Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Side 3
DV. MIÐVKUDAGUR14. DESEMBER1983.
3
Manneskjan — leikkonan — baráttukonan
JANE FONDA — hrífandi saga litríkrar
manneskju í mótlœti sem sigrum. Hún átti
örðuga bemsku en brást við áföllum œsku-
áranna af óbugandi lífsþrótti. Sem leik-
kona stóð hún framan af í skugga föður
síns, Henry Fonda, en með vaxandi reynslu
hefur frcegð hennar og frami aukist með
Bræðraborgarstig 16
hverri kvikmynd. Ung að árum tók hún að
beita sér í stjómmálum, tók hatramma af-
stöðu gegn Víetnamstríðinu og hafði ncerri
fórnað frama sínum sem leikkona fyrir lífs-
skoðanir sínar.
Jane Fonda — heillandi saga, heill-
andi manneskju.
Kr. 587.85
AUK hf. Auglýsingastofa Kristinar 83.79
Simi 12923-19156
Halldór Blöndal
alþingismaður:
Kvótakerfi
getur ekki
tekið tillit
til allra
afbrigða
„Eg er í sjálfu sér ekki á móti kvóta-
kerfi þar sem skrapdagakerfið er
gengið sér til húðar og enginn kostur er
góður þessa stundina. En ég er
órólegur yfir þeirri staðreynd að það
er ekki hægt að setja allsherjarkvóta
sem tekur tillit til allra afbrigöa,
aðstæður eru of misjafnar til þess,”
sagöi Halldór Blöndal alþingismaður i
viðtali við DV í gær. Hann var einn
þeirra þingmanna sem gagnrýndi
fyrirkomulagið á umræðum á Alþingi í
fyrrakvöld.
, Aflamenn færast á milli skipa og
taka oft við skipum sem hafa aflað
mun minna áður, útgerðarmenn hafa
keypt eða selt skip sín án tillits til hvað
þau hafa veitt upp á síökastið og hvað á
svo að gera við þau nýju skip, sem eru
á leið til landsins, láta þau fá fy rirfram
dauöadæmdan meðalkvóta?” sagði
Halldór. „Þetta frumvarp er aöeins
rammi og þótt ég búist við að það verði
samþykkt á Alþingi þarf betri tíma til
aö ræða nánari framkvæmd,” sagði
Halldóraðlokum.
-GS.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
„Ekki séö
hvemig fíot-
inn kemst út”
,Á þessari stundu er það alls ekki
séð hvemig flotinn kemst út eftir ára-
mót. Kvótaskiptingin liggur engan
veginn fyrir og eftir að taka
viðkvæmar ákvarðanir um hana.
Síðan eiga útgeröarmenn eftir aö meta
það og vega á þeim grundvelli og í ljósi
undanfarandi en óleystra rekstrar-
vandamála, hvort þeim sé kleift að
senda skipin til veiða,” segir Kristján
Ragnarsson, formaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna.
Spurningin er sú hvort tímabundin
stöðvun ýmissa skipa undanfariö sé
undanfari meiriháttar stöðvunar eða
hvort takist að finna úrræði og full-
nægjandi skipulag á útgerö lands-
manna miðað við stöðuna nú.
„Þær aflatakmarkanir sem þykja
fyrirsjáanlegar hljóta að þýöa minni
vinnu, bæði á sjó og landi, það Uggur í
augum uppi. Þess vegna verða
áreiðanlega einhver skip stopp og ein-
hvers staðar atvinnuleysi sem enginn
getur sagt nánar fyrir um nú.”
Kristján segist að ööru leyti ekkert
geta tjáð sig frekar um stöðu út-
gerðarinnar að sinni. „Eg ætla ekki að
segja fleira um þetta en sjá það gerast
sem ég hef lengi reynt að skýra fyrir
mönnum að myndi gerast. Viö
stöndum aö kvótaskiptingu til þess að
greiða fyrir úrlausnum á öðrum
sviðum. En ég hef ekki orðið var við
neinar úrlausnir á þeim sviöum enn.”
Sjávarútvegsráðherra, HaUdór
Ásgrímsson, skipaði á dögunum sjö
manna nefnd tU þess að taka út aUan út-
gerðarvandann og gera úrbótatUlögur.
Sú nefnd fæst nú við kvótana en síðan
tekur viö beinn rekstrarvandi, hvernig
bregðast á við tugprósenta taprekstri
og miUjarðaskuldum. Þá skal undir-
búa nýtt fiskverð frá 1. febrúar.
I þessari nefnd eru Jón Sigurðsson,
Jón L. Arnalds, Þorsteinn Gislason,
Jakob Jakobsson, Kristján Ragnars-
son, Sigurður Markússon, Oskar
Vigfússon og Guðjón Kristjánsson.
Þeir tveir síðastnefndu skiptast á sem
fuUtrúar sjómannasamtakanna.
-HERB.
isinn priggja ísnjarnartogara, AsDjom, Duntunn vlð Dryggju um oakveotnn tlma. Klmm Keykjavikurtogarar i eigu
tveggja útgerða verða innan tíðar á sömu slóðum og af sömu ástæðum, fiskleysi og taprekstri. DV-mynd S.
NISSEN TRÉVARA
FRÁBÆR
GÆÐA
VARA
-
KUNIGUND
HAFNARSTRÆTltl RVÍK S13469
DÖNSK
GÆÐI
PÓSTSENDUM.