Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Stjómmál________________________________________________________________pv
Sverrir kynnir endurskoðað grunnskólafrumvarp:
Skólaskyldu aflétt í
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra þungt hugsi. Fyrrverandi menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadótt-
ir, er skammt undan svo og ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og Alexander Stefánsson.
Háskólanefnd Akureyran
Sjálfstæð-
ur háskóli
Jón G. HaukBson, DV, Akureyri:
Meginhugmyndir háskólanefnd-
ar Akureyrar um háskóla á
Akureyri voru kynntar í skýrslu
nýlega. Nefridin telur að stefria
beri að sjálfstæðri stofriun og sér-
hæfðri. A hún að leitast við að
vera í sem nánustum tengslum við
atvinnufyrirtæki, Háskóla íslands
og erlenda háskóla.
Nefridin telur að markmið skól-
ans eigi að vera að veita hagnýta
menntun sem nýtast muni í sér-
hæfðum stjómunarstöríum í þágu
atvinnuveganna.
í áætlun nefiidarinnar varðandi
nemendafjölda og starfsmenn
kemur fram að fjöldi nemenda
verði um 300 og starfsmenn 27 tals-
ins. Þar af fjórir deildarstjórar og
15 kennarar.
Nefiidin leggur til að fyrst verði
boðið upp á nám í matvælafræði,
iðnrekstrarfræði, rekstrarhag-
fræði og sjávarútvegsfræði. Stofn-
kostnaður við kennsluna á þessum
frórum námsbrautum er talinn
verða 19,3 milljónir og er þá miðað
við að ríkissjóður leggi líkt og
Akureyrarbær fram sinn hluta
hússins að Þingvallastræti 21.
A-listinn
á Norður-
landi eystra
Framboðslisti Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra var
ákveðinn á fúndi kjördæmisráðs
flokksins fyrir stuttu. Sjö efstu
sætin skipa:
1. Ámi Gunnarsson ritstjóri,
Reykjavík.
2. Sigbjöm Gunnarsson verslunar-
maður, Akureyri.
3. Hreinn Pálsson lögmaður, Ak-
ureyri.
4. Amór Benónýsson leikari,
Hömrum, Reykjadal, S-Þing.
5. Anna Lána Vilhjálmsdóttir
kennari, Húsavík.
6. Helga Kr. Ámadóttir skrifetofu-
maður, Dalvík.
7. Jóm'na Óskarsdóttir matreiðslu-
kona, Ólafsfirði. -KMU
Skólaskyldu verður aflétt í 9. bekk
gmnnskóla. Þetta er ein stærsta breyt-
ingin í frumvarpi um grunnskóla sem
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra hefur lagt fram á Alþingi. í
athugasemdum, sem fylgja, segir að
menntamálaráðherra flytji frumvarpið
til kynningar.
Enda þótt skyldunám verði aðeins í
1. til 8. bekk er gert ráð fyrir að ríki
og sveitarfélögum verði skvlt að bjóða
upp á nám með sama hætti í 6 ára og
9. bekk.
Grunnskólafrumvarpið er samið af
nefiid sem Sverrir skipaði í apríl 1986
til að endurskoða grunnskólalögin frá
1974 og lög um skólakostnað frá 1967.
Nefndin varð sammála um tiliögur að
frumvarpinu. með nokkrum undan-
tekningum þó. einkum hvað varðar
fræðslustjóra og fræðsluskrifstofur.
Vald sveitarstjórna aukið
í greinargerð segir að í öllum megin-
atriðum hafi með fi'umvarpinu tekist
að ná þeim markmiðum sem stefnt var
að:
„Skýrt er í frumvarpinu verk- og
valdsvið hvers aðila í stjómun skóla
og milliliðum fækkað.
Ábyrgð og vald heimaaðila, það er
sveitarstjóma og skólanefnda, er auk-
ið til muna með tilliti til þess að hafa
áhrif á innra starf skólans og laga það
sem best að staðháttum í heimabvggð.
Tekist hefur með einföldun á skóla-
kostnaðarskiptingu að fela sveitar-
stjórnum framkvæmd og vald á
ákveðnum þáttum íjármála, en það
ætti að leiða af sér hina bestu nýtingu
fjármuna.
Með sérstökum reglum hefur verið
tekið tillit til mjög breytilegra að-
stæðna í strjálbýli."
Fræðsluráðin lögð niður
Breytingar á fræðsluráðum eiga lík-
lega eftir að verða einn umdeildasti
hluti frumvarpsins. 1 athugasemdum
með því segir:
„Flest þau verkefhi, sem fræðsluráð
hefúr með höndum samkvæmt texta
gildandi laga, eru færð til sveitar-
stjóma og skólanefnda, nær vettvangi
og þannig fækkað milliliðum í stjóm-
sýslunni. Öll stjómun hefur því
möguleika á að verða einfaldari og
um leið skilvirkari.
Yfirstjóm menntamála hlýtur eðli
málsins samkvæmt að vera í höndum
menntamálaráðherra og ráðuneytis
hans og því afar vafasamt að fræðslu-
ráð geti farið með umboð mennta-
málaráðuneytisins sem engin áhrif
getur haft á kjör manna til starfa þar.
I reynd hafa fræðsluráð í flestum til-
fellum eingöngu litið á sig sem fúlltrúa
heimaaðila."
Enda þótt fræðsluráðin séu með
frumvarpinu lögð niður í núverandi
mynd verður sveitarfélögum eða sam-
tökum þeirra heimilt að stofna nefnd
eða ráð til að fjalla um eða fara með
sameiginleg málefni á sviði fræðslu-
mála.
„Reynslan hefur sýnt að það tvöfalda
kerfi, sem að nokkru er gert ráð fyrir
í gildandi lögum um grunnskóla, hefur
reynst mjög erfitt í framkvæmd hvað
varðar störf fræðslustjóra og að
nokkru störf fræðsluráða. Hér eru því
tekin af öll tvímæli um að fræðslu-
stjórar starfi á vegum menntamála-
ráðuneytisins."
Ágreiningur um fræðslustjóra
I séráliti, sem tveir nefridarmenn,
Valgarður Hilmarsson og Kristinn V.
Jóhannsson, skiluðu, segja þeir að lík-
legasta leiðin til raunverulegrar
tilfærslu valds út í byggðir landsins
sé að efla starfsemi fræðsluskrifstof-
anna. Leggja þeir fram breytingartil-
lögu við lagagrein frumvai'psins um
verkefni fræðslustjóra.
í frumvarpinu eru tekin af öll tví-
mæli um að skólastjóri teljist forstöðu-
maður skóla. Fækkað er til muna þeim
aðilum sem hann er skyldur til að
hafa samráð við og leita álits hjá við
ákvarðanir.
I námsskrá er bætt inn lið sem kveð-
ur á um að grunnskólinn skuli fræða
unglinga um vinnumarkaðinn á hverj-
um tíma, um framhaldsnám og
námsmöguleika að loknum grunn-
skóla ásamt kynningu á sem flestum
þeim þáttum sem áhrif geta haft á
starfsval. Brott hefur verið fellt
ákvæði um atvinnuþátttöku nemenda
þar sem það hefur reynst illframkvæ-
manlegt.
Skólastjóra verður heimilt í samráði
við kennara og með samþykki forráða-
manna að flýta skólagöngu nemenda
og færa hann milli aldursárganga.
„Hér er verið að gera tilraun til að
hverfa frá því sem nefnt hefúr verið
meðalmennskukerfi," segir í athuga-
semdunum.
-KMU
í dag mælir Dagfari
Læknamistök án ábyrgðar
Illar tungur segja stundum að
læknar grafi mistök sín. Þetta á þó
ekki alltaf við eins og best kom fram
í sjónvarpsþætti á Stöð 2 í fyrra-
kvöld þar sem mistök lækna voru
til umræðu. Var ekki laust við að
nokkum hroll setti að áhorfendum
þegar lýsingar fórnarlamba lækna-
mistaka voru hvað svæsnastar.
Auðvitað skilja allir að læknar eru
bara mannlegir eins og við hin en
það er nú öllu alvarlegri hlutur að
taka vitlausan fót af manni en að
rífa heilbrigðan jaxl úr skoltinum á
Jóni Jónssyni. Læknar hafa til þessa
verið lítt til viðræðna um eigin mi-
stök eða stéttarbræðra sinna, að
minnsta kosti opinberlega. Hins veg-
ar kann almenningur helling af
sögum þess efiiis hvemig hinum og
þessum tókst nánast fyrir tilviljun
að sleppa lifandi úr klóm lækna sem
ekkert kunnu og ekkert gátu. Oftar
en ekki hafði komið í ljós að sjúkl-
ingurinn vissi miklu meira um
læknavísindi en þeir doktorar sem
önnuðust hann. Otal brandarar um
lækna hafa jafnan verið vinsælir í
samkvæmum. Nægir þar að minna
á söguna um það hvers vegna lækn-
ar bera alltaf grímu við uppskurði,
sem stafar náttúrlega af því að þeir
vilja forðast að fómarlambið þekki
þá aftur ef svo illa vildi til að það
lifði af aðgerðina. En þá sjaldan að
mistök lækna hafa verið til umræðu
hér á landi hafa fómarlömb mista-
kanna leitt umræðuna en ekki
læknar. Og það virðist ansi torsótt
fyrir fórnarlömbin að kría út ein-
hveijar bætur ef til dæmis hnífur
hefúr gleymst inni í sjúklingi eftir
holskurð og valdið sviða og lystar-
leysi vikum saman áður en kutinn
fannst. Þessu er víða öfugt farið, til
dæmis í Ameríku þar sem það er
þjóðarsiður að stefna læknum og
spítalastjómum og krefjast gífur-
legra skaðabóta af minnsta tilefni,
til dæmis ef sjúklingur smitast af
kvefi þá hann gistir spítala. Enda
er þar mikil hjörð löglærðra sem
hefur það að lifibrauði að höfða mál
á hendur læknum.
Nú hefúr komið í ljós að nefnd á
vegum landlæknis vinnur að tillög-
um um sérstakan tryggingasjóð
sjúklinga. Á hann að standa straum
af fébótakröfum sjúklinga sem hafa
orðið fyrir barðinu á læknamistök-
um. Landlæknir upplýsir að nokkur
hluti sjúklinga hafi farið illa út úr
læknismeðferð eða aðgerðum án
þess þó að hægt væri að finna neinn
sem bæri þar beina sök. Þetta er
auðskilið því oft em tveir til fimm
læknar að kmkka í sama sjúkling-
inn samtímis og því erfitt að finna
út hvers hönd gerir hvað þegar
verkaskipting er óljós. Er þá senni-
lega skorið, klemmt og klippt í gríð
og erg og sá sem er handfljótastur
kemst yfir mest. Því finnst landlækni
eðlilegast að ríkið leggi fram fé til
tryggingasjóðs sjúklinga. Þá telur
hann ekki útilokað að tryggingafé-
lögin leggi eitthvað af mörkum i
sjóðinn og er það rökrétt ef tilgang-
urinn er sá að koma í veg fyrir að
fólk geti tryggt sig gegn mistökum
lækna. Við skulum bara þakka fyrir
meðan ekki er farið fram a að sjukl-
ingar inni af hendi greiðslur beint í
fyrirhugaðan sjóð þótt þeir verði
auðvitað að borga í hann á endanum
gegnum skattakerfið. Það vekur
nokkra athygli að meirihluti nefnd-
arinnar er skipaður fulltrúum lækna
þótt fram hafi komið að ekki sé
hægt að finna neinn sem beri ábyrgð
á því þegar fólk fer illa út úr læknis-
aðgerðimi eða læknismeðferð. Vel
hefði mátt hugsa sér að Rannsóknar-
lögregla ríkisins ætti fulltrúa í
nefndinni eða bóndi af Norðurlandi.
Bæði rannsóknarlöggur og bændur
eru vanir ýmiss konar leit og eftir-
leitum en hér er víst ekki ætlunin
að leita að sökudólgum heldur leita
heppilegra leiða til að láta ríkið
borga fyrir mistök sem enginn á sök
á. Sagt er að sumir þeirra sem hafa
farið illa út úr aðgerðum hafi endan-
lega misst heilsuna í örvæntingar-
fullum tilraunum til að kría út
bætur. Slík mál hafa jafhan verið
þungsótt og venjulega afgreidd inn-
an lokaðra veggja læknastéttarinn-
ar sem hefúr krafist þess að
fómarlambið sanni að af hafi verið
höggvinn heilbrigður handleggur í
stað þess sjúka. En nú ætti slík
þrautaganga brátt að heyra sögunni
til því reikningurinn verður bara
sendur upp í fjármálaráðuneyti og
greiddur úr tryggingasjóði sjúkl-
inga. Málið er nefnilega svo einfalt
i dag, að meðan ekki er ljóst hver á
sök á mistökum lækna em hvorki
þeir né viðkomandi sjúkrahús bóta-
skyld og kann það að vera orsök
þess hve erfitt reynist að finna ein-
hvem sem ábyrgð ber ef eitthvað fer
úrskeiðis. En með nýja sjóðnum er
hægt að borga og borga í allar áttir
án þess að vera með rekistefnu út
af því hvort einhver ber ábyrgð á
mistökum eða ekki.
Dagfari.