Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Side 1
Jf
DAGBLAÐIЗVÍSIR
287. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1983.
HÆGT AÐ LÆKKA
RAFORKUVERÐ
— verdjöfnunargjaldiö 7% of hátt miðað við tekjuáætlun
Verðjöfnunargjald sem lagt er á
alla raforku til heimilisnota mætti
lækka úr 19% í 12% án þess aö það
hefði í för með sér tekjumissi fyrir
ríkissjóð. Ef verðjöfnunargjaldið
verður áfram 19% á næsta ári þá
mun það gefa af sér 136 milljónum
meira í tekjur en áætlað er í fjár-
lögum. Þetta kom fram í máli Stef-
áns Benediktssonar við umræður um
fjárlagafrumvarpið í gærkvöldi en
upplýsingar hans eru fengnar frá
Sambandi islenskra rafveitna.
Verðjöfnunargjald er nú lagt á alla
raforku til heimilisnota. Því er síðan
ráðstafaö til Orkubús Vestfjaröa,
Rafmagnsveitu Siglufjarðar og
Rafmagnsveitu ríkisins til niöur-
greiöslna á raforkuverði í dreifbýli.
Með 19% álagningu á raforkuverð til
heimilisnota mun gjaldið gefa af sér
376 milljónir króna í tekjur á næsta
ári en á fjárlögum næsta árs eru
tekjur af gjaldinu áætíaðar 240
milljónir. Sagði Stefán Benediktsson
að ríkisstjórnin gæti nú valið um að
lækka raforkuverö til heimila eða
nota þaö sem umfram yrði til ann-
arra verkefna.
-ÖEF.
'i VAR EINS OG FALLBYSSUSKOT
m — grjóthnullungur f rá vörubíl þeyttist í gegnum f ramrúðu á bíl og í 13 ára pilt
i
i
„Þetta var eins og fallbyssuskot.
Slíkur var krafturinn á grjót-
■hnullungnum er hann þeyttist í gegn-
um framrúðuna og beint í öxl 13 ára
pilts sem sat í framsætinu við hhðina
á mér. Glerbrot fylgdu á eftir og
nokkur þeirra stungust í piltinn.”
Þannig ■ sagðist Smára
Guðmundssyni, sendibílstjóra úr
Amarholti í Biskupstungum, frá í sam-
tali við DV í gærdag. Atvikið sem hann
er að lýsa varð á Suðurlandsvegi, viö
Rauöavatn, um tíuleytið í gærmorgun.
„Við vorum tveir í bílnum, pilturinn
og ég, og vorum að koma frá Selfossi á
leið til Reykjavíkur. Við Rauðavatn
mættum við tveimur Scania-vörubílum
og það skipti engum togum að grjót-
hnullungurinn þeyttist af öðrum bíln-
um og í framrúðuna. ”
Smári sagði að það væri ótrúleg
mildi að ekki skyldi hafa orðið stór-
slys. Pilturinn væri marinn á öxl en
óbrotinn auk þess hefði hann sloppið
með minni háttar skrámur í andliti.
Þetta er í þriöja skiptið á árinu sem
Smári verður fyrir því að grjót komi
frá vörubílum og brjóti framrúðuna í
bíl hans.
„I þetta skiptið ofbýður mér þó að
þetta skuli koma fyrir. Eg skora á alla
vörubílstjóra að gæta sín á þessu.
i Lögreglan ætti líka að hafa meira eftir-
'lit með malarflutningum vörubíl-
anna.”
Þess má geta að fyrir um tveimur
árum varð banaslys í Mosfellssveit er
'bílstjóri fékk grjót í framrúöu á bíl
sínum og í sig er hann var að mæta
vörubílsemfluttimöl. -JGH.
Átti trompmiða í
Happdrætti Háskólans:
Milljónamær-
mgurífelum
Einhvers staðar í Reykjavík situr
nú maður og bíður þess að fá 2,5
milljónir króna útborgaðar hjá
Happdrætti Háskólans á föstudag-
inn. „Hann getur fengiö ávísun eða
reiðufé, allt eftir óskum,” sagði Guð-
mundur Bjamason hjá aðalumboði
happdrættisins í Reykjavík nú í
morgun. Vinningshafinn óskar nafn-
ileyndar og ætlar sér ekki að koma
fram opinberlega í bráð.
Hæsti vinningurinn, nifaldar 500
þúsund krónur, skiptist í fimm staði,
einn vinningshafinn var svo heppinn
að eiga trompmiða og fékk því í sinn
hlut fimm sinnum 500 þúsund krónur
.eða 2,5 milljónir. Trompmiöi sem
þessi kostar 250 krónur á mánuði eða
3000 krónur á ári. Hinir vinningarnir
fóru til Vestmannaeyja, Bíldudals og
Reykjavíkur.
-EIR.
Trésmiðafélag
Reykjavíkur:
Krefst rannsóknar
áskaðsemi
steinullar
Félagsfundur Trésmiðafélags
Reykjavíkur krefst þess aö fram-
kvæmd verði rannsókn á skaðsemi
málningar, lakks, stein- og glerullar
'og annarra efna sem hugsanlega
geta valdið heilsutjóni og notuð eru í
iðnaði. Auk þess leggur fundurinn
;áherslu á að fyrirhuguö steinuilar-
verksmiöja á Islandi fái ekki starfs-
leyfi fyrr en fyrir liggi að stemull
valdi ekki varanlegu heilsutjóni.
Ástæður þessa eru þær að nýlega
krafðist danskt verkafólk þess að
rannsakað væri hvort stein- og gler-
ull gætu hugsanlega vaidið krabba-
meini. Þá birtust fyrir skömmu í
Danmörku niðurstöður rannsóknar á
heilsufari verkafólks sem vinnur viö
|málningu og lökk. I ljós kom að nær
helmingur þeirra sem rannsakaðir
voru hafði hlotið varanlegt heilsutjón
vegna áhrifa eiturefna.
Þaö er einnig krafa fundarins að
komið verði í veg fyrir notkun þess-
ara eftia hér á landi, nema í undan-
tekningartilfellum, reynist þau geta
valdið varanlegu heilsutjóni.
Þá lýsir fundurinn áhyggjum sín-
um yfir því hve hægt miði til fram-
fara í aðbúnaðarmálum verkafólks.
Ekki sé hægt aö marka verulegar úr-
bætur þrátt fyrir nýjar stofnanir og
lög.
-GB