Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Page 50

Eimreiðin - 01.05.1910, Page 50
I2Ó lögmáls. En það er annað mál; mætti vel yrkja um það kvein- stafakvæði. En það mundi þó ekki hafa pólitiska þýðingu. Og þó að vér gerðum landið að lýðveldi, mundum vér verða samt eins og síli fyrir gapandi gini hvalsins. NIÐURSTAÐA NORÐMANNA. Óvinir sambandsmálsins veittu miklum vötnum frá Noregi á mylnuna sína í fyrra sumar, meðan stóð á kosninga-leysingunni, og fengu þaðan vind í segl sín. — Fáeinir Norðmenn létu sér þau orð um munn fara, að vér yrðum ekki fullvalda samkvæmt Uppkastinu. Og alþýða manna trúði því. Sá heitir N. Gelsvík, sem skýrast kvað á um þetta og prófessor að nafnbót, ef ég man rétt. Ummæli hans vóru prentuð á Akureyri og sendur hraðboði með þau 8.-9. sept. 1908, af Húsavík og austur á Langanes. Haldið er, að margir menn hafi þá snúist móti Uppkastinu, sem áður vóru á tveim áttum. — Petta er sagt til fróðleiks og gamans. — En fleiri menn eru til í Noregi, sem mikilsháttar eru, en Gelsvík þessi, því þar er mikið mannval í landi. Okkur þótti auðvitað mikils vert um alt það, sem Norðmenn lögðu til mála vorra í fyrra, sökum mannvalsins í landinu, vegna frændsemi þjóðanna og af þeim sökum ekki sízt, að þeir vóru nýlega búnir að ráðast í það fágæta stórvirki, að segja sig úr sambandi við Svía, að þeim nauðugum. Margir menn bjuggust við því, að Norðmenn mundu þá stofna lýðveldi. Og það hefir Stephán G. Stephánsson, skáldið vestræna, talið víst, og það eitt samboðið þjóð, sem fóstraði Björnson og Ibsen, og þeir alið hana upp að sumu leyti. Hann kvað undir eins um atburðinn mikilsháttar kvæði, og sagði m. a.: Lýðveldið fætt, og konungurinn dáinn«. En verum hægir! Norðmenn bognuðu í bakinu, þegar á hólminn kom. þeir kusu sér konung, með öllu því dekri, sem hirðlífinu fylgir. Björnson hafði samið leikrit um konungsdýrkun og alt það fánýti, fyrir mörgum árum. Nú tók hann kórónuna fram yfir lýðveldið. Svona er lífsreynslan kaldhæðin, þegar kurlin koma til graf- arinnar; og grænar limar verða að svörtu koli, að lokum. Og hvað átti að segja? Norðmenn ráku sig á það, sem Bis- marck gamli segir, að hver stjórnmálamaður verði að gera sér að

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.