en það. ÖLLU SNÚIÐ ÖFUGT PÓ. Svo kvað skáldið að orði fyrir löngu síðan. Og enn þá brennur það við í landi voru, að málunum er snúið öfugt við það, sem ætti að vera. Eg á nú einkum við þá meðferð, sem sjálfstæðisbarátta vor hefir orðið að sæta. Eg kalla það alt einu nafni sjálfstæðisbaráttu, sem miöað hefir í þá áttina, að auka réttindi vor og hagnað gagn- vart Dönum. — Valtýskan, svo kallaða, var ein tegund sjálfstæðis- baráttunnar. Hún vildi sérstaldega fá »ráðgjafann á þing« og með ábyrgð fyrir því. Það eitt treystist hún til að fá framkvæmt. Og það var, eða hefði orðið, til mikilla bóta, þótt ekki hefði annað fengist. En svo fékst það, sem enn betra var, og er ekki að lasta það, heldur þvert á móti. En þess vegna minnist ég nú á þetta, að ég man það vel, og eins og í gærdag hefði gerst, þegar tveir gáfumenn vorir og ritsnillingar — þáverandi ritstjórar ísafoldar — réru að því öllum árum, að koma fram »þeim hagfeldu umbótum og okkur hentugu á stjórnarfarinu*. Og þeir gyltu með mikilli handlægni þá stjórnmálaaðferð: að taka því, sem hentugt væri og fáanlegt um sinn. I’etta er kölluð hentistefna og eru víst flestir stjórnmála- menn við hana riðnir einhverntíma á æfi sinni, ef þeir eru annars nokkrir stjórnmálamen ,

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.