Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 8

Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 8
tengsl sem setja má fram í kerfisbundnum efnisorðaskrám fyrst og fremst tekin til umfjöllunar. Þau gefa lyklunarmál- inu tvívídd sem kveðið er á um að setja fram með tiltekn- um sérhæfðum skammstöfunum, sem nánar verður fjallað um síðar. Framsetning lyklunarmáls: Valorð og vikorð Samkvæmt grundvallarhugmynd staðalsins IST 90 skal skipta orðaforða kerfisbundinna efnisorðaskráa niður í eft- irfarandi tvær tegundir (sjá skilgreiningar í greinum 3.5 og 3.6, s. 8): a) Valorð (e. preferred term): Heiti sem notuð eru á sam- ræmdan hátt til að lýsa tilteknu efnisinntaki heimilda. b) Vikorð (e. non-preferred term): Samheid eðasamheita- ígildi valorða. Vikorð eru ekki notuð til að lýsa efni heimilda en benda, sem uppflettiorð, notendum á við- eigandi valorð. Með samheitaígildi (e. quasi-synonym) er átt við heiti sem í daglegu máli eru almennt talin hafa ólíka eða andstæða merkingu, en eru við lyklun með- höndluð á sama hátt og samheiti, sbr. t.d. heitin læsi - ólæsi. í staðlinum er fjallað um hvaða atriði skuli hafa í huga við ákvörðun valorða og kveðið á um verklagsreglur við staðlaða framsetningu orðaforðans. Ennfremur er lýst inn- byrðis tengslum valorða og settar eru fram sérstakar skammstafanir sem sýna tengsl lyklunarmálsins innbyrðis. Framsetning efnisorða a) Setningarfræðileg framsetning. Samkvæmt staðlinum ÍST 90 eru nafnorð eða nafnorðasambönd heppilegustu og algengustu efnisorðin (grein 6.2, s. 11-12). b) Merkingafræðileg framsetning. Merking heita (val- orða) er venjulega bundin við eina tiltekna, skilgreinda merkingu sem að mestu gagni kemur í viðkomandi lykl- unarkerfi. Merkingarlega séð er mælt með að aðeins skuli setja fram eitt afmarkað hugtak í hverju valorði eða valorðasam- bandi. c) Málfræðileg framsetning: Eintala - fleirtala. I staðlin- um er yfirleitt mælt með að nota fleirtölumynd tölu- nafnorða sem efnisorð (valorð og vikorð). Aftur á móti er sagt fyrir um að nota nafnorð sem standa fyrir efni og magn, en ekki fjölda, í eintölu, ennfremur óhlutbundin hugtök. Ymsar nánari reglur eru útfærðar í staðlinum um val eintölu- eða fleirtölumyndar (grein 6.3, s. 12- 14). Varðandi form efnisorða er mælt með því að rita valorð með hástöfum en vikorð með lágstöfum. Tengsl efhisorða I staðlinum ÍST 90 er greint á milli eftirfarandi mis- munandi grundvallartengsla efnisorða: a) Jafngildistengsl. Notað um tengslin milli valorða og vikorða, þar sem tvö eða fleiri heiti koma til greina fyr- ir sama hugtakið, en aðeins eitt er sýnt sem valorð (grein 8.2, s. 20-21). b) Stigveldistengsl. Stigveldisskipan felur í sér niðurskip- an heita (valorða) í yfirskipuð og undirskipuð svið, stig Mynd 2 - Skammstafanir og tákn ÍST 90: Merkingar þeirra og skilgreiningar Skamm- stafanir Tákn Merkingar Skilgreiningar UL Umfangslýsing Athugasemd sem fylgir valorði og skýrir notkun þess í lyldunarmálinu. N —> Notið Stendur á undan valorðum þegar velja hefur þurft á milli samheita eða samheita ígilda (þ.e. vísar til valorðs). NF = Notið fyrir Stendur á undan vikorðum, þ.e. samheitum, samheitaígildum og þrengri heitum (víddarlyklun), sem ekki eru notuð sem valorð (þ.e. frávísun). YH < Yfirheiti Stendur á undan víðasta efnisorði á því sviði sem sérhæfð heiti tilheyra. Stundum notað í stafrófshluta kerfisbundinna efnisorðaskráa. VH < Víðara heiti Stendur á undan heiti sem hefur víðtækari merkingu en heitið sem á undan fer (þ.e. uppflettiorð færslunnar). VHT < Víðara heiti (tegund) Stendur á undan heiti sem hefur víðtækari merkingu en heitið sem á undan fer. Tengsl sem vísa til tengingar hluta hópsins við víðara heitið VHH —< Víðara heiti (hluti heildar) Stendur á undan heiti sem hefur víðari merkingu en heidð sem á undan fer (þ.e. uppflettiorð færslunnar) - Tekur til hluta heildarinnar. ÞH > Þrengra heiti Stendur á undan heiti sem hefur sérhæfðari merkingu en heitið sem á undan fer (þ.e. uppflettiorð færslunnar). ÞHT > Þrengra heiti (tegund) Stendur á undan heiti sem hefur þrengri merkingu en heitið sem á undan fer. Tengsl sem vísa til tengingar hluta hópsins við uppflettiorð. ÞHH >— Þrengra heiti (hluti heildar) Stendur á undan heiti sem hefur þrengri merkingu en heidð sem á undan fer (þ.e. uppflettiorð færslunnar). Tekur til hluta heildarinnar. SH Skylt heiti Stendur á undan heiti sem tengist fyrsta heitinu í færslunni merkingarlega (þ.e. kuppflettiorðinu), en er ekki samheiti þess eða samheitaígildi, víðara eða þrengra heiti (vísar oftast til annars stigveldis). í kerfisbundnum efnisorðaskrám segja skammstafanirnar fyrir um hvernig nota skuli tiltekin heiti við lyklun, sbr. skilgreiningarnar víð- ara heiti og þrengra heiti. Merkingarleg tengsl milli heita, þ.e. valorða, eru sýnd sbr. ábendinguna skylt heiti og þannig má halda merk- ingarlega skyldu efni saman við lyklun. 8 Bókasafrið 20. árg. 1996
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.