Bókasafnið - 01.06.1996, Qupperneq 44
Frá afgreiðslu Þjóðdeildar
íslenskt efni. Vinnuaðstaða er ágæt í lestrarsal deildarinnar.
Markviss upplýsingaþjónusta í afgreiðslu um allt sem varð-
ar Island og Islendinga er eitt af því sem þarf að stórefla.
Opnunartími er nú of skammur. Deildin er opin að
vetrarlagi frá klukkan 9 til 19 mánudaga til föstudaga og frá
klukkan 10 til 17 á laugardögum. Betur má ef duga skal.
Margt gesta Þjóðdeildar er fólk sem vinnur sína launavinnu
alla virka daga og kýs að koma á deildina eftir vinnu og um
helgar. A þetta einkum við um alþýðufræðimenn, en það er
hópur sem við á Þjóðdeild höfum sérstakan áhuga á að
koma vel á móts við. Alkunna er, að margt þessa fólks býr
yfir mikilli þekkingu og þarf oft aðstöðu og aðgang að rit-
um til að koma kunnáttu sinni á blað. Væri rýmri opnun-
artími til dæmis á sunnudögum þeim kærkominn. Fái
stofnunin einhvern tíma aukin fjárráð verður komið á móts
við þessa ósk.
Erlendir fræðimenn sem koma til skammrar dvalar vilja
líka nýta tíma sinn sem best og nota sunnudaga jafnt og
aðra daga til rannsókna. Einnig má nefna hóp fólks, sem
mun sæka deildina í auknum mæli og óskar eftir lengri
opnunartíma. Það er fólk búsett í útlöndum sem er af ís-
lensku bergi brotið og leitar til upprunalands síns. Þessi
hreyfing hefur verið kölluð „routes to the roots“.
ISBN
Umboðsskrifstofa íyrir alþjóðlega bóknúmerakerfið er
staðsett í Þjóðdeildinni. Hún útvegar árlega fjölda ISBN og
ISSN númera. Ætla má að fljótlega verði farið af stað með
úthlutun ISMN á tónlistarefni. Sí fleiri sjá þann hagnað,
sem þeir hafa af þjónustu skrifstofunnar. Við sjáum fyrir
aukningu á þessu þjónustusviði.
Sýningar
Hlutverk Þjóðdeildar er meðal annars að gefa mönnum
hlutdeild í því sem hún varðveitir og að kynna menningar-
arfinn fyrir gestum og gangandi. Að þessu leyti hefur deild-
in sambærilegt hlutverk og til dæmis Þjóðminjasafn. Það
nær skammt að einungis geyma og varðveita dýrgripi.
Henni ber skylda til að halda frammi og vekja athygli gesta,
innlendra sem og erlendra á ýmsum menningarsögulegum
verðmætum. Sýningarhald á ýmsu efni deildarinnar á að
vera árið um kring. Nú þegar þessi grein er skrifuð vantar
húsið enn sýningarbúnað. En neyðin kennir naktri konu að
spinna. Þrátt fyrir skort á búnaði hafa verið haldnar nokkr-
ar sýningar bæði í forsal deildarinnar og í sýningarrýminu
á annarri hæð, Forsalurinn hentar vel fyrir ýmsar minni
sýningar en sýningarsvæði við innganginn í safnið hentar
auðvitað miklu betur og nær frekar athygli gesta. Sýningar-
kassar hafa verið fengnir að láni og gestir hafa haft á því
orð, hve gaman sé að sjá það efni sem sýnt hefur verið til
þessa. Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn mun með
tímanum ávinna sér sess menningarmiðstöðvar og mun
Þjóðdeildin vonandi leika þar veigamikið hlutverk.
Rannsóknir
Til þess að Þjóðdeild standi undir nafni, þurfa rann-
sóknir að fá sinn sess á vegum hennar. Þá á ég við rann-
sóknir sem unnar eru á vegum deildarinnar og af starfsfólki
hennar. Staða rannsóknarbókavarðar þyfti nauðsynlega að
komast á laggirnar. Mikilvægt er fyrir stofnun sem þessa er
að hún sýni sig og sanni með faglegum og þvervísindaleg-
um rannsóknum og síðan vönduðum útgáfum. A komandi
árum þarf að leita leiða til að deildin geti haft frumkvæði,
leitt og stutt við rannsóknir, sem eru í samræmi við eðli
44 Bókasafhið 20. árg. 1996