Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
5
Stjómmál
Undanþágur
frá notkun
bílbetta
„Hver sá, sem situr í framsæti bif-
reiðar, sem búið er öryggisbelti, skal
nota það.“
Svo hljóðar 1. málsgrein 71. grein-
ar umferðarlagafrumvarps, sem efri
deild hefur satnþykkt en neðri deild
fjallár nú \un. I greininni er að finna
eftirfarandi undanþágur frá notkun
bílbelta:
„Eigi er skylt að nota öryggisbelti,
þegar bifreið stendur kyrr eða þegar
ekið er aftur á bak. Sama á við um
akstur á bifreiðastæði, við bensín-
stöð, viðgerðarverkstaeði eða svipað-
ar aðstæður.
Dómsmálaráðherra getursett regl-
ur um undanþágu frá notkun
öryggisbeltis, ef heilsufars- eða
læknisfræðilegar ástæður eru taldar
gera slíka undanþágu brýna.
Ökumanni leigubiffeiðar til mann-
flutninga er eigi skylt að nota
öryggisbelti 'í leiguakstri.
Dómsmálaráðherra getur sett regl-
ur um undanþágu frá notkun
öryggisbeltis við annan sérstakan
akstur eða við erfið og hættuleg skil-
yrði utan þéttbýlis, svo sem í mikilli
ófærð eða þar sem hætta getur verið
á skriðuföllum eða snjóflóðum."
-KMU
Ennþá er opin smuga fyrir meiri umferðarhraða á Miklubraut.
Ný túlkun á umferðariögunum:
Skoðanakonnun fyrir Umferðarráð:
Tæp 58%
Akveða má 100 km
með bílbelta-
sektum
Meirihluti aðspurðra í skoðana-
könnun, sem Hagvangur gerði fyrir
Umferðarráð síðastliðið haust, telur
rétt að beita sektarákvæðiun varð-
andi notkun á bflbeltum. Þessar
upplýsingar koma fram í bæklingi
sem Umferðarráð hefur dreift til al-
þingismanna.
Rétt að beita sektum töldu 57,8
prósent þeirra sem tóku afstöðu. 42,2
prósent töldu rangt að beita sektum.
Fram kom að konur voru hlynntari
sektarákvæðum en karlar.
Einnig var spurt um bílbeltanotk-
un. 48,3 prósent sögðust nota bílbelti
að jafhaði, 26,4 sögðust nota bílbelti
stundum en 25,4 prósent sögðust
ekki nota bílbelti. -KMU
hraða á Miklubraut
„Ég kannaði þetta í gær. Það er
opin ennþá smuga fyrir meiri öku-
hraða á Miklubraut og Kringlumýrar-
braut,“ sagði Jón Kristjánsson,
formaður allsherjamefiidar efri deild-
ar Alþingis, sem fjallaði um umferðar-
lagafrumvarpið milli umræðna í
deildinni.
Frumvarpsgreinin um almennar
hraðatakmarkanir, 37. grein, hljóðar
svo eftir samþykkt efri deildar:
„í þéttbýli má ökuhraði ekki vera
meiri en 50 km á klst.
Utan þéttbýlis má ökuhraði ekki
vera meiri en 80 km á klst., þó 90 km
á klst. á vegum með bundnu slitlagi.
Ákveða má hærri hraðamörk á til-
teknum vegum, þó eigi meira en 100
km á klst., ef aðstæður leyfa og æski-
legt er til að greiða fyrir umferð, enda
mæli veigamikil öryggissjónarmið eigi
gem þvi.
Ákveða má lægri hraðamörk þar
sem æskilegt þykir til öryggis eða af
öðrum ástæðum.“
Jón Kristjánsson sagði, eftir að hafa
rætt við lögfræðinga dómsmálaráðu-
neytisins, að málsgreinin „ákveða má
hærri hraðamörk á tilteknum vegum,
þó eigi meira en 100 km á klst....enda
mæli veigamikil öryggissjónarmið eigi
gegn því“ ætti ekki aðeins við vegi
utan þéttbýlis heldur einnig í þéttbýli.
Málsgreinin opnaði fyrir meiri öku-
hraða en 50 km á klst. á götum eins
og Miklubraut í Reykjavík. -KMU
Cherokee
ÞAÐ ER VALIÐ
pÉMpf
ECILL VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202
1. NY6CYL. VEL, 173HO
2. SELEC TRAC = ALDRIF = LÆST 4X4 DRIF, HÁTT OG <
LÁGT = VENJULEGT AFTURHJÓLADRIF.
3. 4 GÍRA SJÁLFSKIPTING M. OVERDRIVE.
4. VINNSLUVALROFI = MEIRIKRAFTUR, MINNIEYÐSLA