Eimreiðin - 01.05.1910, Síða 69
145
Hver myndi þá dirfast að girnast sólina sjálfa, brennandi, logbjarta
sólina?
Var það þessi þögula, auðmjúka dýrkun mín, sem gerði mig
verðan að njóta þín? Éða var það .aðeins einn af dutlungum
þínum? Ég veit aðeins, að þú steigst niður til mín og gafst þig
á vald mitt.
Gafst þig á vald mitt! Nei, sviftir mig öllu valdi yfir sjálfum
mér, gerðir vilja minn að broti af vilja þínum. Sjálf varstu jafn-
köld eftir sem áður, köld og sterk eins og fjöllin, sem vakað
höfðu yfir vöggu þinni heima á íslandi.
Ég átti þig ekki nema eitt kvöld og eina nótt. En þegar
ég hugsa um það, er eins og ég hafi aldrei lifað nema þá. Við
sátum x veitingahöllinni og drukkum steinberger. Við ókum um
kvöldið út í allaufgaðan skóginn; það var um Jónsmessuleytið.
Við ókum heim til mín. Það var hátindur lífs míns. Síðan hef
ég ýmist hrapað, oltið eða staulast niður grýtta hlíðina.
Ásdís, Ásdís! Éú hefur spilt öllu lífi mínu, sundrað öllum
skýjaborgum mínum. En ég fyrirgef þér það alt, vegna þessara
örfáu sælustunda. Til hvers væri fyrir mig að reyna að fara að
hata þig? Éað yrði aðeins máttlaust hatur lasburða öldungs. Pað
myndi brenna í eldi ástarinnar. Því enn þá elska ég þig með
glóandi ást tuttugu og fimm ára manns. Til hvers er að skamm-
ast sín fyrir það, skammast sín fyrir þrekleysið, að hafa ekki
fleygt í þig aftur hringnum og hárlokknum, sem ég rændi af þér ?
Ég gat það ekki.
Og til hversjer fyrir mig að vera að reyna að sverta þig ?
Segja, að þú hafir ekki átt skilið ást mína, sem gazt kastað þér
f faðm þessa sálarlausa, gullhreistraða skriðdýrs, sem ég fyrirleit
eins og lægri veru. Hvaða mun ætli sólin finni á því, hvort
hún skín á konunginn eða betlarann? Ég reyni ekki að dæma
þig, Ásdís, þú ert hafin yfir alt, sem ég get sagt um þig. Pú
hefur slitið taug vilja míns, drepið ást mína á mönnunum, skilið
við mig flakandi í sárum með háðbrosi og einu höfuðkasti, — en
— — — — — það varst þú, sem gerðir þetta.
*
Tíminn sígur áfram með miskunnarlausri ró. Pegar sjöstjarnan
stendur yfir Holtshnúknum, þá er miðnætti. Pá er nýja árið
byrjað. Éá er aðflutningsbann víns á íslandi.
t