Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1986, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 1986.
Iþróttir
i Spánverjinn
| vann
j Wilander
j - í úrslitum í tennis
I Það urðu óvænt úrslit á opna
" sænska meistaramótinu í tennis
I sem lauk í Bástad í gær. Til úr-
■ slita léku Svíinn Mats Wilander
I og Spónverjinn Emilio Sanchez.
ISpánverjinn fór með sigur af
hólmi eftir æsispennandi og
Iskemmtilega úrslitaviðureign.
Hann sigraði 7-6, 4-6 og 64.
| Spánverjinn Sanchez var að
Ivonum ánægður með sigurinn.
„Þetta er stærsti sigurinn á mín-
Ium ferli,“ sagði hann. Hann hafði
þó sigrað í tveim minni háttar
I mótum fyrr á árinu. Sanchez
* vann Stefan Edberg í undanúr-
I slitum.
I Wilanderhafðiekkiáðurtapað
■ leik í Bástad og það þó hann
I hefði leikið þar 22 leiki á ferlin-
_ um. Hann vann „Svíabanann“
I Mecier í undanúrslitum.
. -SMJ
I
• Ballesteros.
Ballesteros
meistari
- í Hollandi
Spánveijinn frægi, Severiano
Ballesteros, sigraði með miklum
yfirburðum á opna hollenska
meistaramótinu í golfi sem lauk
í Noordwijk í gær. Lék hringina
góra á 271 höggi ( 69, 63, 71 og
68) og varð átta höggum á undan
næsta manni. Það var landi
hans, Jose Rivero, sem lék á 279
höggum. Síðan komu Philip
Parkin, Bretlandi, og Vicente
Femandes, Argentínu, á 280
höggum. hsím
Markvörður
Marokkó
- til Majorka
Baddou Zaki, Marokkó, sem
þótti einn albesti markvörðurinn
í heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó í sumar, skrifaði í gær
undir samning við spánska liðið
Majorka sem vann sér sæti í 1.
deild í vor. Sþánska félagið
greiddi rúmar fimm milljónir
króna fyrir leikmanninn. Hann
lék áður með Wydad i Casa-
blanca og var fyrirliði HM-liðs
Marokkó. hsím
Þorsteinn Geirsson (nr. 15) skorar fyrra mark Blikanna með fallegu skoti.
DV-mynd Brynjar Gauti.
„Við förum ekki niður “
- sagði Jón Hermannsson þjálfari UBKf eftir 2-2 jafntefli við ÍBV
„Við vorum mjög slakir í þessum leik
og það er greinilegt að þreyta situr í leik-
mönnum mínum eftir bikarleikinn erfiða.
Við förum hins vegar ekki niður í aðra
deild,“ sagði Jón Hermannsson, þjálfari
UBK, eftir að lið hans hafði gert jafntefli
við Vestmannaeyinga á Kópavogsvelli á
laugardag. Hvort liðið skoraði tvö mörk
eftir að Blikamir höfðu verið 2-0 yfir í
hálfleik. Þama áttust við tvö neðstu lið
deildarinnar og jafntefli var því vonbrigði
fyrir bæði liðin sem þurftu svo sannarlega
á þrem stigum að halda.
Blikarnir betri
í fyrri hálfleik
Liðin þreifuðu rólega fyrir sér í byrjun
leiksins en á 13. mínútu náðu Blikamir for-
ustunni í leiknum með fallegu marki.
Aukaspyma var dæmd á ÍBV rétt fyrir utan
hægra vítateigshomið. Guðmundur Valur
Sigurðsson renndi boltanum til hliðar inn í
vítateiginn og þaðan skaut Þorsteinn Geirs-
son föstu skoti í netið hjá Vestmannaeyja-
liðinu.
Um miðjan hálfleikinn vom þeir félagar
aftur á ferðinni þegar Guðmundur Valur
gaf vel fyrir mark ÍBV en Þorsteinn skall-
aði rétt fram hjá. Vestmannaeyingar áttu
fáar umtalsverðar sóknir og mun meiri
kraftur var í Blikunum með Guðmund Val,
Þorstein og Rögnvald sem aðaldrifíjaðrir
liðsins. Hinn spræki framheiji þeirra, Jón
Þórir Jónsson, varð að yfírgefa völlinn rétt
fyrir hálfleik eftir mikið samstuð við Þor-
stein Gunnarsson, markvörð ÍBV. En rétt
eftir að Jón Þórir var borinn af leikvelli kom
annað mark Breiðabliks, reyndar á síðustu
mínútu fyrri hálfleiksins. Rögnvaldur fékk
knöttinn hægra megin í vítateignum og
þrumaði honum efst í bláhomið á marki
IBV. Algerlega óveijandi fyrir Þorstein
markvörð sem stóð sig mjög vel í leiknum.
Staðan 2-0 í hálfleik og flestir héldu að
úrslitin væru nú ráðin. En svo var aldeilis
ekki.
Eyjamenn gáfust
ekki upp
Vestmannaeyingar komu ákveðnir til
leiks í síðari bálfleik og á 49. mínútu var
dæmd vítaspyma á UBK eftir að boltinn fór
í hönd eins vamarmanns þeirra. Jóhann
Georgsson skoraði úr vítaspymunni og nú
gat allt gerst. En það vom Blikamir sem
náðu yfirhendinni eftir markið og Þorsteinn
Gunnarsson bjargaði glæsilega í tvígang.
Fyrst var Kögnvaldur í dauðafæri eftir send-
ingu Ingjaldar en Þorsteinn varði og
örstuttu síðar komst Guðmundur Guð-
mundsson í gegn en Þorsteinn bjargaði enn
einu sinni. Og þegar hér var komið sögu
urðu þáttaskil í leiknum. Ómar Jóhannes-
son var sendur inn á og þessi skipting
virkaði eins og vítamínsprauta á Vest-
mannaeyinga. Á sama tíma var eins og
Blikamir misstu móðinn. Og á 81. mínútu,
eftir þungar sóknir, tókst Eyjamönnum að
jafna. Umadeild aukaspyma var dæmd rétt
utan vítateigs UBK og Jóhann Georgsson
skaut hörkuskoti í stöng Blikamarksins og
boltinn hrökk beint út þar sem Sighvatur
Bjamason fleygði sér fram og skallaði
knöttinn inn fyrir marklínuna og þar með
höfðu Vestmannaeyingar náð jöfnu, 2-2.
Síðustu mínútumar voru Eyjamenn mun
nær því að skora þriðja markið en Tómas
Tómasson missti boltann frá sér í upplögðu
færi og Öm Bjamason varði gott skot frá
Tómasi skömmu síðar.
Jafnteflið var því staðreynd og Eyjamenn
em svo gott sem fallnir þrátt fyrir að hafa
sýnt svo mikla baráttu og tekist að jafna
leikinn. Blikamir eiga enn ágæta möguleika
á að halda sæti sínu en til þess verða þeir
að spila mun betur. Þorsteinn Geirsson var
besti maður þeirra og þeir Iíögnvaldur,
Guðmundur Valur og Ingvaldur stóðu sig
vel. Ómar Jóhannesson var mjög góður þær
30 mínútur sem hann spilaði. Lið Eyja-
manna virkaði mun betur eftir að Ómar kom
inn á, eins og fyrr segir. Einnig var Þor-
steinn mjög góður í marki Eyjamanna, aðrir
vom í meðallagi.
Liðin vom þannig skipuð:
UBK: Öm Bjamason, Heiðar Heiðarsson,
Ingvaldur Gústafsson, Magnús Magnússon,
Ólafur Bjömsson, Jón Þórir Jónsson
(Steindór Elíasson 44. mín.) Helgi Ingason
(Gunnar Gylfason 58. mín.) Guðmundur
Guðmundsson, Guðmundur Valur Sigurðs-
son, Rögnvaldur Rögnvaldsson, Þorsteinn
Geirsson.
ÍBV: Þorsteinn Gunnarsson, Þórður Hall-
grímsson, Viðar Elíasson, Elías Friðriksson,
Jón Bragi Amarsson, Sighvatur Bjamason,
Ingi Sigurðsson, Bergur Ágústsson, Lúðvík
Bergvinsson (Tómas Tómasson 70. mín.),
Jón Atli Gunnarsson (Ómar Jóhannesson
60. mín.) Jóhann Georgsson.
Dómari var Þóroddur Hjaltalín og dæmdi
hann vel. Línuverðir vom Baldur Scheving
og Ólafur Ragnarsson.
Gult spjald: Bergur Ágústsson, ÍBV.
Maður leiksins: Þorsteinn Geirsson,
UBK.
Róbert.
Samveldisleikamir í Edinborg:
Kanadamaðurinn
kom langfyrstur
Daley Thompson - byrjar vöm sína
í ti [ílhro, Uinni f
Það var talsvert spenna á Samveld-
isleikunum í Edinborg í gær en keppni
er þar nú í fúllum gangi. 1 úrslitum
100 m hlaupsins hafði Kanadamaður-
inn Ben Johnson algjöra yfirburði.
Sigraði á 10,07 sek. en harrn er nú án
efa fljótasti maður heims. í forkeppn-
inni var hann í algjörum sérflokki.
Það merkilega var að í fréttaskeytum
Reuters af leikunum var ekkert getið
um hveijir komu næstir Johnson í
úrslitahlaupinu.
Keppnin í tugþraut hefst í dag og
þar verða allra augu á ólympíumeist-
aranum Daley Thompson, Englandi.
Það er ekki oft sem hann keppir í tug-
þrautinni en þegar hann er með má
alltaf húast við stórafrekum. Thomp-
Óvænt úrslit í 400 m hlaupunum
son varð ólympíumeistari í Moskvu
1980 og einnig í Los Angeles 1984. Á
nú einn heimsmetið í tugþrautinni eft-
ir að nýr stigaútreikningur tók gildi
en átti heimsmetið áður með Hingsen,
Vestur-Þýskalandi, sem hann sigraði
auðveldlega í keppninni í Los Ange-
les. Jafnaði þá heimsmet þess þýska.
Thompson er núverandi samveldis-
meistari og ekki er reiknað með að
nokkur geti gefið honum keppni í
Edinborg.
Keppni lauk í sjöþraut kvenna í gær
og var ótrúlega spennandi. Judy Simp-
son, Englandi, sigraði. Eftir spjótkast-
keppnina var hún 23 stigum á eftir
Jane Flomming. Ástralíu. en tókst að
Johnson
í mark
vinna muninn upp í síðustu greininni,
800 m hlaupinu. Sigraði með fjögurra
stiga mun.
Mjög óvænt úrslit urðu í 400 m,
bæði hjá körlum og konum. Ástralíu-
maðurinn Darren Clark, sem komst i
úrslit í 400 á ólympíuleikunum í LA
og varð þar fjórði, var talinn öruggur
með sigur. Það fór á annan veg. Enski
hlauparinn Roger Black hafði náð
honum eftir 200 m og hélt forustunni
til loka þrátt fyrir erfiðan mótvind í
lokin. í 400 m hlaupi kvenna var Kat-
hy Cook, Englandi, sigurstranglegust.
Hún lenti hins vegar á ystu brautinni
og eftir aðeins 60 metra hafði Dabbie
Flintoff náð henni og varð fyrst í mark.
hsím