Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Síða 29
c«ai aaaMaaaa .m aunAaojcvoiM. vo
DV. MIÐVIKUDAGUE14. DESEMBER1983.
29
(.1 l>I.MC;iK;K)NSSON:
BIVREIÐIK A ÍSLANDI
1904 -1930 1
Bilar á ísla
/fi
m
4
Menning
Menning
Árdagar bflsins í
máli og myndum
Kristinn Snæland:
Bflar á íslandi í myndum og máli 1904—1922.
175 bls.
lltgefandi öm og örlygur.
Áhugamenn um bíla og upphaf bUa-
aldar á Islandi fá sinn skammt svo um
munar þessa dagana. Ut eru komnar
tvær bækur sem fjalla um upphaf bíls-
ins hér á landi, ritverk Guölaugs Jóns-
sonar í tveim bindum og bók sú sem
hér er um f jallaö. Ögerlegt er aö bera
þessar tvær bækur saman þótt þær
fjalli um sama tímabil og viöfangsefni.
Bók Kristins Snælands er gefin út að
frumkvæði Fombílaklúbbs Islands.
Hefur sá félagsskapur lagt áherslu á
að safna ljósmyndum frá fyrstu ára-
tugum bílsins hér á landi. Einn þeirra
sem hefur verið manna ötulastur aö
safna myndum fyrir klúbbinn er
Bjami Einarsson í Túni, sem er jafn-
framt heiðursfélagi Fombílaklúbbs-
ins. Bjami hefur dregið að sér mikinn
fróðleik um upphaf bílaaldar á Islandi
og kann að segja sögu flestra þeirra
mynda sem í bókinni em.
fjórhjóladrifsbílsins sem hingaö kom
áriö 1927.
I bókinni er fjallað um þátt stjórn-
valda í afskiptum vegna tilkomu bíl-
anna og eins umferðar- og lögreglumál
Menn tóku bílunum á misjafnan
hátt. Umferðin eykst og eins segir i
bókinni „Innanbæjarakstur er að
mestu óþarfur, venjulegast eru það
einhverjir „apakettir” i buxum eða
Bókmenntir
Jóhannes Reykdal
Myndir segja sögu
I þessari bók eru þaö myndirnar sem
segja mesta söguna. I bókinni em 185
myndir auk þess sem birtar eru f jöl-
' margar auglýsingar frá árdögum bíla
hér á landi.
I bókinni eru upphafsdögum bílanna
gerð góö skil, svo og upphafi bílastöðva
og leiguaksturs. Gefa fjölmargar
auglýsingar frá þeim tíma góða mynd
af þeirri samkeppni sem var á milli
þeirra aðila sem stunduðu leiguakstur
og áætlunarferðir á þessum tíma.
Fyrstu almenningssamgöngur á ís-
landi fóru þá fram með fólksbílum sem
gátu flutt á milli 4 og 14 farþega í einu.
Varð bíllinn fljótt vinsæll ferðamáti
þótt nokkuð dýrt væri á þeirra tíma
mælikvaröa að ferðast meö bílunum.
Gerir Kristinn í bókinni góða grein fyr-
ir starfsemi bifreiðastöðvanna í ár-
daga bílaaldarinnar.
Vöruflutningar með bílum hófust
með Grundarbílnum veturinn 1907.
Grundarbíllinn var þaö sem í dag væri
kallað sendiferðabíll, en eiginlegur
vörubíll kom fyrst til landsins 1914 og
síðan má segja aö vörubíllinn hafi tek-
iö við sem helsta flutningatækið. Vöru-
bílamir uröu strax vinsælir sem flutn-
ingatæki, enda afköst þeirra mun
meiri en gömlu hestvagnanna. Gerir
Kristinn góöa grein fyrir þætti vörubíl-
anna í máli og myndum, jafnframt því
að birtar eru auglýsingar frá þessum
tíma sem sýna þátt vörubílsins í sam-
göngum þess tíma.
Annar fróðleikur
Kristinn lætur ekki við það sitja að
f jalla um bíla þessa tíma heldur lætur
hann fljóta með fróöleik um önnur öku-
tæki sem þá fluttust hingað til lands.
Er sagt frá bifbjólum svo og dráttar-
vélumog komu þúfnabananna. Einnig
tilkomu fyrstu snjóbílanna auk fyrsta
pilsum, sem eru að „flotta” sig með
því aö aka í bifreið fram og aftur og í
hring á götunum og þá helst á þeim
fjölfömustu”. Þannig var viðhorf
margra í árdaga bílsins hér á landi.
Kristinn fjallar um þá ný ju stétt sem
fljótlega varö til meö tilkomu bilanna,
bílstjórana, og starfsemi bifreiðafélag-
anna sem sett voru á laggirnar til
reksturs bílanna. Konur og bílar eru
einn kaflinn en konurnar létu snemma
til sín taka í upphafi bílanna og fyrsta
konan hóf akstur leigubíls í Reykjavík
1920.
Vega- og gatnagerð var í upphafi
ekki sem skyldi fyrir þessi nýju farar-
tæki, en um þær breytingar sem þar
urðu á er fjallað í einum kafla bókar-
innar.
Góður frágangur
Helstu einkenni þessarar bókar er
góöur og aögengilegur frágangur.
Sigurþór Jakobsson sá um hönnun
bókarinnar og hefur honum farist það
verk einkar vel úr hendi. Fyrir bragöið
verður bókin þægileg aflestrar og
heildarsamspil mynda og texta gott.'
Fyrst og fremst eru það myndimar
sem gefa bókinni gildi enda hefur það
veriö sagt að ein mynd segi meira en
þúsund orð. Það tímabil sem bókin nær
. yfir spannar upphaf bíla á Islandi og
síðan áratuginn 1913 til 1922 sem segja
má að hafi verið bemskuár bílsins hér
á landi.
Enn er ósögð sagan frá þeim tíma til
dagsins í dag, en þá sögu þarf að segja
áður en fennir í spor þeirra er lögðu
veginn.
-JR
P®(kO(fm)©
Nýkomin húsgögn
frá
STÓLAR -
BORÐ
OG RÚM
Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmá/a
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121Sími 10600l
Gjafapakkningar
fáanlegar
Fœst í 6etri
snyrtivömversíumim
og aþótekum