Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Qupperneq 23
23
DV. MIÐVIKUDAG'UR 14'. DESEMBEíf 1983:' *'
Skólakrakkar snarmlnukuðu sniffið þegar þeir sáu börmulegar afleiðingar
þess í sjðnvarpinu, en starfshópur um vimuefnamál telur að áhrifanna af
sjónvarpsþættinum muni ekki gæta lengi.
Ekki stafur um sniff
— í öllu fræðslukerfinu
Það hefur enginn þann starfa að
kanna eðli og umfang vímuefna-
neyslu unglinga í Reykjavík og því
eru hugmyndir um umfang málsins
mjög á reiki. Enginn hefur heldur
þann starfa að vinna að stuöningsúr-
ræðum fyrir þá sem ánetjast hafa
vímugjöfum. Og það er ekkert
námsefni til um skaðsemi þessara
efna til að dreifa í skólum og engin
stefna hefur verið mótuð um hvemig
að þessum fyrirbyggjandi aögerðum
skuli staðið.
Starfshópur um vímuefnamál
sem stofnaður var fyrir tveim árum
hefur viðaö að sér miklum gögnum
og upplýsingum um þetta mál. A
grundvelli þess hefur hópurinn nú
mótað og sett fram tillögur til úrbóta
áþessusviði. Leggurhópurinntilað
bætt verði úr öllum ofantöldum atrið-
um. Auk þess aö útideildin verði efld
og gmnnskólakennarar verði upp-
fræddirummálið.
Að sögn Helga Viborg sálfræðings
er það reynsla nágrannaþjóða okkar
að óeðlilega langt hik við aðgerðir
hefur reynst nágrannaþjóðum okkar
dýrkeypt og nú þegar em nokkur ís-
lensk ungmenni varanlega stór-
sködduð eftir sniff og aðrar vímuaö-
ferðir.
Hann sagði að auövitað kostuöu
þessar aðgerðir fjármuni. Fræðslu-
ráð væri þegar búið að samþykkja að
ráöa mann til að vinna að þessum
málum, en það samþykki ætti eftir
að fara fyrir sparnaðarnefnd.
Sem dæmi um áhrifamátt upplýs-
ingastarfsemi um þessi mál nefndi
Helgi aö sér virtist sem stórlega
heföi dregið úr sniffi skólakrakka í
bili eftir hinn áhrifaríka sjónvarps-
þátt þar sem eitt fórnarlamb'þessara
hörmungavarsýnt.
—GS
Pósturogsími:
Lækkuð gjöld fyrir
póstfax- þjónustu
Gjöld fyrir póstfax-þjónústu til
Norðurlandanna — lækkuðu nýlega.
Til Danmerkur, Finnlands, Svíþjóðar,
Noregs og Færeyja verður gjaldið
fyrir póstfax-sendingu frá póststöð til
póststöðvar eftirleiðis 213 krónur ein
Samtök um frjálsan
útvarpsrekstur:
Rás 2 aðeins
skref í áttina
Samtök um frjálsan útvarpsrekst-
ur hafa sent frá sér frétt þar sem þau
óska Þorgeiri Astvaldssyni og sam-
starfsmönnum hans til hamingju með
að útsendingar á Rás 2 skuli vera hafn-
ar.
Með þessu telja samtökin að tekið
hafi verið stórt skref í rétta átt þó aö
langt sé frá að þörf útvarpsnotenda
fyrir aukið val sé fullnægt. Krafan
hljóti því að vera að einkaaðilar fái
leyfi til að reka sjálfstæðar útvarps-
stöðvar.
Það er grundvallarsjónarmið sam-
takanna að heilbrigð samkeppni sé það
eina, sem tryggt geti að hlustendur út-
varps geti notið þeirrar þjónustu, sem
sæmandi sé í nútíma þjóðfélagi.
Með tilliti til þessa skora samtökin
á framkvæmda- og löggjafarvald að
hraða afgreiðsu lagafrumvarps um út-
varpsrekstur í landinu þannig aö þeim
aðilum sem áhuga og getu hafa og full-
nægja þeim skilyrðum, sem sett verða
um rekstur útvarpsstööva, gefist kost-
ur á að hefja starfsemi sem allra fyrst.
—SþS
Homafjörður:
Kviknaði í olíubfl
Frá Júlíu Imsland, fréttaritara DV á
Homafirði:
Haukur Sveinbjörnsson bílstjóri
sýndi mikið snarræði á dögunum þegar
honum tókst að ráða niðurlögum elds í
olíubíl sem hann ekur fyrir Olís á Höfn.
Haukur var að fara með 5 þúsund
lítra af olíu að Hvalnesi í Lóni. Þegar
hann kom að Lónsvegamótum um 5 km
innan við Höfn, sá hann í baksýnis-
speglinum neista og eldtungur út und-
an bílnum. Við vegamótin var kyrr-
stæður flutningabíll og þar sem Hauki
var efst í huga farmurinn, sem hann
var að flytja, hætti hann ekki á að
stansa fyrr en hann var kominn spöl-
korn frá flutningabílnum.
Haukur hóf þá tafarlaust slökkvi-
starf með handslökkvitæki, en þá stóðu
eldtungurnar upp með húsinu og
tanknum og lagði eldinn undan vindi
aftur með bílnum og undir tankinn.
Haukur var með þrjú handslökkvitæki
í bílnum og náði að slökkva eldinn með
þriðja tækinu.
Haukur Sveinbjörnsson fyrir framan olíubilinn sem kviknaði í.
DV-mynd: Ragnar Imsland
Skemmdir á bílnum urðu óveruleg- mun hafa veriö betur búinn slökkvi-
ar. Eldurinn mun hafa kviknað út frá tækjum en almennt gerist.
rafal bílsins. Þess má geta, að hann -GB.
v Hentugar
0 jólagjafir
Lj fyrír
0 bílinn
síða og 158 krónur fyrir hverja
viöbótarsíöu.
Frá einkatæki til póststöðvar verður
gjaldið 55 krónur ein síða og 35 fyrir
viðbótarsíður. Frá póststöð til tækis í
einkaeigu verður gjaldið 198 krónur ein
síða og 148 fyrir viðbótarsíður.
Til Grænlands kostar 590 krónur að
senda póstfax frá póststöð til póst-
stöðvar, 55 krónur frá einkatæki til
póststöðvar og 575 frá póststöð til
einkatækis.
Fyrir póstfax-sendingar til annarra
landa greiöist símtalskostnaður í
samræmi við notaðan tíma hverju
sinni til viðbótar við grunngjöldin eins
og þau eru í gjaldskrá fyrir póstþjón-
ustu á hver jum tíma. —SþS
P
0
VERKFÆRI
SKÍÐABOGAR
OG
SKÍÐAHÖLDUR
HEMLALJÓS í AFTURGLUGGA
Bílavörubú6in
FJÖÐRIN
Skeifan 2 simi 82944
Okkar bogar eru smelltir.
Fást um land allt.
Jko^CLpXM.
Myndir í glugga.
Stærð 55x55 cm — tilvalin og falleg jólagjöf fyrir kr. 360.00 — Scnduin í póstkröfu
ef óskað er. „Allt fyrir gluggann“ c>
m I lsjÁg) Síðumúla 22 - súni 31870
J 111 l\ÍH_/LiX^I‘ Keflavík - sími 92 (2061)