Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Side 11
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983.
.11
íslensk
grilíkol
— tveir aðilar hérlendis
ætla að þjóna 120
tonna markaði
Tveir aöilar hérlendis hafa í bígerð
aö hefja framleiöslu viöarkola fyrir
innanlandsmarkaö. Þetta eru Skóg-
rækt ríkisins annars vegar og hins veg-
ar einstaklingur, Bjami Hannesson
vélvirki.
Um 120 tonn af viðarkolum, grillkol-
um öðru nafni, hafa verið flutt inn til
landsins árlega á undanförnum árum.
Viðarkolin notar fólk til aö grilla úti,
ýmist heima viö eða í útilegum.
Smásöluverö hvers kilós er um 65
krónur. Islendingar viröast því greiða
álitlegar fjárhæðir fyrir grillkol á
hverju ári aöa tæpar átta milljónir
króna.
Skógrækt ríkisins hefur þegar keypt
viðarkolaofn í samvinnu viö fleiri
aöila, meðal annars Hálshrepp í Suður-
Þingeyjarsýslu. I þeim hreppi er
Vaglaskógur.
„Viö ætlum aö prófa ofninn upp úr
áramótum,” sagöi Isleifur Sumarliöa-
son, skógarvöröur í Vaglaskógi, en þar
veröur ofninn fyrst um sinn haföur.
„Við höfum hráefnið. Hér eru víð-
lendir skógar sem þarf aö grisja. En
þetta mál er allt í athugun. Þaö vantar
vélar til að köggla viðarkolin,” sagði
Isieifur.
Bjami Hannesson vélvirki, sem er
verktaki í álverinu í Straumsvík, seg-
ist vera kominn skammt á veg meö
sína viöarkolaverksmiðju.
„Eg er búinn aö smíða bróðurpart-
inn af vélunum,” sagöi Bjami. Hann
stefnir aö því aö hefja framleiöslu meö
vorinu. Hann telur aö fyrirtækið þurfi
þrjá starfsmenn.
Bjami hyggst nota sag og spæni úr
trésmiðjum sem hráefni. Hann hefur
leitaö eftir því aö fá húsnæði leigt af
Hafnarfjarðarbæ undir viðarkolaverk-
smiðjuna.
—KMU.
Hvalveiðar
áfram
eftir ’86
— vísindamenn telja
það mögulegt í
rannsóknarskyni
Fyrir skömmu var haldinn fundur á
Hafrannsóknastofnun meö þátttöku
innlendra aðila sem hafa á undanföm-
um árum lagt stund á ýmiss konar
rannsóknir á hvölum hér viö land.
Átta erindi voru flutt og voru sérstakir
gestir fundarins fulltrúar frá Hvai hf.,
Náttúrverndarráöi og sjávarútvegs-
ráöuneytinu.
Aö mati fundarmanna kom margt á-
hugavert fram og var á fundinum
hreyft þeirri hugmynd aö hvalveiöum
yrði haldið áfram hér í rannsóknar-
skyni, eftir aö hvalveiöibannið tekur
fyUilega gUdi 1986.
Voru fundarmenn á því að frá Uf-
fræðilegu sjónarmiöi væri því ekkert
til fyrirstööu, spurningin væri um hin-
ar menningarlegu og siöfræðUegu
ástæður, sem legið heföu tU grundvaU-
ar banninu ööru fremur.
Fundarmenn voru á einu máU um
aö halda rannsóknum óhikaö áfram til
’86 svo aö gleggri vitneskja lægi fyrir
þegar banniö á aö taka gUdi.
Ekkert í samþykkt Alþjóöahval-
veiöiráösins kemur í veg fyrir aö rann-
sóknarveiðar séu stundaöar, þvi að
þaö samþykkti ekki beinUnis algert
veiðibann, heldur veiöikvóta upp á núU
sem hægt er aö hnika til.
—GS
NORDMENDE
•O
„Lengi
getur gott batnað"
Nýja Nordmende myndtækið hefur nú verið gert
tíu sinnum betra og var þó valið af stærri mynd-
bandaleigum vegna gæða og góðrar þjónustu.
SKIPHOLTI 19
REYKJAVÍK — SÍMI 29800.
1. Þráölaus fjarstýring gerir
öll hlaup óþörf, framtíðar-
þægindi.
2. Skyndi-upptaka ef mikið
liggur á.
3. 14 daga upptökuminni gef-
ur mikla möguleika á upp-
töku fram í tímann.
4. Læsanleg myndleit á ní-
földum hraða fram og til
baka.
5. Góð kyrrmynd ef skoða
þarf nánar.
6. Rammi á eftir ramma-
kyrrmynd þannig að hver
hreyfieining á eftir annarri
er möguleg, og þetta er að
sjálfsögðu gert með fjar-
stýringunni.
7. Sjálfvirk fínstilling á mót-
takara.
8. Sjálfvirk bakspólmi.
9. Rakaskynjari.
10. Átta stööva minni.
11. Kvartz-stýrðir mótorar.
12. Digital-teljari þannig að
auðvelt er að skrá hvar
ákveðiö efni er á mynd-
bandinu.
13. Framhlaðrð, tekur minna
pláss.
14. Léttrofar sem eru sam-
hæfðir.
15. Stærð:
Breidd 43,5 cm.
Hæð 13,0 cm.
Dýpt 36,0 cm.
Stutt
lýsing: