Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1986, Side 42
42 MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1986. Sviðsljós Ólyginn sagði... Andrew Bretaprins var varla kominn í hnappheld- una en fírinn komst á lista yfir best klæddu karlmenn heims- ins. Þar skipar hann tíunda sætið sem ekki þykir sem verst og er þetta allt saman þakkað Fergie sem virðist hafa losað aðeins um áhrifin frá íhaldssöm- um hallarbúunum bresku. Hann þykir með afbrigðum elegant en þó eru einstaka nöldurskjóður farnar að kvarta yfir hversu vel kappinn fyllir út í fötin. Sagan segir að tíu kiló hafi bæst við að undanförnu og ennþá hefur ekki neitt bent til þess að hor- felli sé á næsta leiti. Jacqueline Bisset segist hamingjusöm þegar hún fær frið til þess að ákveða sjálf hvað hún vill gera i lífinu - og líka hvað hún vill borða og drekka. Leikkonan segir velf- lesta halda að gæfan liggi í örygginu en svo sé nú einmitt ekki - því ekkert er raunverulega gulltryggt undir sólunni og því geti bókstaflega allt horfið sem dögg fyrir sólu. Hverfulleiki lífs- baráttunnar kvelur Jacqueline ekki tiltakanlega meðan hún finnur til frelsis í einkalífinu. er nú orðinn nvorki meira né minna en heiðursdoktor við ekki ómerkilegri háskóla en sjálfan Sorbonne í Parísarborg. Svarti- skóli er ekki vanur að gera kvikmyndaaðalinn að heiðurs- meðlimum og er þetta því heilmikil viðurkenning fyrir snill- inginn. Hann er löngu auðugur orðinn af list sinni og þarf því ekki að fara að dæmi Sæmund- ar og reyna að ná selflutningum til Frans heldur flækist um á einkaþotu heimshornanna á milli. Stefán Valgeirsson og Haraldur M. Sigurðsson á leið inn í veitingahúsið Bakkann. I góðra vina hópi - Stefán og stuðningsmenn við matborðið í Bakkanum. DV-blaðberar borðuðu með Stefáni Valgeirs Jón G. Hauksson, DV, Akuieyri: Ræða Stefáns Valgeirssonar eft- ir tapið gegn Guðmundi Bjamasyni á Húsavík verður lengi í minnum höfð. Eftir ræðuna yfirgaf hann fundarstaðinn, Hótel Húsavik, einn. Góðvinur hans, Haraldur M. Sig- urðsson frá Akureyri, kom fljótlega út til hans. Þeir tókust í hendur en drifu sig síðan niður í veitingahúsið Bakkann. Svo skemmtilega vildi til að blað- berar DV á Húsavík voru í hamborg- araveislu í Bakkanum á sama tíma. Þeir borðuðu því með Stefáni á þess- um sögulega sunnudegi. Glaðhlakkalegir blaðberar DV á Húsavík í hamborgaraveislunni. Valgeirsson og felagar sátu viö næsta borð. DV-myndir JGH í krapi og tuttugu vindstigum suður með sjó sat Jónatan að snæðingi og reyndi aö týna ekki fjöðrunum út í veður og vind. Aðalréttur var hrár karfi og þess vandlega gætt að óboðnir matargestir væru ekkert að flækjast inn á yfirráðasvæðið - sem reyndar var vörubílspallur alsettur hinum ýmsu krás- um. DV-mynd JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.