Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 67

Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 67
143 Mörg vínperlan hefur glitrað í þessum gamla, göfuga bikar. Hann hefur fylgt Gilsættinni mann fram af manni. Altaf verið hjá helzta manninum í ættinni. Og allir hafa þeir kunnað að meta goðmagn vínsins. Faðir minn sálugi gaf mér hann, þegar ég fór til Hafnar. Hann ugði, að við myndum ekki sjást framar — eins og líka varð. »Pú verður að eiga þennan bikar, Pórir, sagði hann, ég veit, að þú verður helzti maður ættarinnar á þinni tíð.« Á minni tíð! Já, þetta voru hans óbreytt orð: »Eg veit, að þú verður helzti maður ættarinnar á þinni tíð« — — — — — — — — — —- — — — —- Jafnvel tappatogarinn sá arna. Við hann eru bundnar minningar um margan góðan teig og marga glaða stund. Hann skal fá að fara sömu leiðina og alt annað. Hann skal aldrei verða saurgaður á því, að draga upp meðalaglös eða stein- olíuflöskur. Ég þakka þér Egill, að þú einn skyldir muna eftir mér af öllum fornvinum mínum, og bjóða að gera mér einhvern greiða. Hversvegna varst þú sá eini; margir vottuðu mér þó forðum daga vináttu sína í stærri orðum en þú. Er það af því, að heimslán þitt hefur verið minst þeirra allraf Hefur það haldið við æskugöfgi þinni? Mér lá við að svara bréfi þínu í anda Díógenesar: sólin skín á mig, loftið andar um mig, hvers ætti mér að vera þörf? En þá mundi ég eftir, að ég var öllum öðrum skyldari að drekka erfi vínguðsins við útför hans á Islandi, og svo bað ég þig um eina flösku af steinberger. Pá sýndir þú það, Egill, að þú ert göfugmenni. Eví þú sendir mér það, sem ég bað þig um, og hvorki meira né minna. Pú vissir, að Pórir Ketilsson er enginn ölmusumaður, þrátt fyrir alt. Lengi hefur Eórir litli kvalist yfir því, að fá ekki að vita, hvað væri í þessum kassa. Hefði hann sótt hann í kaupstaðinn, hefði hann verið vís til að opna hann. Pað gerði Gvendur greyið þó ekki. Bráðum er alt horfið í gilið. Pað kann að þegja yfir því, sem því er trúað fyrir. * * * IO *

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.