Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1981, Blaðsíða 4
4
Hvaöerþér
minnisstæöast....?
Ingi R. Helgason, forstjóri.
Ingi R. Helgason:
Hamskiptin semég
tókámiðjuárinu
„Mér er efst i huga þau hamskipti,
sem ég tók á miðju árinu,” sagði Ingi
R. Helgason forstjóri. „Ég hætti öllum
hlaupum sem lögfræðingur eftir 30 ár i
því starfi og varð forstjóri Brunabóta-
félags íslands.
f tilefni af nýju ári bið ég menn að
minnast þeirra orða „að til að sigrast á
náttúruöflunum verður maður að
hlýða þeim.” Ég óska svo öllum far-
sældar á nýja árinu, og hvað mig
sjálfan áhrærir, að ég standi mig í mínu;
nýjastarfi.” -klp-
Hatlgrímur Marinósson, húsasmiður.
Hallgrímur Marínósson:
„Sú þýzkameð
vagninnermér
minnisstæðust”
„Ætli það sé ekki ferðin fræga sem
ég fór hringinn í kringum landið aftur á
bak á bílnum mínum,” sagði Hallgrim-
ur Marinósson, húsasmiður.
„Þessi ferð tók mig tíu daga og ég
kynntist mörgu fólki á þessari sérkenni-
Iégu ferð minni. Sú sem er mér þó hvað
eftirminnilegust var ein þýzk valkyrja
sem ferðaðist um þjóðvegi landsins
með ungabarn í vagni.
„Varðandi árið sem fer í hönd vona
ég að mér takist að framkvæma það
sem ég ætla mér að gera. Þá vona ég að
landar vorir standi sigveli íþróttunum
og berji þar meir á Dönum en gert
hefur verið. Þá vona ég að lyftinga-
menn okkar standi sig ekki síður á nýja
árinu en þeir hafa gert á undanförnum
árum”. -KLP-
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981.
Magnús H. Magnússon:
„RÍKISSTJÓRNINNI
GeirHallgrímsson:
„Landsfundurinn
minnisstæðastur
á árinu”
i
j *
i
HEFUR TEKIZT
ILLA AÐ NÝTA
MEÐBYRINN”
„Af erlendum vettvangi eru mér
atburðirnir í Póllandi minnis-
stæðastir. Framvinda þeirra getur
ráðið úrslitum um ástand heimsmála
og sambúð þjóða um langan tíma,”
sagði Magnús H. Magnússon, vara-
formaður Alþýðuflokksins.
„Af inr.lendum vettvangi er mér
efst í huga hve illa ríkisstjórninni
hefur tekizt að nýta sér þann mikla
meðbyr, sem hún óneitanlega hefur
haft með þjóðinni, ekki sízt laun-
þegahreyfingunni, og hve illa henni
tókst á þessu ári að nýta sér mikinn
sjávarafla og stórbætt ytri skilyrði til
að ná verulegum og varanlegum á-
rangri i verðbólguslagnum. Þar hafa
góð tækifæri farið forgörðum, því
við stöndum að þessu leyti í sömu
sporum og þegar ríkisstjórnin tók
við.
Við upphaf nýs árs er mér efst i
huga nauðsyn þess að losa
stjórnendur landsins, ásamt heilum
herskara af embættismönnum,
undan því oki, að svo til allur starfs-
kraftur þeirra fari í það eitt að
berjast við framfærsluvisitöluna,
fari í það að finna hverja bráða-
birgðalausnina eftir aðra og sjá aldrei
lengra fram á veginn en næsta þriggja
mánaða tímabil. Ég tel það
höfuðnauðsyn, að æðstu stjórnendur
landsins geti snúið sér af krafti að
áætlun.til lengri tíma um alhliða at-
vinnuuppbyggingu til að treysta efna-
hagslegan grundvöll þjóðfélagsins,
auka þjóðarframleiðslu og bæta
lífskjör alls almennings”. -JSS.
„Minnisstæðastur á árinu, sem nú
er að líða, er Landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins. Þar koma
forystumenn flokksins alls staðar af
landinu saman og áréttuðu að þeir
væru staðráðnir í að halda saman og
vinna aukið fylgi með þjóðinni,”
sagði Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins. „Þar með voru
vonir andstæðinga flokksins um að
þeir réðu ferðinni og gætu klofið
Sjálfstæðisflokkinn að engu orðið.
í upphafi nýs árs er mér efst í
huga, að nú eru rúmlega fjögur
þúsund sjómenn í verkfalli. Ný
verðbólgualda er að skella yfir, ef til
vill með þeim afleiðingum, að at-
vinnurekstur í landinu stöðvast að
miklu leyti. Á meðan eru engar
ráðstafanir gerðar til þess að treysta
grundvöll atvinnuveganna til fram-
búðar, eins og með uppbyggingu
orkuvera og stóriðju. Um leið er hert
að afkomu fyrirtækja og heimila og
sjálfstæði einstaklinga skert. Hér er
þvi þörf algerrar stefnubreytingar.
Jafnframt þessu hljóta örlög
Pólverja að vera okkur íslendingum
ofarlega í huga og leiða okkur fyrir
sjónir hvaða afieiðingar stefna
sósíalismans hefur fyrir þjóðirnar”.
-JSS.
Steingrimur Hermannsson.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Prófkjör Framsóknar í Reykjavík
Framundan er prófkjör hjá fram-
sóknarmönnum í Reykjavik vegna
borgarstjórnarkosninganna. í raun er
litlu hægt að spá um það enn, vegna
þess að Kristján Benediktsson, borg-
arfulltrúi, hefur ekki lýst yfir hvort
hann ætlar að sitja áfram eða hætta.
Virðist sjálfgefið að hann verði efstur
í prófkjöri, kjósi hann að haida á-
fram, en sagt hefur verið að hann
væri orðinn þreyttur á borgarmála-
vafstri og vildi hverfa að einhverju
öðru starfi ekki siður en Björgvin
Guðmundsson. Kristján er vel hæfur
til margra starfa, og er ekki ólíklegt
að sú ríkisstjórn sem nú situr veiti
honum embætti óski hann þess.
Að Kristjáni undanskildum er
alveg Ijóst að Eiríkur Tómnasson
hefur nú mestar vinningslikur í próf-
kjöri framsóknarmanna I Reykjavik.
Þessi ungi maður hefur víða við
komið i opinberri stjórnsýslu og er
áhugasamur um opinber mál. Hann
er lögfræðingur að mennt og
vinnusamur vel — raunar dugnaðar-
forkur, þegar svo býður við að horfa.
Gamli vörðurinn i Framsókn, þeir
Eysteinn Jónsson og Þórarinn
Þórarinsson, munu hafa haft í huga
að koma Gerði Steinþórsdóttur í
öruggt sæti, en hún virðist hafa i
hyggju að draga sig til baka úr pólitík
um sinn. Gerður hefur einkum barist
fyrir þvi að Framsókn liti með
velþóknun á dagvistunarmál og
önnur félagsleg atriði, sem hingað til
hafa verið einskonar einkamál
Allaballa. Af þeim sökum hefur hún
verið talin höll undir þá, og ekki
notið stuðnings þeirra afla i
Framsókn, sem vilja halda sig i
miðjunni eða til hægri i flokknum.
Þá mun nokkur hugur i mönnunv
að koma Jónasi Guðmundssyni, list-
málara og blaðamanni, ofarlega á
listann og mun vera samkomulag um
það atriði meðal margvíslegra hópa,
enda hefur Jónas staðið sig vel i þeim
borgarmálum sem flokkurinn hefur
falið honum að annast fyrir sina
hönd. Að vísu hafa hvorki Eiríkur
Tómasson né hann neina sérstaka
áhugamannahópa á bak við sig, sem
er bæði kostur og ókostur. En þeir
efla þá ekki á sig andróður fyrir
klikuskap á meðan. Gamli vörðurinn
í flokknum hefur ekkert sérstakt á
móti þessum tveimur mönnum og
mun geta sætt sig við þá, fyrst Gerð-
ur hefur dregið sig í hlé. Þess vegna
eru allar horfur á því að þeir Eiríkur
og Jónas Guðmundsson verði sigur-
sælir í prófkjörinu.
Þegar minnst er á gamla vörðinn i
Framsókn fer ekki hjá því að menn
fyllist nokkurri aðdáun á þeim lang-
varandi áhrifum, sem þeir Eysteinn
og Þórarinn hafa haft og sem hafa
vaxiö hér í borginni að nýju, eftir að
Steingrimur Hermannsson tók við
völdum. Furðulega hljótt er um
Eystein Jónsson, siðan hann hætti
formennsku i flokknum. Þó er hann
einn hinna fáu sem lifað hefur og
þekkir af persónulegri reynslu þá
sagnfræöi, sem nú er að koma út í
metsölubókum. Væri raunar ástæða
fyrir fjölmiðla að hafa oftar tal af
Eysteini um liöna pólitíska tið, en
menn verða að kunna að spyrja
hann, annars er hann vís til að leiöa
þá á götur Framsóknarflokksins, því
enn er karlinn snúinn. Þórarinn sér
svo aftur á móti um hina pólitfsku
linu eins og hún birtist i Timanum, en
báðir þessir menn hafa lengi snúið
bökum saman.
Það er þvi mikilsvert snúist þeir
Eysteinn og Þórarinn á sveif með
Eiríki Tómassyni í prófkjörinu. Það
styrkir þennan unga mann, þótt það
ráði ekki úrslitum um sigur hans. En
þegar horft er yfir sviðið sést i raun-
inni enginn annar betur hæfur til að
taka við forustu i borgarmálum fyrir
Framsóknarflokkinn — ef. Kristján
hættir.
Svarthöfði.