Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 56

Eimreiðin - 01.05.1910, Qupperneq 56
132 Sambandslaganefndin hefir bersýnilega ætlaö sér aö sníða okkur stakk eftir vexti og þó vel við vöxt. Og henni tókst það vel, hvað sem loftkastalasmiðirnir segja, sem ekkert hugsa um grunninn á jörðinni. Hvert fat er að sjálfsögöu til þess ætlað, að endast aðeins um stundarsakir. Ný snið og nýir klæðskerar koma með nýjum tímum. Sambandslögin áttu aðeins að gilda um stundarsakir, eða svo sem rífan mannsaldur, og þá var gert ráð fyrir, að dyrnar væru opnaðar, til að líta á fatið til endurbótar, eða ekki, eftir at- vikum. þetta var viturlegt og vel ráðið. Okkur Islendingum hefði ekki veitt af því, að láta krafta vora beinast að innanlands- umbótum um mannsaldurs skeið, og var full þörf á öllum beztu kröftum vorum á því starfssviði. — En þetta fór á aðra leið. Sumir gáfuðustu mennirnir í land- inu snerust öndverðir móti sambandsmálinu og — sjálfum sér,- hentistefnunni viturlegu og röksemdum sínum samfleytt um mörg ár — ekki fyrir þá sök, að þeir eru gáfaðir, heldur vegna þess, að miklum gáfum þeirra fylgdu miklir gallar, sem náðu yfirráðum yfir hinum »betra manni«, þegar verst gegndi. Allur þorri manna er hneigður til þess að fylgja miklum mönnum, eða réttara sagt mikils háttar mönnum, í blindni, af því að þeir eru mikils háttar. En hættan, sem vofir yfir þeim mönnum, sem brautargengið ljá, hún er fólgin í þessu: að mikils háttar rrienn hafa oft mikla galla og annmarka. Og svo fer stundum á þá leið, að almenningur fylgir þeim hluta mannsins, sem er nærri því eintómur annmarki og lendir á glapstigum. I’ess vegna má almenningur aldrei fylgja neinum manni í blindni, hversu mikilsháttar sem er, eða glæsilegur og mikill á lofti. JÓN SIGURÐSSON. Veit ég það að vísu, að engin þjóð kemst á legg nema því aðeins, að hún eigi hugumstóra menn, sem horfa hærra og lengra, en »meginhugtak matarins« nær. En það kemur ekki til mála í þessu sambandi. Enginn vandaður maður vogar sér, held ég, að væna Jón Sigurðsson þess, að hann hafi ekki horft út yfir þetta sjónarmið. En sambandslaganefndin bygði Uppkastið á þeim grundvelli, sem Jón Sigurðsson vildi aldrei víkja af. Jafnvel æstustu andstæðingar Uppkastsins hafa ekki neitað þessu. En Benedikt Sveinsson, þingmaður N.-Þing- eyinga, sagði í fyrra sumar í ræðu í Reykjavík, sem prentuð var
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.