Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Qupperneq 24
24
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983.
íþróttir
íþróttir
iþróttir
íþrótt
íþrótti
Olsen til
Man. Utd. um
áramótin?
„Þaö er meira en líklegt að Ajax taki
tilboði Man. Utd. ef miklir peningar
verða í boði. Hvað sjálfum mér við-
kemur bíð ég þar til eitthvað afgerandi
liggur á borðinu,” sagði danski lands-
liðsmaðurinn Jesper Olsen í viðtaii í
einu af dönsku blöðunum rétt fyrir
helgi. Þar var skýrt frá að stjóri Man.
Utd. — Ron Atkinson — væri nú að reyna
að semja við Ajax um að Olsen byrji að
leika með United strax eftir áramótin.
Sagt er að Man. Utd. vilji greiða hol-
lenska félaginu verulega upphæð ef
það fær Olsen strax — ekki í vor þegar
samningur hans við Ajax rennur út. Til
að fá peninga í fyrirtækið er Atkinson
reiðubúinn aö selja norður-írska lands-
liðsmanninn Norman Whiteside. Þessi
18 ára piltur sem vakti svo mikla at-
hygh á síðasta keppnistímabili hefur
ekki náð sér á strik nú.
hsím
vanníBankok
Sænski tennisleikarinn Björn Borg
dró fram tennisspaðann um helgina.
Lék þar við Chris Lewis, Nýja-Sjá-
landi, og allur ágóði rann til
góðgerðarstarfsemi. Lewis komst í úr-
-slit í síðustu Wimbledon-keppni, mjög
óvænt, en hann hafði þó lítið í Borg að
segja. Svíinn sigraði í þremur Iotum,
6—3,6—4 og 6—2, og stóð leikurinn í 110
mínútur.
hsím
Oskabók
íþróttamannsins!
í bókinni Ólympíuleikar að
fornu og nýju rekur Dr. Ingim-
ar Jónsson sögu Ólympíu-
leikanna. Stórfenglegum
íþróttaviðburðum og minnis-
stæðum atvikum er lýst. Þátt-
töku Islendinga í Ólympíu-
leikunum eru gerð ítarleg skil.
Ólympíuleikar að fornu og
nýju er á þriðja hundrað bls.
Hana prýða um hálft annað
hundrað mynda, þar af marg-
ar litmyndir.
Ólympíuleikar að fornu og
nýju er ómissandi öllum
íþróttaunnendum.
Æskan Laugavegi 56
sími 17336
Jóhannes Eðvaldsson.
„Ánægður að
fá Skota sem
mótherja”
— segir Jóhannes Eðvaldsson sem hefur verið
í sviðsljósinu í skoskum blöðum
Jóhannes Eðvaldsson, fyrirliði
Motherwell, hefur heldur betur verið í
sviðsljósinu í blöðum i Skotlandi eftir
að það varð ljóst að íslendingar léku
gegn Skotum í undankeppni HM í
knattspyrnu.
— Ég er mjög ánægður með að
Skotar eru mótherjar íslands, sagði
Jóhannes í viðtali við Daily Mail og
hann bætti við: — Skoska landsliðið er
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Fimm skíðamenn
á OL í Sarajevo
Ólympíunefnd íslands hefur
ákveðið að fimm islendingar taki
þátt í vetrar-ólympíuleikunum í
Sarajevo í Júgóslavíu sem hefjast í
febrúar. Það verða þrír alpa-
greinamenn og þar af einn kven-
maöur, Nanna Leifsdóttir frá
Akureyri. Fjórir karlar koma til
greina í hin tvö sætin — þeir Árni Þ.
Árnason, Reykjavík, Guðmundur
Jóhannsson, tsafirði, Daníel
Hiimarsson, Dalvík og Sigurður ■
Jónsson, ísafirði. j£j
Tveir göngumenn veröa sendir za
og eru það Einar Ölafsson frá Isa-1
firði og Gottlieb Konráðsson frá ■
Olafsfirði, sem eru nú við æfingar í
Svíþjóð, sjálfskipaðir í þau sæti. ||
Endanlegt val verður ekki til-
kynnt fyrr en í janúar. -SOS. g
„Heppnin með mér”
sagði Ingemar Stenmark
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta-
manniDVíSvíþjóð:
— „Heppnin var með mér aö þessu
sinni en Andreas Wenzel var aftur á
móti óheppinn,” sagði sænski
skíðakappinn Ingemar Stenmark eftir
að hafa borið sigur úr býtum í svig-
keppni heimsmeistarakeppninnar á
skíðum sem fór fram í Courmayeur á
ítalíu í gær.
Stenmark sýndi enn einu sinni
að hann er ekki dauður úr öllum æöum
þegar hann keppti í hinni gríðarlega
erfiöu braut í Courmayeur þar sem
aðeins þriðjungur keppenda náði að
ljúka keppni.
Andreas Wenzel var með langbestan
tíma í fyrri umferðinni en hann varð
síðan - fyrir því óhappi að detta í
brautinni í seinni umferöinni. Það
henti einnig Stíg Strand frá Svíþjóð,
Bandaríkjamanninn Phil Mahre, sem
er handhafi heimsbikarsins og Marc
Girardilli frá Luxemborg.
Stenmark fékk túnann 1:48,97 mín. úr
báðum umferðunum en síðan kom
Júgóslavinn Bojan Krizaj með. 1:49,13 mín.
Steve Mahre varð þriðji með 1:50,19.
Zurbriggen frá Sviss varð fjórði á 1:51,50 og
FransGruber frá Austurríki fimmti á 1:51,71.
Það er greinilegt að „gömlu refimir” ætla
að vera sterkastir í svigkeppninni. Það hafa
ekki orðið kynslóðaskipti í sviginu eins og í
stórsvigi.
-GAJ/-SOS.
ekki það gott að það geti bókað sigur
gegn islendingum.
Skotar eru ánægðir með mótherjana
í HM og segja að aðalkeppinautamir
verði Wales. Þeir benda þó á að skoska
landsliðiö hafi aldrei leikið gegn
Islendingum og að íslenska landsliðið
sé byggt upp á atvinnumönnum frá
Belgíu og V-Þýskalandi.
— „tsland er óskrifaö blað og Islend-
ingar hafa sýnt það undanfarin ár að
þeir eru geysilega erfiðir heim að
sækja — og óútreiknanlegir á útivöll-
um,” segir í Daily Mail. -SOS
Docherty
rekinn f rá
Cambridge
John Docherty, framkvæmdastjóri
Cambridge.var rekinn frá félaginu í
gær. Cambridge hefur leikið þrettán
leiki í röð án sigurs. Docherty hefur
verið framkvæmdastjóri Cambridge í
sex ár, eða síðan hann tók við af Ron
Atkinsson, núverandi „stjóra”
Manchester United.
• Dennis Smith, fyrrum leikmaður
Stoke, sem er nú framkvæmdastjóri
York, hefur verið nefndur sem næsti
framkvæmdastjóri Stoke.
• Ray Clemence, markvörður Tott-
enham, hefur skrifaö undir nýjan
tveggja ára samning við félagiö og
Graham Roberts hefur skrifað undir
þriggja ára samning. -SOS.1
stigahæstur
Eftlr sigurinn á ástralska meistaramótinu í
tennis um helgina er Svíinn ungi, Mats
Wiiander, nú stigahæstur á stigamótum
keppnistimabilsins. Röðin er þannig.
1. Mats Wilander, Svíþjóð, 3101
2. Ivan Lendl, Tékkóslóvakíu, 2969
3. John McEnroe, USA, 2490
4. Jimmy Connors, USA, 2355
5. Yannick Noah, Frakklandi, 16S2
Markaskorarar í yngri f lokkunum:
Mest skorað í úr-
slitaleik KR-IR
Það var mikið fjör í úrslitaleikjum
yngri flokkanna í Reykjavíkurmótinu í
handknattleik í Laugardalshöll á
sunnudagskvöld. Keppt til úrslita í
fimm flokkum en úrslitaleikirnir í
tveimur verða síðar háðir.
1 3. flokki karla léku Fram og Víkingur til
úrslita. Fram sigraði i A-riðli, hlaut 5 stig.
Vann Fylki 11—6 og ÍR 22—16 en gerði jafn-
tefli við Ármann 13—13. Víkingur sigraði í B-
riðli. Hlaut sex stig og sigraði í ölium leikjum
sínum, KR 12-9, Val 8—6 og Þrótt 12-6. i úr-
slitaleiknum við Fram sigraði Víkingur 10—9
(6—4). Mörk Víkings skoruðu Stefán
Steinsson 3, Bjarki Sigurðsson 2, örnólfur
Jónsson 2, Asgeir Sveinsson 2 og Helgi Óskar-
sson 1. Mörk Fram. Jónas Björnsson 4, Ólafur
Vilhjálmsson 3 og Hergeir Elíasson 2.
4. flokkur karla
Þar iéku KR og Fylkir til úrslita. Fylkir
sigraði í ölium leikjum sinum í A-riðii, Vai 8—
3, Víking 8—7 og Fram 7—2. KR sigraði einnig
í öllum leikjum sínum í B-riðli. Ármann 14—4,
IR 11—2 og Þrótt 15—8. i úrslitaleiknum sigr-
aði KR 5—1. Mörk KR: Heimir Guðjónson 2,
Gunnar Gíslason 1, Þorsteinn Guðjónsson 1 og
Ingi Guðmundsson 1. Mark Fylkis: Sigurður
Ólafsson.
5. flokkur karla
Þar léku Valur og Fram til úrslita. Valur
sígraði í A-riðli. Vann alla leikina, Viking 5—
3, KR 9—4 og ÍR 6—2. Fram hlaut 5 stig í B-
riðli. Vann Ármann 5—3 og Fylki 7—1 en gerði
jafntefii við Þrótt 4—4. i úrslitum sigraði
Valur 13—6 (4—1). Mörk Vals: Lárus
Sigurðsson 3, Ólafur Finnbjömsson 3, Dagur
Sigurðsson 2, öm Arason 2, Trausti
Ágústsson 2 og Ánton Markússon 1. Mörk
Fram: Jason Ólafsson 2, Ólafur Bjömsson 2,
Jón Sævarsson 1 og Benedikt Hjartarson 1.
2. flokkur kvenna
Þar iéku KR og ÍR tii úrslita. ÍR vann aila
Ieiki sína í Á-riðli. Fylki 5—4. Fram 7—4 og
Ármann 7—2. KR einnig í B-riðii. Víidng 10—9
og Þrótt 7—3. Í úrslitum sigraði KR ÍR 12—11
(4—3). Mörk KR: Elsa Ævarsdóttir 3,
Sigurborg Sigþórsdóttir 3, Snjólaug Benja-
minsdóttir 3, Ragnheiður Ásgrímsdóttir 2 og
Bryndís Harðardóttir 1. Mörk ÍR:
Hrafnhildur Sigþórsdóttir 5, Hafdís
Guðjónsdóttir 2, Linda Guðmundsdóttir 2 og
Aðalbjörg Karlsdóttir 2.
3. flokkur kvenna
Þar léku Víkingur og Ármann til úrslita.
Vikingur sigraði í öllum leikjum sinum í A-
riöli. Vai 17—1, KR 7—6 og Fram 8—4.
Ármann einnig í B-riöli, Fylki 7—5, Þrótt
12—1 og ÍR 9—5. i úrslitunum sigraðj
Víkingur Ármann 5—3 (5—1). Mörk Víkings
Margrét Hannesdóttir 2, Rakel
Hallgrímsdóttír 1, Oddný Guðmundsdóttir 1,
og Hrund Rúdolfsdóttir 1. Mörk Ármanns
Halla Grétarsdóttir 2 og Bryndis Guðmunds-
dóttir 1. -hsim.
Kristiu Gísladóttir — hin 17 ára efnilega
fimleikastúlka úr Gerplu sést hér með verðlaun sín.
DV-mynd Eirikur Jónsson.
Kristín
íþrótta
maður
w
i
;gja ara samnmg. -SOS. ■ mm /r ■
Wilanderer KopaVOgl
og Sigurður Lárusson
áAkranesi
Að undanförnu hafa íþróttamenn ársins h
hinum ýmsu kaupstöðum verið útnefndir. h
síðustu daga hafa Kópavogsbúar og Skagamei
útnefnt íþróttamenn ársins hjá sér.
• Kristin Gisladóttir úr Gerplu — Islandsmeistar
fimleikum kvenna 1982 og 1983, var nú nefnd íþrótl
maður Kópavogs í gær en það er Rotaryklúbbur Kóf
vogs sem stendur fyrir útnefningunni — hefur gert þ
síðan 1974.
• Sigurður Lárusson, fyrirliði Islands- og bikarmeL
ara Akraness, var útnefndur íþróttamaður ársins
Akranesi.
• Ungmennafélag Keflavíkur hefur útnefnt Magni
Hauksson júdókappa sem „íþróttamann UMFK”
Þorsteinn Bjarnason, iandsliðsmarkvörður i kna
spymu, var útnefndur „knattspymumaður UMFK”.
riSC
Magnús Hauksson og Þorsteinn Bjaraason
vora menn órsins hjó UMF Keflavíkur.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótl