Bókasafnið - 01.06.1996, Page 32
Matarklúbbur í dulargerfi
Frá árinu 1992 hefur verið starfræktur bókmennta-
klúbbur nokkurra bókavarða á Akureyri. I upphafi var
það ætlunin að hvetja okkur til að lesa nýútkomin
skáldverk og fræðirit. Lítið hefur farið íyrir Iestri á fræði-
ritum en skáldverkin höfum við lesið eitt af öðru eftir ís-
lenska og erlenda höfunda.
íslenskir höfundar hafa þó verið í meirihluta. Höfum
við einnig reynt að lesa skáldverk sem hafa verið kvik-
mynduð og þá bæði lesið bókina og horft á myndina.
Nokkur dæmi um bækur sem við höfum lesið: Dansað
við Regize (Martha Christensen), Svanurinn (Guðberg-
ur Bergsson), Kryddlegin hjörtu (Laura Esquivel), Þetta
er allt að koma (Hallur Helgason), Bréfbátarigningin
(Gyrðir Elíasson), Grandavegur 7 (Vigdís Grímsdóttir),
Tímapjófurinn (Steinunn Sigurðardóttir) og Saltbragð
hörundsins (Benoite Groult).
Til að auðvelda framkvæmdina á fundunum skipt-
umst við á að halda þá og komum með einn rétt hver
svo að húsráðandinn þurfi ekki að standa í stórræðum
og má segja að hver fundur sé á við meðal fermingar-
veislu. Því erum við að velta því fyrir okkur núna, hvort
við séum e.t.v. frekar í matarklúbbi. Við komum nefni-
lega alltaf með mat með okkur en erum ekki alltaf bún-
ar að lesa bækurnar.
Sœlkerar á Akureyri
Frágangur frœðirita
Dagana 17. og 19. október sl. gengu Félag bókasafns-
fræðinga og Hagþenkir fyrir námskeiði um Frágang
fræðibóka og gerð hjálparskráa. Hugmyndin um nám-
skeiðið varð til vegna viðurkenningar sem FB veitir fyrir
best unnu fræðibókina og var hugsað til enn frekari
hvatningar. Þórdís T. Þórarinsdóttir bókasafnsfræðingur
var leiðbeinandi á námskeiðinu. í Hagþenki fréttabréf
46 hefti, 11. árg., l.tbl. janúar 1996 fer Ingi Rúnar Eð-
varðsson lofsamlegum orðum um námskeiðið og segir
m.a: „Athyglisvert var að heyra þau orð Þórdísar að at-
riðisorðaskrá sé hugverk sem tölva getur ekki unnið ...
Að lokum vil ég geta þess að farið var í marga hagnýta
þætti við gerð atriðisskráa með handvirkum hætti og
tölvu. Það er von mín að slíkt námskeið verði haldið á ný
svo að sem flestir höfundar fræðibóka og kennslugagna
geti nýtt sér það” (1996, s. 5).
Þetta eru ánægjuleg ummæli sem sýna og sanna að
bókasafnsfræðingar geta kennt öðrum ýmislegt hagnýtt
og aukið þannig aðgengi upplýsinga.
Regína Eiríksdóttir
Ef þú ætlar að gera alvöru úr hugleiðingum þínum um að tölvuvæða bókasafnið, þarftu ekki að leita
lengra! MetraCBól^&T hugbúnaðarkerfi sem hentar vel á öllum litlum og meðalstórum bókasöfnum.
—► Fullkomið útlánakerfi - einfalt í notkun
© strikamerki fyrir lánþega og bækur
© útlána- og skilakvittanir
© áminningarbréf
—► í notkun á rúmlega 50 stöðum, skólum,
almenningssöfnum, stofnunum,
einkafyrirtækjum...
—► 6 ára reynsla af notkun
—► Fjölbreyttar útprentanir
© aðfangalistar
© heimildalistar
© spjaldskrárspjöld
© kjalmiðar
o.fl. o.fl.
-♦ Tímaritaskráning
© einstakar greinar, titlar, höfundar og
efnisorð
Skráið eða hringið og biðjið um ókeypis upplýsingar um MetrafBókj.
Allar upplýsingar eru veittar í síma 551 5090 eða 482 2365.
Ásmundur Eiríksson, Heimahaga 8, Selfossi, e-mail: asmuneir@prim.is, url: http://www.prim.is/Metrabok
32 Bókasafnið 20. árg. 1996