Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
7
Atvinnumál
Loðnuveiðamar á næsta ári:
Hiygningarstofninn mun
minni en búist var við
- Ijóst að veiðamar munu dragast saman en hve mikið liggur ekki fýrir, segir Jakob Jakobsson
Samkvæmt heimildum, sem DV tel-
ur áreiðanlegar, benda loðnurann-
sóknir Hafrannsóknastofnunar í
janúar sl. til þess að sá loðnustofn, sem
kemur til með að hrygna næsta ár og
verður því uppistaðan í loðnuafla
næstu vertíðar, verði minni en menn
höfðu búist við og var þó vitað að
hann yrði minni en hrugningarstofn-
inn að þessu sinni.
Þetta var borið undir Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðing sem stjómar
loðnurannsóknum. Hjálmar sagðist
ekkert vilja um málið segja á þessu
stigi annað en það að vitað væri að
sá hrygningarstofn sem kæmi á næstu
vertíð yrði minni en sá sem nú væri
að hrygna.
Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar vildi heldur
ekkert segja um málið fyrr en það
hefði verið kynnt réttum aðilum. Hann
sagði þó að það hefði verið vitað að
stofninn næsta ár yrði minni en í ár
en hve mikið vildi hann ekki segja
fyrr en síðar.
Samkvæmt heimildum DV er hér
ekki um smáminnkun að ræða. Til-
lagna Hafrannsóknastofnunar um
loðnukvóta næstu vertíðar er ekki að
vænta fyrr en eftir fund með fiskifræð-
ingum frá Noregi og Danmörku fyrir
hönd Grænlands en þeir hafa tekið
þátt í loðnurannsóknum með íslensku
fiskifræðingunum undanfarin ár.
-S.dór
Loðnufvystingu
lokið í Eyjum
- alls vom fiyst 2.100 tonn
Ómar Garðaisson, DV, Vestmaimaeyjum;
Loðnufrystingu lauk í Vestmannaeyj-
um i fyrradag. Eins og komið hefur
fram hefur fiysting gengið einstaklega
vel þetta árið.
Hjörtur Hermannsson, sem hefur
yfirumsjón með frystingunni hér í
' Eyjum, var inntur frétta af þvi hvem-
ig frysting hefði gengið.
„Frá og með deginum í dag er búið
að frysta héma 2.100 torm á móti rúm-
um 1.200 í fyrra. Veðrið hefur leikið
við okkur. Það eina sem komið hefur
upp á er áta í ldðnunni. Við erum
búnir að fylla upp í alla samninga."
í gær vom hrogn farin að losna úr
loðnunni og er reiknað með að
hrognataka hegist þá og þegar.
-ój
■ ■
DV-myndir Omar
Kappsamlega unnið á siðasta degi loðnufrystingarinnar í Fiskiðjunni.
Hjörtur Hermannsson hefur haft yfirumsjón með frystingunni.
riAMCIJeep
- UMBOÐIÐ
TILKYNNIR
Af gefnu tilefni vilja AMC-verksmiðjurnar vekja at-
hygli þeirra sem hug hafa haft á að festa kaup á
nýlegum AMC-bifreiðum (Wagoneer - Cherokee -
Eagle) að bifreiðar, sem ekki eru fluttar inn til landsins
á vegum AMC-umboðsins á íslandi, njóta engrar
ábyrgðar eða annarrar fyrirgreiðslu af hendi AMC-
verksm. M.a. skal vakin ath. á að mismunur er á framl.
fyrir USA og ísland.
riAMC UMBOÐIÐÁ ÍSLANDI