Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Síða 6
6
DV. MIÐVHCUDAGUR14. DESEMBER1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Forréttinn er leikur einn að tHreiOa. Nokkrum sjávardýrum ásamt
kryddi blandað saman.
JÓLASKRAUTIÐ
BÚIÐ TIL ÚR TRÖLLADEIGI
Það er margt sem hægt er að búa
til úr trölladeigi sem er gert úr hveiti,
salti og vatni. Tilvalið er að búa til
jólaskraut úr því. Það er bæði mjög
auövelt og skemmtilegt.
Trölladeig
9 dl hveiti
2 1/2 dl salt
3 1/2 dl vatn
Þessu er öllu hrært vandlega
saman. Deigiö á að vera þannig aö
sem auðveldast sé að móta það og
það á ekki að vera límkennt. Ef til
vill þarf að bæta hveiti eöa vatni í
deigið til að þaö verði eins og það á að
vera. En þegar deigiö er orðiö eins og
maöur vill hafa það er hægt að
hefjast handa. Og þá reynir á hug-
myndaflugið hjá hverjum og einum
því margir eru möguleikarnir. Þaö er
t.d. hægt að búa til jólasveina, engla,
grísi og margt fleira. Þegar hlutirnir
eru fullmótaðir eru þeir þurrkaöir í
ofni í 1—2 klukkustundir í 100—150
gráða heitum ofni. Eftir það þarf að
kæla hlutina áður en hafist er handa
við að mála þá. Best er að nota vatns-
liti eða túss. Það fer vel á að láta
alltaf einn lit þorna áður en byrjað er
á öðrum. Þegar hlutirnir eru full-
málaðir verður að lakka yfir meö
glæru lakki, því annars er hætt viö að
þeir linist upp fljótlega.
Að lokum er vert að benda á að
trölladeig er ekki ætlað til matar, því
það er ekkert sérstaklega gott á
bragðiö. -APH.
Tilraunaeldhús DV Tilraunaeldhús DV
1 tilraunaeldhúsinu í dag útbúum
við léttan forrétt, sjávarrétt og
heimalagaöan ís. Við höfum ákveðið
að aðalrétturinn í fyrirhugaöri jóla-
máltíð verði reykt svínslæri með
ýmsu góðmeti. Uppskrift og
verklýsing af aðalrétti veröur að bíða
þar til í næstu viku, síðustu viku fyrir
jóL Margir hafa rjúpur á borðum á
aðfangadagskvöld (eða einhvern
annan dag yfir hátíöina) svo aö við
látum fljóta meö eina rjúpuuppskrift,
margreynda af sérfræðingum eld-
hússins.
Forrétturinn „Hafið bláa” er
sjávarsinfónía í dúr og moll, hrist
fram úr erminni á skömmum tíma og
auðmeltanleg. Við verðum svoh'tið að
hafa í huga að undirbúningur hverrar
máltíðar taki ekki of langan tíma —
„eldabuskurnar” verða að eiga sinn
frítíma h'ka og njóta jólanna í fjöl-
skyldu- og vinahópi. ísinn er að sjálf-
sögöu hægt að búa th með góðum
fyrirvara, hann geymist vel í lokuðu
íláti i frystinum.
Það er árlegur viðburður á mörgum
heimhum að sjóða rauðkál fyrir jólin,
enda rauðkálið gott með rjúpum,
svínasteUt, lambasteik og fleiri
steikum. Nú er nýtt rauökál komiö í
verslanir og fyrir þá sem ekki hafa
soöið rauökál áður má geta þess að
þetta er hægur vandi. Káhð er skorið
í þunnar ræmur og soðiö við vægan
hita í u.þ.b. eina klukkustund í vatni
og ediki. Hlutföll 1 dl. edik á móti 1
1/2 dl vatni. 1 staðinn fyrir 1 dl af
vatni má nota 1 dl af rifsberjasaft.
Káhð (1 kg) er bragðbætt meö sykri
og örhtlu salti. Eins er mjög gott að
sjóða súr eph með í pottinum. Þetta
var nú smáútúrdúr með rauðkálið,
við skulum huga að forréttinum, þær
Bergljót og Gunnþórunn, sérfræðing-
ar okkar í tUraunaeldhúsinu, eru
komnar meö svunturnar og aht klárt.
Forréttur — „Hafið bláa"
1 dós múslingar (150 gr.)
130 g humar
150 g rækjur
4matsk.maískorn
1/4 agúrka
1/4 paprika, græn eða rauð
2 tesk. mataroha
1/4 tesk. sítrónupipar
2 tesk. sítrónusafi
1 dós sýrður rjómi (200 g )
Salatblöö, agúrkur og tómatar tU
skreytingar og ef tU vUl harðsoðin egg
(skoriníbáta).
1 þennan forrétt kostar hráefni um
170 krónur og er hann áætlaður fyrir
fjóra.
Það má setja aðrar fisktegundir í
forréttmn, tU dæmis lúðu, ýsu, skötu-
sel eöa hörpuskelfisk, allt eftir
efnum, ástæöum og smekk.
Verklýsing
1. Sjóðið humarinn í um það bU fimm
mínútur í léttsöltuðu vatni. Kælið.
2. Látið vökvann síga af
múslingunum.
3. Saxið papriku og agúrku smátt.
4. Blandið öllu saman og kryddið.
Beriö fram í litlum skálum eða hörpu-
skel fyrir hvern mann. Eins má að
sjálfsögðu setja „Hafið bláa” í stóra
skál. Skreytt meö grænmeti. Borið
fram meö sýrðum rjóma og ristuðu
brauði.
Efnið i ísinn góða.
„Hafið bláa”
í forrétt
—og núgga-sérrí-ís sem eftirrétt
Steiktar rjúpur
Aætluð er 1—11/2 rjúpa á mann.
4 rjúpur
1/2 1 mjólk
1/2 1 vatn
25 g smjör tU steikingar
50—100 g spekk
3 dl vatn
1/2 tesk. salt
nokkur einiber
örh'tiU pipar
Dáhtiö er erfitt um vik að áætla
kostnað. Rjúpurnar kosta í dag 125—
135 krónur stk., í ham. Yfirleitt kost-
ar 10 krónur að láta hamfletta hverja
rjúpu.
Verklýsing
1. Hamflettið eöa reytið rjúpurnar og
hreinsið.
2. Leggið þær í mjólkurblöndu (vatn
og mjólk) yfir nótt eöa að minnsta
kosti í nokkrar klukkustundir.
3. Þerrið af r júpunum og spekkdragið
þær. Þá er hníf stungið meðfram
bringubeininu og spekkinu stungið
þarinn.
4. Smjörið hitað á pönnu og rjúpum-
ar brúnaöar. Settar í pott með vatni,
mjólk, kryddi og einiberjum. Soðnar í
ca 45—60 mínútur.
Sósan
30 g smjör
3 matsk. hveiti
5 dl soö
1—2 dl rjómi
salt, pipar
1—2 tesk. rifsberjahlaup
ca 1 matsk. gráöaostur ef viU
eða ca 1 matsk. mysingur
... rifnu súkkulaði blandað saman við.
Buffhamarinn kemur að góðum notum við að mylja núggabitana.
Þeytta rjómanum blandað vel saman við og öHu hellt I form.