Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 9
fyrir stig eða þrep fyrir þrep. Þar sem víðara heiti táknar
yfirflokk eða heild en þrengra heiti táknar undirflokk
eða hluta af heild (grein 8.3, s. 21-24).
c) Skyldleikatengsl. Notað um tengsl milli valorða þar
sem merkingarleg tengsl eru svo sterk að samband þeir-
ra ætti að koma fram í kerfisbundinni efnisorðaskrá með
það að leiðarljósi að þá komi í ijós heiti (valorð) sem
hægt væri að nota sem valkost við lyklun og heimilda-
leitir (grein 8.4, s. 24-26).
í kerfisbundnum efnisorðaskrám eru ofangreind tengsl
yfirleitt sýnd með skammstöfunum eða táknum.
Skammstafanir staðalsins IST 90
A Mynd 2 eru sýndar þær skammstafanir og tákn sem
skal nota samkvæmt staðlinum ÍST 90 til að sýna tengsl
milli heita og hlutverk þeirra heita sem þær standa framan
við (sjá ÍST 90, 1991, grein 4.1, s. 9 og Viðauka, s. 40).
Táknin eru einkum ætluð fyrir prentaðar útgáfur fjöl-
tyngdra efnisorðaskráa.
Tegundir efnisorða
A Mynd 3 eru sýndir meginflokkar efnisorða (sjá grein
6, s. 11-12 í staðlinum ÍST90 og Orna, 1983, s. 12):
Mynd 3 - Dæmi um helstu floltka efnisorða
Tegund efnisorðs Dæmi um valorð
a) Hlutbundnar einingar: 1) Áþreifanlegir hlutir 2) Framleiðsluvörur 3) Efnistegundir - náttúruleg eða fram leidd efni Fuglar, jöklar Bílar, klukkur, sverð Bómull, brons, granít Kol, límefni, postulín
b) Óhlutbundnar einingar 1) Hugtök 2) Athafnir 3) Verknaður 4) Atburðir 5) Eiginleikar a) Lífvera b) Efnis c) Athafna 6) Framleiðsluferli eða - framleiðsluaðferðir Launhelgar, trúkerfi Fótbolti, sund, öndun Bókband, markaðssetning Sólmyrkvar, styrjaldir Greind, reiði Gagnsæi, þanþol Hraði Bruni, eiming, rafgreining
c) Svœði: Staða- og landfrœðiheiti Vettvangur tiltekinna atburða, tilteknir staðir t.d. sem myndefni
d) Tírni: Tímasetningar Dagsetningar, ársetningar, tiltekin tímabil
e) Tungumál Tungumál heimildar og/eða upprunamál, t.d. bókmennta verka
f) Mannanöfn Nöfn þeirra sem ævisögur fjalla um.nöfn rithöfunda eða Iista manna eðasögufrægra persóna, nöfn mannaá ljósmyndum eða listaverkum
g) Utgáfuform Ritgerðir, skýrslur, sýningarskrár
h) Bókfraðilegar upplýsingar Titlar ritdæmdra verka
Þegar mörkuð er stefna um efnisorðagjöf innan ein-
stakra safna og/eða í samvinnu margra safna getur verið
gagnlegt að styðjast við slíkan lista þegar skilgreina á hvaða
viðfangsfleti heimilda á að sýna með efnisorðum (þ.e.
valorðum).
Sýnd eru dæmi úr báðum hlutum skrárinnar. I fyrra
dæminu eru tengsl efnisorða sýnd með skammstöfunum,
en í seinna dæminu með inndrætti. Stigveldisskipt fram-
setning gefur yfirlit yfir öll valorð skrárinnar.
Islensk kerfisbundin efhisorðaskrá
Sumarið 1992 var gefin út fyrsta íslenska kerfisbundna
efnisorðaskráin sem greinarhöfundur tók saman ásamt
Margréti Loftsdóttur forstöðumanni bókasafns Flensborg-
arskólans. Við gerð efnisorðaskrárinnar er í megindráttum
fylgt reglum áðurnefnds alþjóðlegs staðals sem gefinn var
út sem IST 90. Nú fyrir skömmu (mars 1996) kom út eft-
ir sömu höfunda, einkum fyrir hvatningu og stuðning
Bókís notendafélags Fengs, aukin og endurskoðuð útgáfa
skrárinnar.
Markmiðið með útgáfunni er að stuðla að samræmdum
vinnubrögðum og samkvæmni í lyklun heimilda innan
bókasafna með þeim tilgangi að greiða fyrir samvinnu safna
á milli og auðvelda notendum heimildaleitir. Brýn þörf
myndaðist hér á landi fyrir staðlað efnisorðakerfi þegar
grundvöllur skapaðist við tölvuvæðingu bókasafna til þess
að gefa heimildum efnisorð sem væru jafnframt leitarbær í
tölvu.
Efnisorðaskráin skiptist í eftirfarandi tvo hluta. Varð-
andi frekari upplýsingar um uppbyggingu hennar vísast í
formála:
1) Stafrófsröðuð framsetning. Sá hluti er jafnframt meg-
inhluti skrárinnar. 1 honum er valorðum og vikorðum
skipað í eina stafrófsröð. Valorð eru rituð með hástöfum
en vikorð með lágstöfum. Sýnd eru innbyrðis tengsl
milli valorða, þ.e. víðari heiti (VFI), þrengri heiti (ÞH)
og skyld heiti (SH), vísað er frá vikorðum til valorða.
Ennfremur eru umfangslýsingar (UL) og athugasamdir í
skránni. I aðalhlutanum eru um 8.550 færslur sem er
44,9% aukning frá fyrri útgáfu.
2) Stigveldisskipt framsetning. I þeim hluta eru yfirheiti
(víðustu heiti hvers efnissviðs) í stafrófsröð og er stig-
veldisskipan sýnd með inndrætti. I stigveldunum, sem
eru alls 110, eru eingöngu valorð.
Skrá sem þessi þarf að vera í stöðugri endurskoðun eftir
því sem ný hugtök og heiti koma fram. Einnig er oft nauð-
synlegt að endurskoða eldri heiti með hliðsjón af nýrri
þekkingu og breyttri málnotkun. Því þarf að gefa skrána út
með reglulegu millibili.
Bókasafhið 20. árg. 1996 9