Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1986, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Atvinna í boði
Vélaleiga, stjórnun. Óskum að ráða
traustan, stundvísan og ábyggilegan
starfsmann strax, eða eftir nánari
Sftmkomulagi. Verksvið afgreiðsla á
tækjum á vélaleigu, umsjón með tækj-
um o.fl. Þarf að vera lagtækur,
áhugasamur og fljótur að læra. Eigin-
ritaðar umsóknir óskast sendar til
DV, þar sem fram kemur aldur, sími,
fyrri störf og hugsanlegir meðmælend-
ur merktar, „Framtíðarstarf 33“.
Góð atvinna. Óskum eftir að ráða
saumakonur til starfa strax hjá fyrir-
tæki sem er vel staðsett fyrir flestar
SVR-leiðir og býður upp á góðan
starfsanda, vistlegt umhverfi, góðan
tækjakost og fjölbreytileg verkefni.
Starfsþjálfun, heils- eða hálfsdags-
vinna, bónusvinna. Komið eða hringið
o.g tafið við Kolbrúnu verkstjóra.
Dúkur hf., Skeifunni 13, sími 82222.
Járnsmiöir - aðstoðarmenn. Viljum
ráða nokkra áhugasama og duglega
menn til ýmiss konar smíðavinnu, góð
vinnuaðstaða, mötuneyti á staðnum,
góð laun fyrir góða menn. Uppl. gefur
verkstjóri í síma 52000, Garðar Héð-
inn.
Vélvirkjar - rennismiöir. Viljum ráða
nokkra áhugasama og duglega menn
í vélvirkjun og rennismíði, góð vinnu-
aðstaða, mötuneyti á staðnum, góð
laun fyrir góða menn. Uppl. gefur
verkstjóri í síma 24260. Vélsmiðjan
Héðinn.
Plastiðnaöur. Vel staðsett iðnfyrirtæki
óskar eftir stúlkum á tvískiptar vaktir
og næturvaktir eingöngu. Góðir
tekjumöguleikar. Uppl. í síma 27542
milli 10 og 17.
Saumakonur óskast til léttra sauma-
starfa. Björt og vistleg saumastofa,
þægilegir starfsfélagar, á besta stað í
bænum, yfirborgun. Hafið samband
við auglþj. DV í síma 27022. H-1398.
Atvinna. Leikskólann Lækjarborg
vantar starfsfólk, hálfan eða allan
daginn, einnig vantar fólk til afleys-
inga í veikindum. Uppl. gefur for-
stöðumaður í síma 686351.
Skrifstofustarf. Skrifstofustúlka óskast
á' skrifstofu í Hafnarfirði, vinnutími
13-17. Uppl. um aldur, menntun og
fyrri störf sendist DV fyrir 21. okt.,
merkt „Hafnarfjörður 140“.
Húshjálp. Óska eftir traustri konu til
húshjálpar í Hafnarfirði einu sinni í
viku. Nánari uppl. í síma 651042 eftir
kl. 18.
Matvöruverslun í miðbænum óskar eft-
ir starfsfólki strax. Allar nánari
upplýsingar gefur Magnús í síma
23457.
Okkur vantar 2-3 aðstoðarmenn strax,
mikil vinna, gott kaup fyrir góðan
mann. Uppl. á staðnum hjá verk-
stjóra. Ingvar og Gylfi, Grensásvegi 3.
Starfsfólk óskast í fiskvinnslustöð á
Seltjamamesi. Frítt fæði á staðnum.
Akstur til og frá vinnu. Stöðug vinna.
Uppl. gefur verkstjóri í síma 618566.
Starfskraftur óskast til iðnaðarstarfa,
mikil vinna, framtíðarstarf. Ragnar
Bjömsson hfi, Dalshrauni 6, sími
50397 og 51397 eftir kl. 19.
Vantar vanan vömbifreiðarstj. með
meirap. strax, einnig verkamenn og
vélamann á hjólaskóflu. Hafið sam-
band við DV í síma 27022. H-1445.
Óskum að ráða starfsfólk í kvöld- og
helgarvinnu á bar og í veitingasal.
Uppl. veittar á staðnum. Veitinga-
stjóri, Hótel Borg.
Óskum eftir að ráða dyraverði til starfa
við veitingahús í Reykjavík. Aldur 23
ára eða eldri. Uppl. í síma 681585 milli
kl. 20 og 22.
Aðstoö óskast á fámennt heimili í
Garðabæ. Hafið samband við auglþj.
DV í síma 27022. H-1446.
Afgreiðsla. Kona óskast til starfa í
bakarí í Árbæ. Uppl. gefur Þórey í
síma 681667.
Húsgagnasmiöir eða menn vanir verk-
stæðisvinnu óskast. Uppl. á verkstæð-
inu, Á. Guðmundsson, Skemmuvegi 4.
Rafvirkja eða rafvélavirkja vantar
strax, góð aðstaða. Uppl. í síma 92-
2828 eða 92-2218.
Óska eftir konu til að koma heim í
þrif. Hafið samband við auglþj. DV í
síma 27022. H-1443.
Óska eftir konu til að koma heim þrisv-
ar í viku og sjá um létt heimilistörf.
Uppl. í síma 30767 eftir kl. 18. Helga.
Óska eftir góðri konu eða stúlku í
heimilisaðstoð 1 sinni í viku, fátt í
heimili. Uppl. í síma 20614 eftir kl. 19.
■ Atvinna óskast
Rúmlega 30 ára fjölskyldumaður óskar
eftir verslunarstjórastarfi í matvöru-
verslun eða markaði, margra ára
starfsreynsla. Þeir sem áhuga hafa
leggi nafn og nafn verslunar inn á
DV fyrir 17. okt., merkt „Verslunar-
stjóri 340“.
Atvinnurekendur. Þaulvanur einkarit-
ari óskar eftir starfi. Mjög góð ís-
lenskukunnátta og erl. mál. Vön að
vinna sjálfstætt. Getur hafið störf
strax. Meðmæli. Uppl. í síma 37272.
Mig vantar góöa innivinnu, t.d. í versl-
un, sem fyrst. Ég er 19 ára, reglusam-
ur, vinnusamur og stundvís. Ég tala
ensku reiprennandi. Svar óskast senst
til DV merkt „19 ára reglumaður“.
Halló! Halló! Við erum tvær hörkudug-
legar stúlkur sem bráðvantar auka-
vinnu, margt kemur til greina. Uppl.
í síma 622846 á föstudag.
Vanur vélamaður óskar eftir vinnu, er
vanur þungavinnuvélum. Hafið sam-
band við auglþj. DV í síma 27022.
H-1444
Tvítug stúlka með stúdentspróf óskar
eftir atvinnu. Uppl. í síma 15141.
■ Bamagæsla
Óska eftir barngóðri 15-16 ára stúlku
(sem næst Engihjalla) til að gæta
tveggja bama, 8 mán. og 4ra ára,
nokkur kvöld í mánuði frá kl. 16-24.
Uppl. í síma 46981 eftir kl. 16 næstu
daga. Ath., frí um helgar.
ATH! Vill einhver passa mig nokkur
kvöld í mánuði? Ég er 15 mánaða og
síminn minn er 40915.
Mömmur ath. Get tekið böm, bý í
Hólunum. Uppl. í síma 75112 eftir kl.
19.
■ Einkamál
58 ára kona, ekkja, óskar eftir að
kynnast reglusömum og heiðarlegum
manni. Svarbréf sendist DV fyrir 24.
okt., merkt „Vinátta".
■ Kennsla
Óska eftir aukatíma í stærðfræði. Er á
1. ári í H.í. og vantar aukatíma í
stærðfræði, þ.e. uppriíjun á mennta-
skólanámsefni og framhald. Uppl. í
síma 17595.
Kennum stærfræði, bókfærslu, ís-
lensku, dönsku og fl., einkatímar og
fámennir hópar. Uppl. í síma 622474
milli kl. 18 og 20.
■ Spákonur
Viltu forvitnast um framtíðina? Spái í
lófa og 5 tegundir spila. Uppl. í síma
37585.
■ Skemmtanir
Félög, hópar og fyrirtæki. Haust-
skemmtunin er á næsta leiti, látið
Dísu stjóma íjörinu allt kvöldið.
Komum hvert á land sem er. Fjöl-
breytt danstónlist. Reynsla og þjón.
Diskótekið Dísa, 1976-86. Sími 50513.
Diskótekiö Dollý. Fyrir vetrarfagnað-
inn og aðra stuðdansleiki bjóðum við
fjölbreytta tónlist fyrir alla aldurs-
hópa. Diskótekið Dollý, sími 46666.
■ Hreingemingar
Þrif, hreingerningar, teppahreinsun.
Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í
símum 33049 og 667086, Haukur og
Guðmundur Vignir.
Gólfteppahreinsun, húsgagnahreins-
un. Notum aðeins það besta. Amerísk-
ar háþrýstivélar, sértæki á viðkvæm
teppi. Erna og Þorsteinn, s. 20888.
Þriftækniþjónustan. Hreingerningar og
teppahreinsun í heimahúsum og fyrir-
tækjum, möguleikar á hagstæðum
tilboðum. Sími 53316.
Hreingerningaþjónusta Þorsteins og
Stefáns. Handhreingemingar og
teppahreinsun. Símar 28997 og 11595.
Hreinsgerningaþjónusta V aldimars,
sími 72595. Alhliða hreingemingar,
gluggahreinsun og ræstingar. Gerum
föst verðtilboð ef óskað er. Valdimar
Sveinsson s: 72595.
Teppa- og húsgagnahreinsun. Tilboðs-
verð, undir 40 ferm 1000,-. Fullkomnar
djúphreinsivélar sem skila teppunum
nær þurrum. Margra ára reynsla. Ör-
ugg þjónusta. Símar 74929 og 78438
Hólmbræður - hreingerningastöðin.
Stofnsett 1952. Hreingemingar og
teppahreinsun í íbúðum, stiga-
göngum, skrifstofum o.fl. Sogað vatn
úr teppum sem hafa blotnað. Kredit-
kortaþjónusta. Símar 19017 og 641043.
Ólafur Hólm.
Hreingerningar. Snæfell. Tökum að
okkur hreingemingar á íbúðum,
stigagöngum og fyrirtækjum, einnig
teppa- og húsgagnahr. Áratuga-
reynsla og þekking. Símar 28345,
23540, 77992.
Þvottabjörn - nýtt. Veitum þessa þjón-
ustu: hreingemingar, teppahreinsun,
húsgagnahreinsun, gluggaþvott, há-
þrýstiþvott, gólfbónun. Sjúgum upp
vatn. S. 40402 og 40577.
■ Bókhald
Bókhald - tölvuþjónusta. Tökum að
okkur bókhald og uppgjör fyrír stærri
og smærri fyrirtæki. Uppgjör til sölu-
skatts, launaskatts og lífeyrissjóða.
Gemm föst verðtilboð. Bókhaldsstof-
an, Skipholti 5, Gunnar Herbertsson,
sími 21277, og Páll Bergsson, sími
622212.
■ Þjónusta
Ert þú húseigandi? Tökum að okkur
alla alhliða trésmíðavinnu svo sem:
parketlagningar, milliveggi, glugga-
smíði. Sérsmíðum allar gerðir inn-
réttinga. Önnumst allar breytingar á
gömlu sem nýju húsnæði. Tilboð,
tímavinna. Vönduð vinna, fagmenn.
Símar 15510 og 24671 eftir kl. 19.
Bón og þvottur. Þú hringir, við sækjum
bílinn þinn og lánum þér annan bíl á
meðan eða þú hringir og pantar tíma
og kemur með bílinn. Símar 25369 og
25433.
Boröbúnaöur til leigu. Leigjum út alls
konar borðbúnað, svo sem diska, glös,
hnífapör, bolla, veislubakka o.fl.
Borðbúnaðarleigan, sími 43477.
Innheimtuþjónusta fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og félög. Innheimtustofan sf.
Grétar Haraldsson hrl., Skipholti 17a,
sími 28311.
Rafvirkjaþjónusta. Dyrasímalagnir og
viðgerð á dyrasímum og almennar við-
gerðir á raflögnum. Uppl. í síma 20282
eftir kl. 17.
Úrbeiningar. Nú er sláturtíðin í há-
punkti. Tek að mér úrbeiningar á öllu
kjöti. Ódýr og góð þjónusta. Símar
13642 og 611273.
Úrbeiningar. Tökum að okkur úrbein-
ingar á stórgripakjöti, fullfrágengið í
kistuna. Uppl. í síma 681490.
Athugið. Tökum að okkur úrbeiningu
á stórgripakjöti, hökkun og pökkun.
Uppl. í síma 27252 og 651749.
■ Líkamsrækt
Snyrtistofan Gott útllt býður upp á
Kwik Slim vafninga, Clarins megr-
unamudd og Clarins andlitsbað,
einnig fótaaðgerðir. Verið velkomin.
Tímapantanir í síma 46633.
Viðskiptavinir, ath. Höfum framlengt
hausttilboðið á 10 tíma kortunum til
20. okt. Kortin gilda í 3 mánuði. Sól-
baðsstofan Garðasól, sími 641260.
U Ökukennsla
ökukennarafélag íslands auglýsir:
Emil Albertsson, s. 621536,
Volvo 360 GLT ’86.
Atli Grétarsson, s. 78787,
Mazda 626 GLX.
Guðbrandur Bogason, s. 76722,
Ford Sierra ’84, bifhjólak., bílas.
985-21422.
Grímur Bjamdal Jónsson, s. 79024,
Galant GLX Turbo ’85.
Valur Haraldsson, s. 28852-33056,
Fiat Regata ’85.
Gunnar Sigurðsson, s. 77686,
Lancer.
Herbert Hauksson, s. 666157,
Chevrolet Monsa SLE ’86.
Már Þorvaldsson, s. 52106,
Subaru Justy ’87.
Jóhann G. Guðjónss. s. 21924-17384
Lancer 1800 GL ’86.
Jón Jónsson, s. 33481, Galant 1600
’86.
Hallfríður Stefánsdóttir, s. 681349,
Mazda 626 GLX ’86, bílas. 985-20366.
Snorri Bjamason, s. 74975,
Volvo 360 GLS ’86, bílas. 985-21451.
Skarphéðinn Sigurbergsson, s. 40594,
Mazda 626 GLX ’86.
Vaktavinna. Viljum bæta við okkur
fólki til framleiðslustarfa, unnið er á
tvískiptum vöktum. Nánari uppl. gef-
ur verkstjóri í síma 672338 milli kl.
13 og 17.
Heimjlisaðstoð óskast ca 4 tíma í viku.
Uppl. í síma 84304 eftir kl. 18.
Loftpressumenn. Vana loftpressinnenn
vantar. Uppl. í síma 687040.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú- átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur.kaupum og sölum.
Bara aö nefna paö í smáauglýsingum DV,
hini ótrúlega markaöstorgi tækífæranna.
M'.kaöstorgiö teygir sig viöa, Þaö er sunnanlands
sem norðan. vestan sem austan. í bátum sem flug-
vélum. snjóbílum sem fólksbílum. hvarvetna er DV lesiö.
Emkamál. Já. þaö er margt i gangi á markaöstorginu.
en um hvaö er samiö er auðvitaö einkamál hvers og ems.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikmn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau
SENDLAR ÓSKAST
STRAX
Upplýsingar á afgreiðslu
síma 27022.
Bítamálarar
og aðstoðarmenn
óskast sem fyrst - næg vinna.
Varmi
Bilasprautun
Auðbrekku 14 - Sími 44250.
DV
Gylfi K. Sigurðsson kennir á Mazda 626
’86. ökuskóli, öll prófgögn. Kennir
allan daginn, engin bið. Visa/Euro.
Heimas. 73232, bílas. 985-20002.
Kenni á Mazda 626 GLX ’87, R-306.
Nemendur geta byrjað strax, engir
lágmarkstímar, fljót og góð þjónusta.
Knstján Sigurðss., s. 24158 og 672239.
Ævar Friðriksson kennir allan daginn
á Mazda 626, engin bið. Útvega próf-
gögn, hjálpa til við endurtökupróf.
Sími 72493.
Öku- og bifhjólak. - endurh. Kennslutil-
högun ódýr og árangursrík, Mazda
626, Honda 125, Honda 650. Halldór
Jónsson, s. 83473 - bílas. 985-21980.
Ökukennsla - æfingatímar. Kenni á
Toyota Corolla liftback ’85, nemendur
geta byrjað strax. Útvega öll próf-
gögn. Sverrir Bjömsson, sími 72940.
Bifhjólapróf - Ökukennsla Kenni á M.
Benz ’86 R 4411 og Kawasaki bifhjól,
engir lágmarkst., ökuskóli, greiðslu-
kort. S. 687666, bílas. 985-20006.
Ökukennsla - Bifhjólakennsla. Lærið
akstur á skjótan og öruggan hátt,
Mazda GLX. Sigurður Þormar, bilas.
98521903, hs. 54188.
■ Innrömmun
Harðarrammar, Laugav. 17. Alhliða
innrömmun, málverk, ljósmyndir,
saumamyndir og plaköt, mikið úrval
ál- og trélista. Vönduð vinna. S. 27075.
Bronsstittuhreinsun og innrömmun.
Nánari uppl. í síma 35346.
■ Húsaviðgerðir
Húsaþjónustan. Blikkkantar, rennur
o.fl. (blikkasmíðam.), múrum og mál-
um. Sprunguv., háþrýstiþv., sílan-
húðun, þéttum og skiptum um þök
o.fl. S. 42446-618897 e. kl. 17. Ábyrgð.
Háþrýstiþvottur - sílanhúðun. Trakt-
orsdrifnar háþrýstidælur að 400 bar.
Sílanhúðun. Viðgerðir á steypu-
skemmdum. Verktak sfi, s. 78822-
79746. Þorgr. Ólafsson húsasmíðam.
Þakrennuviðgerðir. Gerum við steyptar
þakrennur, sprunguviðgerðir, múr-
viðgerðir, háþrýstiþvottur, sílanúðun
o.fl. 17 ára reynsla. Uppl. í síma 51715.
Sigfús Birgisson.
Litla dvergsmiðjan: Múrum, málum,
gerum við sprungur, skiptum um
rennur. Háþrýstiþvottur. Föst tilboð.
Uppl. í síma 44904 og 11715. Ábyrgð.
Getum tekið að okkur flísalagnir og
skyld verkefni, föst tilboð. Hringið í
síma 39433.
Steinsteypusögun, kjamaborun, múr-
brot og fl„ 20% staðgreiðsluafsláttur.
Vélaleiga J.M., sími 24909.
■ Til sölu
^hneicler
Pantið Schneider vörulistann frá
Þýskalandi. Fjölbreytt úrval vöruteg-
unda, rúml. 160 bls. íslensk þýðing
fylgir. Verð 150. Póstverslunin Príma,
Trönuhrauni 2, 220 Hafnarfi, s.(91)-
651414, (91)-51038.
Buxnapressur frá kr. 4.900. Einar Far-
estveit, Bergstaðastræti lOa, s. 16995.