Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Níu ára telpa:
Meiddist á auga þegar
hvellhetta sprakk
Níu ára gömul telpa meiddist á auga
í gær þegar hvellhetta sprakk og neisti
hljóp í auga bamsins en hvellhettur
þessarar gerðar eru seldar í nokkrum
leikfangaverslunum. Þær eru þýskar
og með þeim fylgja leiðbeiningar á
erlendu tungumáli en engar á ís-
lensku.
„Þetta er í litlum öskjum, um hundr-
að gular hvellhettur og þær fást meðal
annars í Úlfarsfelli á Hagamel og Li-
verpool. Með hvellhettunum ívlgja
litlar klemmur sem notaðar eru til að
sprengja hvellhettumar og er þeim
haldið i hendi og klemmdar saman,"
sagði faðir telpunnar. Oddur Bened-
iktsson, í samtali við DV í gær.
Stúlkan keypti hvellhettumar sjálf
og þegar hún var að leik með þær um
hádegisbilið í gær sprakk ein hvell-
hettan þannig að neisti hljóp í öfuga
átt og í auga bamsins. „Ég opnaði
klemmuna og þá flaug neistinn upp í
hægra augað. Eg vissi ekki að það var
sprengja i klemmunni, hún hefur verið
þar síðan síðast," sagði telpan í gær.
Einar á Einars-
stöðum látinn
Jcn G. HaukaBon, DV, Akureyii
Hinn kunni lækningamiðill, Ein-
ar Jónsson á Einarsstöðum, lést á
sjúkrahúsinu á Húsavík í fyrri-
nótt. Einar var fæddur á Einars-
stöðum 5. ágúst 1915 og þar ólst
hann upp. Hann kvæntist Erlu
Ingileifu Bjömsdóttur þann 14.
mars 1969 og eignuðust þau eina
dóttur.
Farið var með bamið á Landa- gerð og er búist við að telpan fái fullan
kotsspítala og þar gerð á því skurðað- bata. -ój
Katrin Oddsdóttir, níu ára, með hvelihetturnar og klemmuna.
DV-mynd Brynjar Gauti
Vfflidgrin í Sædýrasafninu felld:
ísbimmum
lógað í gær
• safníð opnað aftur í vor í breyttri uiynd
Nú er verið að farga öllum villi-
dýrunum sem til skamms tíma hafa
glatt augu gesta Sædýrasafnins í
Hafoarfirði. Er þetta ákvörðun
nýrra eigenda Sædýrasafnsins en til
stendur að breyta starfsemi þess og
gera það að fiska- og sjávardýra-
safni, að sögn Helga Jónassonar
fi-æðslustjóra, eins forsvarsmanna
Sædýrasafiisins.
Sagði Helgi að meðal annars hefðu
bæði ljónin verið slegin af og ís-
bjöminn átti að fella í gær. Sagði
Helgi að ástæða þessa væri sú að
vakt þyrfti á svæðinu vegna villidýr-
anna og það kostaði fé að halda
vakt úti í safiiinu. Einnig sagði hann
að villidýrin væru orðin svo gömul
að ekki væri hægt að selja þau í
aðra dýragarða.
Kvaðst Helgi vona að tækist að
opna safiiið á ný með vorinu og þá
í breyttri mynd og nefiidí hann að
það væri álit sérfróðra manna að hér
á landi ætti að vera hægt að koma
upp góðu sædýrasafhi en ástæða
þess er lega landsins og mörk heitra
og kaldra sjávarstrauma.
-ój
Borgaisfjóm:
Minnihlutaflokkamir sam-
einast um blaðaútgáfu
Minnihluteiflokkamir í borgar-
stjóm Reykjavíkur hafa ákveðið að
sameinast um blaðaútgáfu til að
kynna tillögur sínar varðandi íjár-
hagsáætlun borgarinnar og verður
aðeins um eitt tiltekið blað að ræða
til að byrja með
„Við stöndum ekki jafnt að vígi
við Sjálfstæðisflokkinn með Morg-
unblaðið á bak við sig að koma
skoðunum okkar á framfæri. Við
teljum að það sem við höfðum fram
að færa við gerð fjárhagsáætlunar
sé þess virði að allir borgarbúar fái
að sjá það, þess vegna förum við út
í þessa blaðaútgáfu," sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarfiilltrúi
Kvennalista, í samtali við DV í
morgun.
Ingibjörg sagði að blaðinu, sem
kemur út í byrjun mars, yrði dreift
í öll hús í Reykjavík. Sagði hún enn-
fremur að það kæmi vel til greina
að flokkamir stæðu að fleiri blöðum
til að kynna tillögur sínar í stærri
málum innan borgarstjómar en ekk-
ert væri ákveðið í þeim efnum
umfram þetta blað sem nú er að
koma út.
-S.dór
Þjóðleikhúsið sýnir
tvo einþáttunga
Sigurjóna Sverrisdóttir og Guðrún J. Ólafsdóttir i „Gættu þin“ eftir Kristínu
Bjarnadóttur.
Gættu þin
Höfundur: Kristin Bjamadóttir
Draumar á hvolfi eða Árni gengur aftur.
Höfundur: Kristín Ómarsdóttir.
Tónlist: Guðni Franzson.
Lýsing: Sveinn Benediktsson.
Leikmynd og búningar: Þorbjörg Hösk-
uldsdótUr.
Leikstjóri: Helga Bachmann.
í gærkvöldi vom frumsýndir tveir
einþáttungar á Litla sviði Þjóðleik-
hússins. Báðir em þeir verðlauna-
verk úr samkeppni sem Þjóðleik-
húsið efhdi til í tilefhi loka
kvennaáratugar Sameinuðu þjóð-
anna. Höfundar verkanna, þær
Kristín Ómarsdóttir og Kristín
Bjarnadóttir, hafa báðar fengist við
ljóðagerð en þetta em fyrstu leikrit-
in sem þær skrifa.
Þó að þessi tvö verk séu í eðli sínu
mjög ólík urðu þau að ýmsu leyti
keimlík á ytra borði i þessari upp-
færslu. Byggist það að nokkm á
samnýtingu á hluta leikmyndar og
ekki síður hinu að bæði verkin fá
við sviðsetninguna visst draum-
kennt yfirbragð og túlkunarmáti í
báðum verkunum er lýkur. Leik-
stjóri beggja verkanna er Helga
Bachmann.
Mér fannst fyrra verkið, Gættu
þín, eftir Kristínu Bjamadóttur,
leikhæfara verk og koma betur út í
þessari sýningu. Höfundurinn er
kunn leikkona og hefur sú reynsla
efalaust komið henni til góða við
samningu verksins.
Viðkvæmur texti seinna verksins,
Drauma á hvolfi, eftir Kristínu Óm-
arsdóttur, er vel fluttur af leikendum
og ég hafði á tilfinningunni að bæði
þeir og leikstjórinn næðu flestu því
út úr honum sem hann hefði upp á
að bjóða. Samt vantaði einhvem
neista, eitthvert líf í sýninguna.
Sennilega má flokka þetta síðar-
talda leikrit undir absúrd leikhús,
persónumar, maður og kona, bíða í
einhverju einskismannslandi. Þau
geta ekki verið hvort án annars,
geta ekki skilið en eiga þó í erfiðleik-
um með að vera saman. A milli
þeirra er ósýnilegur veggur sem þau
þrá að rjúfa. Styrkur þessa verks,
sem hlaut fyrstu verðlaun í sam-
Leiklist
Auður Eydal
keppninni, er fólginn í textanum en
hann er fyrst og fremst hugleiðingar
og tveggja manna tal, oft sundur-
laust og ekki í beinum tengslum við
neinn sjáanlegan raunveruleika.
Hér er meðfiram fjallað um ást á
viðkvæmu stigi. Ast, sem getur
hvenær sem er snúist upp í and-
hverfu sína. í verkinu gætir trega
og þögnin gegnir mikilvægu hlut-
verki. Verkið byrjar í þögn og oft
hefur maður á tilfinningunni að
þögnin segi meira í þessu verki en
öll orðin.
En þrátt fyrir augljósa vanlíðan
þessa fólks náðu persónumar ekki
að snerta mig, þær vom fjarlægar
og án séreinkenna. Sársaukinn í
textanum varð kaldur og bitlaus, ef
til vill af því að mótvægi hans, gleð-
ina, vantaði.
Af höfuðpersónum tveimur fannst
mér þó Ámi vera áhugaverðari per-
sóna og meiri rækt lögð við hann
en Matthildi, af hendi höfundar.
Amór Benónýsson leikur hann og
gerir það vel. Ragnheiður Steindórs-
dóttir er Matthildur og kemst eins
nálægt því að glæða hana lífi og
textinn framast leyfir. Ellert A. Ingi-
mundarson kemur vel fyrir sem
aðvífandi piltur. Sá fannst mér gegna
fremur óljósu hlutverki í leiknum
nema sem þriðja hom þríhyrningsins
án þess þó að honum væm gerð
nein sérstök skil.
Einþáttungur Kristínar Bjama-
dóttur, Gættu þín, hlaut 2.-3. verð-
laun i leikritasamkeppninni, ásamt
verki eftir Elísabetu Jökulsdóttur.
Það sem mér fannst einkenna þetta
verk var ákaflega fallegur og ljóð-
rænn texti, mannleg hlýja og
væntumþykja með persónunum.
Einstaklingamir í þessu verki eru
skýrt mótaðir og eftirminnilegir per-
sónuleikar og flestum leikendanna
tekst að miðla mildum, stundum svo-
lítið tregablöndnum hugblæ til
áhorfendanna.
Það er mjúka línan, sem ræður
ferð hjá Helgu Bachmann leikstjóra
við uppsetninguna, og fullkomið
jafnvægi er milli leikstjómar, texta
og túlkunar. Form verksins er hreint
ekki aucjyelt, það byggist upp á svip-
myndum og stokkið er fram og afitur
í tíma. En myndimar raðast saman
og mynda þegar upp er staðið heild.
Sterkustu og jafnframt fallegustu
atriðin fundust mér svipmynd úr
kartöflugarðinum og seinna heim-
sókn Beggu í foreldrahús. Sigurjóna
Sverrisdóttir leikur Beggu og nær
oft góðum tökum á þessu viðkvæma
hlutverki en stundum fannst mér þó
eins og þáu tök linuðust. Begga á í
innri baráttu, hún hefur tapað áttum
í kaldranalegu nútímasamfélagi og
á við persónuleg vandamál að stríða.
Hugurinn leitar bemskunnar og
heima hjá foreldrunum á hún enn
skjól ef hún gæti nýtt sér það.
Þau Bryndís Pétursdóttir og Ró-
bert Amfinnsson leika foreldra
Beggu og áttu létt með að túlka
þetta sómafólk. Einstaklega góður
leikur hjá þeim báðum. Og litla
stúlkan, Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir, heillaði leikhúsgesti með
frábærum leik í hlutverki Beggu
ungrar.
Atriðið í kartöflugarðinum og
hugleiðingar þeirra Beggu litlu og
mömmu hennar um kartöflumóður-
ina tengist bamleysi Beggu og
vandamálum seinna á ævinni. Þau
Agnes og Nonni em fulltrúar sam-
félagsins, sem Begga er að flýja,
samfélags þar sem harka og hraði
ráða ríkjum. Þau Elfa Gísladóttir
og Andrés Sigurvinsson leika hlut-
verk þeirra. Þessar persónur em
giynnri, en hinar fyrr töldu, Agnes
er dæmigerð nútímakona alltaf á
hlaupum og Elfa fór vel með hlut-
verkið svo langt sem það náði.
Persóna Nonna var alltof óljós enda
náði Andrés ekki að gera hann sann-
færandi og mér fannst leikritið detta
niður í lokin þegar Nonni gegnir
lykilhlutverki.
Þorbjörg Höskuldsdóttir gerir
leikmyndir við bæði verkin. Þær em
eins og framhald af málverkum
hennar, einstaklega listræn og falleg
lausn, og allt litaval í búningum og
leikmynd í fullkomnu jafnvægi. Lýs-
ingu annast Sveinn Benediktsson og
tónlist er eftir Guðna Franzson en
hún gegnir miklu hlutverki í leikrit-
inu Gættu þín. Sérstaklega undir-
strika viðkvæmir flaututónar
Kolbeins Bjamasonar andrúmsloft
verksins.
Það er mikil gróska í íslenskri leik-
ritagerð um þessar mundir og
auðvitað er alltaf spennandi að sjá
ný verk í fyrsta sinn. Það er líka
ómetanlegt fyrir höfunda að sjá verk
sín fullmótuð á sviði.
Þessum nýju höfundum er óskað
til hamingju með áfangann, og Þjóð-
leikhúsinu ber að hrósa fyrir að gefa
ungum höfundum slíkt tækifæri.
AE