Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1983, Side 44
44
DV. MIÐVIKUDAGUR14. DESEMBER1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Tuskudúkkuædi
f Bandaríkjunum
—2 særðir, 10 handteknir
Hversu ótrúlegt sem þaö kann aö
virðast geisar tuskudúkkuæði í
Bandarikjunum um þessar mundir.
Fólk stendur að sögn í biöröðum við
verslanir til að tryggja sér eintak í
tíma og allir eru tilbúnir að greiða sem
svarar 600—1500 íslenskum krónum
fyrir stykkið. Hér eru heldur ekki
neinar venjulegar dúkkur á feröinni,
Cabbage Patch Kids nefnast þær á
frummálinu og er framleiðslunni
þannig háttaö að engar tvær dúkkur
eru eins. Munurinn getur legið í hára-
lit, spékoppum, húðlit, hrukkum
o.s.frv., ættleiðingarskjal fylgir
hverjum grip þannig að hér er um að
ræða nýjan heimilismeðlim sem er sér-
stakur á sinn hátt líkt og venjuleg
börn. Framleiðandinn sendir svo eig-
andanum heillaóskaskeyti á afmælis-
dögum dúkkunnar, þ.e.a.s. á söludeg-
inum.
Stúlkan á myndinni é tvær Cabbage
Patch Kids-dúkkur og þar af
loiðandi einnig tvö ættieiöingar-
skjöl sem fylgja þeim.
Eftirspurn hefur verið meiri en
framboð að undanförnu en framleið-
andinn á von á 2,5 milljónum dúkka frá
Hong Kong þannig aö allir ættu að fá
sitt f yrir jólin.
Fram til þessa hafa tveir særst og 10
veriö handteknir í átökum utan við
verslanir þar sem dúkkumar hafa ver-
ið til sölu. Spaugsamir plötusnúöar út-
varpsstöövar einnar tilkynntu hlust-
endum sínum að B-29 sprengjuþota
myndi varpa niður heilum gámfarmi
af tuskudúkkum þessum á íþróttavöll
staðarins á tilteknum tíma. Voru
menn beðnir um að vera með krítar-
kortin sín á lofti svo flugmaðurinn gæti
myndað númer þeirra og rukkað eftir
á.
Tugir manna mættu á völlinn og
jafnmörg krítarkort bar við himin —,
en sprengjuflugvélin meö hinum eftir-
sótta varningi lét á sér standa....
„Nær því allt sem við seljum er
íslensk framleiðsla,” sagöi Gerður
Pálmadóttir, kaupkona í Flónni, við
Bjamleif ljósmyndara þegar sá
síöarnefndi var staddur á tísku-
sýningu á Hótel Sögu um síðustu
helgi. „Það er alls ekki ódýrara aö
láta sauma allt hér heima en á móti
kemur að það er miklu
skemmtilegra að standa í þessu
þannig. Við spörum gjaldeyri og út-
99%
íslenskt
vegum fjölda saumakvenna atvinnu
sem annars hefðu e.t.v. ekkert að
gera,” sagði Gerður og Bjamleifur
kinkaði kolli fullur áhuga. „Það er
ekki nein ein lína í tískunni í dag, hún
er einstaklingsbundin, ég held aö
fólk vilji nú helst að efnið fái aö njóta
sín frekar en ein ákveðin lína. Núna
má nota peysu fyrir trefil eða blússu
fyrir kjól og vera samt smart. Einnig
þykir mér athyglisvert að karlmenn
eru famir að ganga í síðum nær-
buxum undir jakkafötunum, það
hlýtur að vera til bóta, og ekki verra
að nærbuxurnar séu íslenskar,”
sagði Gerður. Á meöan tók
Bjarnleifurmynd.
Þórir Hersveinsson, lögregkimaður númer 11, fylgist með öndinni sem hann
bjargaðiá 11. stundu. DV-myndS.
OndfSst
IIS
hjargaðáll.stundu
Það mátti ekki tæpara standa við
tjömina í fyrri viku. Fullorðin önd sat
föst í ís og gat sig ekki hrært. Félagar
hennar fylgdust með en gátu lítið að-
hafst — með hverri minútu sem leið
festist öndin betur (ef þannig má aö
oröi komast). Á elleftu stundu bar að
lögreglumann númer 11, Þóri
Hersveinsson, og tókst honum með
lagni að ná öndinni upp úr ísnum. Var
þá mjög af henni dregið og stóð hún
lengi stjörf á meðan hún var að jafna
sig á tjarnarbakkanum. Áf augnaráði
hennar mátti skilja að hún hlakkaöi til
vorsins þegar ísa leysir og flest verður
lausaraíreipunum... -EIR.
ER VERIÐ
AÐTALA
'4r
„Eg man ekki hvenær þessi mynd
var tekin, en hún er að öllum líkindum
frá upphafi bítlaæðisins þegar allt
ætlaði um koU að keyra út af síöa
hárinu,” sagði Guðlaugur Bergmann
Kamabæjarforstjóri er hann var
spurður um þessa ágætu uppstiUingu
sem gæti heitið útvarpsviðtal.
„Eg var alltaf að verja síða hárið í
þá daga, fóUc hélt að aUir karimenn
með sítt hár væru lúsugir en ekkert var
amast við kvenfólkinu. Það vom
skrifaðar margar greinar í blöð, bæði
lærðar og ólærðar, og útvarpið tók að
sjálfsögðu líka þátt íþessu.”
Á myndinni eru taUð frá vinstri:
Pétur Steingrimsson tæknúnaður,
Ásdís Skúladóttir, Inga Huld Hákonar-
dóttir og loks Guðlaugur Bergmann.
Takið eftir mjólkurhymunni.