Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Page 18
18 MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986. Iþróttir i Spánverjinn | vann j Wilander j - í úrslitum í tennis I Það urðu óvænt úrslit á opna " sænska meistaramótinu í tennis I sem lauk í Bástad í gær. Til úr- ■ slita léku Svíinn Mats Wilander I og Spónverjinn Emilio Sanchez. ISpánverjinn fór með sigur af hólmi eftir æsispennandi og Iskemmtilega úrslitaviðureign. Hann sigraði 7-6, 4-6 og 64. | Spánverjinn Sanchez var að Ivonum ánægður með sigurinn. „Þetta er stærsti sigurinn á mín- Ium ferli,“ sagði hann. Hann hafði þó sigrað í tveim minni háttar I mótum fyrr á árinu. Sanchez * vann Stefan Edberg í undanúr- I slitum. I Wilanderhafðiekkiáðurtapað ■ leik í Bástad og það þó hann I hefði leikið þar 22 leiki á ferlin- _ um. Hann vann „Svíabanann“ I Mecier í undanúrslitum. . -SMJ I • Ballesteros. Ballesteros meistari - í Hollandi Spánveijinn frægi, Severiano Ballesteros, sigraði með miklum yfirburðum á opna hollenska meistaramótinu í golfi sem lauk í Noordwijk í gær. Lék hringina góra á 271 höggi ( 69, 63, 71 og 68) og varð átta höggum á undan næsta manni. Það var landi hans, Jose Rivero, sem lék á 279 höggum. Síðan komu Philip Parkin, Bretlandi, og Vicente Femandes, Argentínu, á 280 höggum. hsím Markvörður Marokkó - til Majorka Baddou Zaki, Marokkó, sem þótti einn albesti markvörðurinn í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó í sumar, skrifaði í gær undir samning við spánska liðið Majorka sem vann sér sæti í 1. deild í vor. Sþánska félagið greiddi rúmar fimm milljónir króna fyrir leikmanninn. Hann lék áður með Wydad i Casa- blanca og var fyrirliði HM-liðs Marokkó. hsím Þorsteinn Geirsson (nr. 15) skorar fyrra mark Blikanna með fallegu skoti. DV-mynd Brynjar Gauti. „Við förum ekki niður “ - sagði Jón Hermannsson þjálfari UBKf eftir 2-2 jafntefli við ÍBV „Við vorum mjög slakir í þessum leik og það er greinilegt að þreyta situr í leik- mönnum mínum eftir bikarleikinn erfiða. Við förum hins vegar ekki niður í aðra deild,“ sagði Jón Hermannsson, þjálfari UBK, eftir að lið hans hafði gert jafntefli við Vestmannaeyinga á Kópavogsvelli á laugardag. Hvort liðið skoraði tvö mörk eftir að Blikamir höfðu verið 2-0 yfir í hálfleik. Þama áttust við tvö neðstu lið deildarinnar og jafntefli var því vonbrigði fyrir bæði liðin sem þurftu svo sannarlega á þrem stigum að halda. Blikarnir betri í fyrri hálfleik Liðin þreifuðu rólega fyrir sér í byrjun leiksins en á 13. mínútu náðu Blikamir for- ustunni í leiknum með fallegu marki. Aukaspyma var dæmd á ÍBV rétt fyrir utan hægra vítateigshomið. Guðmundur Valur Sigurðsson renndi boltanum til hliðar inn í vítateiginn og þaðan skaut Þorsteinn Geirs- son föstu skoti í netið hjá Vestmannaeyja- liðinu. Um miðjan hálfleikinn vom þeir félagar aftur á ferðinni þegar Guðmundur Valur gaf vel fyrir mark ÍBV en Þorsteinn skall- aði rétt fram hjá. Vestmannaeyingar áttu fáar umtalsverðar sóknir og mun meiri kraftur var í Blikunum með Guðmund Val, Þorstein og Rögnvald sem aðaldrifíjaðrir liðsins. Hinn spræki framheiji þeirra, Jón Þórir Jónsson, varð að yfírgefa völlinn rétt fyrir hálfleik eftir mikið samstuð við Þor- stein Gunnarsson, markvörð ÍBV. En rétt eftir að Jón Þórir var borinn af leikvelli kom annað mark Breiðabliks, reyndar á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins. Rögnvaldur fékk knöttinn hægra megin í vítateignum og þrumaði honum efst í bláhomið á marki IBV. Algerlega óveijandi fyrir Þorstein markvörð sem stóð sig mjög vel í leiknum. Staðan 2-0 í hálfleik og flestir héldu að úrslitin væru nú ráðin. En svo var aldeilis ekki. Eyjamenn gáfust ekki upp Vestmannaeyingar komu ákveðnir til leiks í síðari bálfleik og á 49. mínútu var dæmd vítaspyma á UBK eftir að boltinn fór í hönd eins vamarmanns þeirra. Jóhann Georgsson skoraði úr vítaspymunni og nú gat allt gerst. En það vom Blikamir sem náðu yfirhendinni eftir markið og Þorsteinn Gunnarsson bjargaði glæsilega í tvígang. Fyrst var Kögnvaldur í dauðafæri eftir send- ingu Ingjaldar en Þorsteinn varði og örstuttu síðar komst Guðmundur Guð- mundsson í gegn en Þorsteinn bjargaði enn einu sinni. Og þegar hér var komið sögu urðu þáttaskil í leiknum. Ómar Jóhannes- son var sendur inn á og þessi skipting virkaði eins og vítamínsprauta á Vest- mannaeyinga. Á sama tíma var eins og Blikamir misstu móðinn. Og á 81. mínútu, eftir þungar sóknir, tókst Eyjamönnum að jafna. Umadeild aukaspyma var dæmd rétt utan vítateigs UBK og Jóhann Georgsson skaut hörkuskoti í stöng Blikamarksins og boltinn hrökk beint út þar sem Sighvatur Bjamason fleygði sér fram og skallaði knöttinn inn fyrir marklínuna og þar með höfðu Vestmannaeyingar náð jöfnu, 2-2. Síðustu mínútumar voru Eyjamenn mun nær því að skora þriðja markið en Tómas Tómasson missti boltann frá sér í upplögðu færi og Öm Bjamason varði gott skot frá Tómasi skömmu síðar. Jafnteflið var því staðreynd og Eyjamenn em svo gott sem fallnir þrátt fyrir að hafa sýnt svo mikla baráttu og tekist að jafna leikinn. Blikamir eiga enn ágæta möguleika á að halda sæti sínu en til þess verða þeir að spila mun betur. Þorsteinn Geirsson var besti maður þeirra og þeir Iíögnvaldur, Guðmundur Valur og Ingvaldur stóðu sig vel. Ómar Jóhannesson var mjög góður þær 30 mínútur sem hann spilaði. Lið Eyja- manna virkaði mun betur eftir að Ómar kom inn á, eins og fyrr segir. Einnig var Þor- steinn mjög góður í marki Eyjamanna, aðrir vom í meðallagi. Liðin vom þannig skipuð: UBK: Öm Bjamason, Heiðar Heiðarsson, Ingvaldur Gústafsson, Magnús Magnússon, Ólafur Bjömsson, Jón Þórir Jónsson (Steindór Elíasson 44. mín.) Helgi Ingason (Gunnar Gylfason 58. mín.) Guðmundur Guðmundsson, Guðmundur Valur Sigurðs- son, Rögnvaldur Rögnvaldsson, Þorsteinn Geirsson. ÍBV: Þorsteinn Gunnarsson, Þórður Hall- grímsson, Viðar Elíasson, Elías Friðriksson, Jón Bragi Amarsson, Sighvatur Bjamason, Ingi Sigurðsson, Bergur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson (Tómas Tómasson 70. mín.), Jón Atli Gunnarsson (Ómar Jóhannesson 60. mín.) Jóhann Georgsson. Dómari var Þóroddur Hjaltalín og dæmdi hann vel. Línuverðir vom Baldur Scheving og Ólafur Ragnarsson. Gult spjald: Bergur Ágústsson, ÍBV. Maður leiksins: Þorsteinn Geirsson, UBK. Róbert. Samveldisleikamir í Edinborg: Kanadamaðurinn kom langfyrstur Daley Thompson - byrjar vöm sína í ti [ílhro, Uinni f Það var talsvert spenna á Samveld- isleikunum í Edinborg í gær en keppni er þar nú í fúllum gangi. 1 úrslitum 100 m hlaupsins hafði Kanadamaður- inn Ben Johnson algjöra yfirburði. Sigraði á 10,07 sek. en harrn er nú án efa fljótasti maður heims. í forkeppn- inni var hann í algjörum sérflokki. Það merkilega var að í fréttaskeytum Reuters af leikunum var ekkert getið um hveijir komu næstir Johnson í úrslitahlaupinu. Keppnin í tugþraut hefst í dag og þar verða allra augu á ólympíumeist- aranum Daley Thompson, Englandi. Það er ekki oft sem hann keppir í tug- þrautinni en þegar hann er með má alltaf húast við stórafrekum. Thomp- Óvænt úrslit í 400 m hlaupunum son varð ólympíumeistari í Moskvu 1980 og einnig í Los Angeles 1984. Á nú einn heimsmetið í tugþrautinni eft- ir að nýr stigaútreikningur tók gildi en átti heimsmetið áður með Hingsen, Vestur-Þýskalandi, sem hann sigraði auðveldlega í keppninni í Los Ange- les. Jafnaði þá heimsmet þess þýska. Thompson er núverandi samveldis- meistari og ekki er reiknað með að nokkur geti gefið honum keppni í Edinborg. Keppni lauk í sjöþraut kvenna í gær og var ótrúlega spennandi. Judy Simp- son, Englandi, sigraði. Eftir spjótkast- keppnina var hún 23 stigum á eftir Jane Flomming. Ástralíu. en tókst að Johnson í mark vinna muninn upp í síðustu greininni, 800 m hlaupinu. Sigraði með fjögurra stiga mun. Mjög óvænt úrslit urðu í 400 m, bæði hjá körlum og konum. Ástralíu- maðurinn Darren Clark, sem komst i úrslit í 400 á ólympíuleikunum í LA og varð þar fjórði, var talinn öruggur með sigur. Það fór á annan veg. Enski hlauparinn Roger Black hafði náð honum eftir 200 m og hélt forustunni til loka þrátt fyrir erfiðan mótvind í lokin. í 400 m hlaupi kvenna var Kat- hy Cook, Englandi, sigurstranglegust. Hún lenti hins vegar á ystu brautinni og eftir aðeins 60 metra hafði Dabbie Flintoff náð henni og varð fyrst í mark. hsím

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.