Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Blaðsíða 42
42 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981. Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 31. janúar. Spáin gildir fyrir föstudaginn 1. janúar. Spáin gildir fyrir iaugardaginn 2. janúar. Spáin gildir fyrir sunnudaginn 3. janúar. Spáin gildir fyrir mánudaginn 4. janúar. Vatnsberinn (21. jan-19. feb.): Þetta er ekki rétti timinn til að grufla i for- tiðinni og sýta glataða vini. Fram- tíðin er mikiu skemmtilegra viðfangs- efni og þin bíður mikilvægt verkefni. Vatnsberinn (21. jan.-19. feb.): Þig langar mest til að hvíla þig í dag en reyndu samt ekki að fresta heimsókn sem þú hefur lofað að fara í. Þú ert að bræða með þér ákveðna hugmynd en það gæti komið sér afar illa fyrir aðra ef þú hrintir henni í framkvæmd. Vatnsberinn (21. jan.-19. feb.): Þú hefur mikið fyrir því að hrinda vissri áætlun í framkvæmd, en fyrirhöfnin borgar sig líka. Sennilegt er að þú skellir þér í ánægjulegt boð í kvöld, þótt þú teljir þig ekki hafa tíma til þess. Vatnsberinn (21. jan.-19. feb.): Það hefur komið upp einhver mis- skilningur á milli þín og vinar þíns. Láttu það ekki eyðileggja vináttuna. Þú gætir bjargað málunum með því að ræða við hann í hreinskilni. Þú átt skyndilegt ferðalag i vændum en gættu þess að flana ekki að neinu. Vatnsberinn (21. jan.-19. feb.): Fólk er miklu samvinnuþýðara við þig en þú gerir ráð fyrir. Þú þarft að ljúka vissu skyldustarfi og færð góðar þakkir fyrir. Reyndu að njóta frítima þíns sembezt. Fiskarnir (20. feb.-2Ó. marz): Þú stofnar til nýrra og ánægjulegra kynna. Taktu það ekki nærri þér þótt einhver nákominn þér missi stjórn á skapi sínu. Kynntu þér heldur ástæð- una fyrir því, þá skilurðu málið bet- ur. Fiskarnir (20. feb.-20. marz): Morgunninn er þér alls ekki hag- stæður en það birtir yfir síðdegis og kvöldið verður óvenjuskemmtilegt. Fiskarnir (20. feb.-20. marz): Þú hefur lengi beðið svars við bréfi sem þú skrifaðir. Það kemur, en er kannski ekki alveg eins og þú vildir hafa það. Þú ættir ekki að lána neinum peninga. Þú þarfnast þeirra sjálfur vegna óvæntra útgjalda. Fiskarnir (20. feb.-20. marz): Þú átt sennilega í viðræðum i dag í sambandi við áætlanir þínar. Haltu þér umfram allt við jörðina og láttu ekki etja þér út í neitt, sem þú hefur ekki efni á að gera. Fiskarnir (20. feb.-20. marz): Þú þarft að ganga frá ýmsum mikilvægum hlutum í sambandi við einkalífið. Gefðu þér góðan tíma til þess. Kvöldið verður skemmtilegt. Hrúturinn (21. marz-20.apríl): Þú ættir að hugsa þig vel um áður en þú trúir öðrum fyrir leyndarmáli. Það gæti verið betra að lúra á því dálítið lengur. Þú nýtur hverrar mínútu kvöldsins. Hrúturinn (21. marz-20. apríl >: Gættu þess að týna engu í dag. Þú lest eitthvað i dag sem rennir stoðum undir fyrri skoðanir þinar. Þér gengur vel i peningamálum. Hrúturinn (21. marz-20. apríl): Taktu það ekki nærri þér þó ungt fólk sé uppreisnargjarnt. Bittu bara á jaxlinn og sýndu þolinmæði. Óbundnir hrútar mega eiga von á skemmtilegu ástarævintýri. Hrúturinn (21. marz-20. april): Einveran hæftr þér bezt í dag. Þú þarft umfram allt að hvíla þig, þú hefur lagt of hart að þér að undan- förnu. Ástamálin ganga rólega fyrir sig. Hrúturinn (21. marz-20. april): Þú nærð samkomulagi sem hefur það í för með sér að frítimi þinn verður rýmri. Reyndu að forðast deilur við þér eldri manneskju. Þú nýtur dagsins í fyllsta mæli. Nautið (21. apríl-21. maí): Þú ert ekk í sérlega góðu jafnvægi um morgun- inn, en skapið lagast þegar liða tekur á daginn. Notaðu því frekar síðdegið til að undirbúa veizluhöld og þú mátt treysta því að kvöldið verður ánægjulegt. Nautiö (21. apríl-21. maí): Morgunninn reynist þér þungur í skauti en annars er bjart yfir deginum og þín biður óvænt ánægja. Eyddu ekki alltof miklum peningum, reyndu heldur að standast freistinguna. Nautið (21. apríl-21. mai): Þér finnst sem náinn vinur hafi brugðist þér en það er kannski óþarfi að treysta fólki jafn gjörsamlega og þér hættir til að gera. Happaiiturinn þinn er blár. Nautið (21. april-21. mai): Þú ert í skrýtnu skapi í dag og tilfinningarnar afar blandnar. Gættu þess að taka ekki of stórt upp í þig, það gæti komið þér í klipu. Nautið (21. april-21. mai): Þú færð gott tækifæri til tilbreytinga. Þetta er einmitt heppilegur tími til að hugsa sinn gang og skipuleggja framtíðina. Ástin blómgast. Tvíburarnir (22.maí-21. júni): Leitaðu ráða hjá þeim sem þú treystir ef þú ert ekki alveg viss um hvernig þú átt að hegða þér i vissu máli. fjöl- skyldan reynist þér óvenju hjálpsöm í dag og eykur það auðvitað mjög á gleði þína. Tviburarnir (22. maí-21. júní): Hafðu engar áhyggjur af bréfi sem þú hefur lengi beðið eftir. Það hefur bara tafizt á leiðinni. Þú átt ferðalag í vændum og þú hittir reglulega áhugavert fólk. Tviburarnir (22. mai-21. júní): Þú kynnist einhverjum sem þú hefur lengi dáðst að úr fjarlægð. Haltu þér við heimahagana í dag. Leitaðu ekki langt yfir skammt að hamingjunni. Tviburarnir (22. mai-21. júní): Þetta er rólegur dagur. Þú færð gest í heimi sókn síðdegis og koma hans gleður þig. Einhver sem er nýfluttur L hverfið hefur valdið miklu umtali. Þú ættir að láta það sem vind um eyru þjóta. ‘Tviburarnir (22. mai-21. júní): Sá á kvölina sem á völina, segir máltækið, þú gætir orðið að velja á milli vina þinna. En það fer betur en þú heldur. Eitthvað óvænt kemur upp á sem gleður þig. Krabbinn (22. jní-23. júnlí): Nú er einmitt áriðandi að taka tillit til vina þinna. Þú færð bréf sem gefur þér tvöfalda ástæðu til að halda hátíð í kvöld. Krabbinn (22. júní-23. júli): Slappaðu bara af í dag. Það rætist betur úr peningamálunum en þú heldur. Ef þú skipuleggur hlutina rétt verður meira að segja óvæntur af- gangur. Krabbinn (22. júní-23. júli): Það væri fallegagert af þér að heimsækja gamlan vin sem hefur lengi verið heilsuveiil. Þú finnur löngu glataðan mun á óvæntum stað. Krabbinn (22. júni-23. júlf): Þú ættir að endurskipuleggja daglegt líf þitt þannig að þú fengir meiri frítíma. Þú ert iðinn og vinnusamur en gætir ein- beitt þér betur að hiutunum. Þú átt sennilega ferðaiag í vændum. Krabbinn (22. júni-23. júlí): Þú færð heimboð frá aðdáanda þínum, sem gleður þig mjög. Reýndu að komast yfir skyldustörfin. Gamalt loforð verðurefnt viðþig. Ljónið (24. júli-23. ágúst): Þú hefur haft nokkrar áhyggjur af heiisufari vinar þins, en færð góðar fréttir af honum í dag. Þú Iendir í óvenju skemmtilegum samræðum í kvöld. Ljónið (24. júli-23. ágúst): Treystu ekki alltof mikið á hjálp annarra, þú getur vel ráðið fram úr vandamálum þínum upp á eigin spýtur. Varastu samt óþarfa eyðslusemi, ef þú heldur henni innan vissra takmarka fer allt vel. Ljónið (24. júIi-23. ágúst): Láttu eng- an telja þig á að gera það sem þér finnst rangt. Það getur verið erfitt að neita en stundum er það bara alveg bráðnauðsynlegt. Ljónið (24. júli-23. ágúst): Þér hættir til að vera blindur á galla vissr- ar persónu sem hefur mikil áhrif á líf þitt. Það þarf þó ekki að skyggja neitt á samband ykkar, þótt þú gerðir þér grein fyrir göliunum því enginn er fullkominn. Ljónið (24. júli-23. ágúst): Stjörnurnar hafa ekki verið þér sér- lega hagstæðar að undanförnu en nú verða þáttaskil. Ef þú ferð varlega í sakirnar gengur þér allt í haginn. Meyjan (24. ágúst-23. sept.): Þú hef- ur alltof miklar áhyggjur af smámun- um. En nú færðu einmitt tækifæri til að bregða út af vananum og þú skemmtir þér reglulega vel. Meyjan (24. ágúst-23. sept.): Þú leggur mikið upp úr nýjum kunnings- skap, treystu samt ekki um of á hann. Láttu kjaftasögur ekki haf nein áhrif á þig, þær skipta hvort sem er engu máli. Meyjan (24. ágúst-23. sept.): Þú hefur tekið að þér krefjandi verkefni. Gleymdu samt ekki að hvíld er nauðsynleg. Þú færð gest sem dvelst lengur hjá þér en þú gerðir ráð fyrir. Meyjan (24. ágúst-23. sept.): Þú hefur kannski gert alltof mikið að því að gera þér eldri manneskju allt til geðs. Þú færð gulihamra, sem hressa heilmikið upp á sjálfsálitið. Meyjan (24. ágúst-23. sept.): Þetta er heppilegur tími til framkvæmda Hugmyndir þínar fá góðar undir- tektir. Þú ert afar vinsæll og færð fleiri heimboð en þú getur með góðu móti sinnt. Vogin (24. sept.-23. okt.): Þér finnst eins og vinur þinn hafi brugðist þér. Það er ekki alveg rétt og þú ættir að kynna þér málin betur.Nú er einmitt rétti tíminn til að gleyma gömlum væringum og sættast. Vogin (24. sept.-23. okt.): Þú hefur haft áhyggjur af heilsu þinni. Það er alveg óþarfi, hún er í stakasta lagi. Þú kemst að leyndarmáli, sem kemur þér á óvart. Láttu það ekki fara lengra. Vogin (24. sept.-23. okt.): Það er hætt við að þú verðir fyrir smá vonbrigðum, en það er alveg óþarfi að gera of mikið úr þeim. Einhver af gagnstæða kyninu hefur haft mikinn áhuga á að kynnast þér og nú lætur hann til skararskríða. Vogin (24. sept.-23. okt.): Einhver vina þinna verður fyrir vonbrigðum i ástamálum og leitar huggunar hjá þér. Dagurinn er heppilegur til lesturs góðra bóka. Vogin (24. sept.-23. okt.): Þig langar til að gera breytingar á gömlu samkomulagi, en athugaðu fyrst vandlega hvað þær kunna að kosta þig. Kvöldið verður afar skemmtilegt og hefur í för með sér óvæntan at- burð. Sporðdrekinn (24. okt.-22. nóv.): Það verður gestkvæmt hjá þér í dag og þér verður því ekki alltof mikið úr verki. Njóttu þess bara, kvöldið þarfnast ekki jafn mikiis undirbún- ings og þú heldur. Þú átt stutt ferða- lag i vændum til ókunnugs staðar. Sporðdrekinn (24. okt.-22. nóv.): Einhver hefur misskilið orð þín. Kipptu því strax í lag til að forðast frekari leiðindi. Þú færð óvænta gjöf sem gleður þig. Sporðdrekinn (24. oit.-22. nóv.): Það rætist miklu betur úr peninga- málunum en þú hyggur. Eyddu samt ekki öllu í einu. Gefðu þér tima til að sinna einmana vini. Þú munt uppskera margfalda umbun erfiðis þíns. Sporðdrekinn (24. okt.-22. nóv.): Þessi dagur er afar heppilegur til að sinna fjölskyldunni, enda nýturðu hans í fyllsta mæli á heimaslóðum. Þú ættir að bjóðast til að taka að þér matargerðina í dag. Hún getur ekki misheppnazt! Sporðdrekinn (24. okt.-22. nóv.): Tíminn er heppilegur til að stofna eigið fyrirtæki. Þú ert kjarkmikill og hugmyndir þínar eru góðar. Láttu það fólk, sem setur öryggið ofar öllu ekki hafa alltof mikil áhrif á þig. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Þér tekst að sætta tvo vini þína og það gleður þig mjög. Lofaðu samt ekki upp í ermina á þér. Þú færð óvænta gjöf i kvöld. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Gleymdu ekki gömlu loforði. Þú hittir gamlan vin sem hefur lifað heil- miklu ævintýralífi. Þér gengur vel í ástamálum. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Þú ættir að nota daginn til að hressa upp á líkamskraftana t.d. með trimmi eða öðrum viðeigandi íþróttum. Þú ferð sennileg í afar skemmtilegt boð í kvöid. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Þú færð sennilega undarlegar fréttir í dag, sem þér finnst að stofni öryggi þínu í hættu. Taktu þeim með ró, þetta eru miklar ýkjur. Það gæti komið til ýfinga í ástamálunum. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Þú breytir um umhverfi í kvöld. Þú ert óvenju heppinn um þessar mundir og stofnar til nýrra vináttubanda. Steingeilin (21. des.-20. jan.): Sofðu ekki yfir þig í dag, þú hefur nefnilega óvenju mikið að gera. En með venju- legum dugnaði þínum og krafti tekst þér auðvitað að ijúka öllu af. í kvöld færðu óvænt tækifæri til að rifja upp gamlar og skemmtilegar minningar. Steingeitin (21. des.-20.jan.): Spilltu ekki deginum með því að hugsa bara um öll þau verkefni sem bíða þín. Þú þarft ekki að leggja svona hart að þér. Þú gerir óþarflega miklar kröfur til sjálfs þín. Steingeitin (21. des.-20. jan.): Þú hefur lengi þráð að fá heimboð frá mikiivægri persónu og nú er komið að því að sá draumur þinn rætist. Þú kemst líka að ástæðunni fyrir því að vinur þinn hefur verið tregur til að segja þér frá leyndarmáli. Steingeitin (21. des.-20. jan.): Morgunninn er afar vafasamur til stórræða. Hins vegar gengur þér allt. mun betur síðdegis. Þú ættir að bregða þér út þér til skemmtunar í kvöld. Steingeitin (21. des.-20. jan.): Ástin skipar háan sess í lífi þínu núna. Kvöldið verður afar skemmtilegt og þú færð tækifæri til að rifja upp gömul kynni. Afmælisbarn dagsins: Þú færð góð tíðindi og þaö er mjög bjart yfir þessu nýja ári i lífi þinu. Þú mátt gsamt búast við einhverju hálfmis- Pheppnuðu ástarævintýri i maí. Þér finnst sem þér gangi ekki nógu vel í vinnunni i september, en hafðu engar áhyggjur af því. Það rætist brátt úr öllu saman og þetta er vissulega hag- stætt ár fyrir þig. Afmælisbarn dagsins: Þetta verður indælt og rólegt ár. Þú hefur nokkrar áhyggjur af peningamálunum í marz en vinur þinn eða ættingi hleypur undir bagga með þér. Maí verður sér- staklega hagstæður mánuður og þú færð óvænt tækifæri til að vinna þér inn peninga. Þú átt marga vini sem reynast þér vel. Afmælisbarn dagsins: Þú nýtur mikilla vinsælda þetta árið og aflar þér fjölda nýrra vina. Þér finnst sem vinnan gangi ekki nógu vel hjá þér í janúar og febrúar, en siðan kemst heldur betur skriður á hiutina. Október er afar hagstæður fyrir rómantíkina. Afmælisbarn dagsins: Fyrstu þrír mánuðir þessa árs eru óheppilegir til mikilla breytinga á lífi þínu. Haltu þér frekar við þitt vanabundna líf og gömlu vinina. Hins vegar snýst þér allt í haginn í maí. Ástamáiin ganga afar vel seinni hluta ársins og laus og liðug steingeit sem lendir í nýju ástarævintýri á þessum tíma getur búizt við að það verði varanlegt. 'Afmælisbarn dagsins: Það veröa ánægjulegar breytingar á lífi þínu. Það birtir yfir i fjármálunum. Heppnin er með þér, einmitt þegar þú þarft mest á henni að halda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.