Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Utlönd
Danskir vetk-
fræðingar flýja
hið opinbera
Háukur L. Háukssan, DV, Káupmannahofh:
Samkvæmt félagi danskra verk-
fræðinga sagði tólfti hver verkfræð-
ingur hjá hinu opinbera stöðu sinni
lausri á síðasta ári. Talar verkfræð-
ingafélagið um fjöldaflótta frá hinu
opinbera. Félagið upplýsir einnig að
áttundi hver verkfræðingur skipti um
starf, þó innan hins opinbera.
Aukið vinnuálag, launastöðnun og
vinnuvika, sem aldrei er undir 39
klukkustundum, eru að áliti tals-
manna verkfræðingafélagsins aðalor-
sakir flóttans írá hinu opinbera. Er
oft um að ræða mikinn missi fyrir
mörg sveitarfélög þar sem viákomandi
þekkir oftast aðstæður hvers staðar
út og inn og tekur langan tíma að
setja nýjan verkfræðing inn í starfið.
Renni þar ófáar vinnustundir í va-
skinn.
Fawn Hall, fyrrum einkaritari Olivers North ofursta, ræðir við tréttamenn
ásamt lögfræðingi sínum. Talið er að hún búi yfir einhverri vitneskju varð-
andi vopnasöluna til írans. simamynd Reuter
Reagan sagði
brandara á fundum
Ólafor Amaiaon, DV, New Yorlc
Neíndin, sem skipuð var til að
rannsaka vopnasöluna til írans. hefur
komist að því að Reagan forseti hafi
vitað eitthvað um vopnasöluna frá
upphafi og fengið reglulegar upplýs-
ingar um hana eftir því sem sendin-
gamai' urðu fleiri. Er það haft eftir
embættismönnum sem kunnugir eru
skýrslu nefndarinnar.
Émbættismennirnir segja að skýrsl-
an, sem verður gerð opinber á morgun,
sýni að Reagan hafi oft rætt íransmál-
ið á morgunfundum með John Po-
indexter sem þá var öryggisráðgjafi
forsetans. Skýrslan leiðir einnig í ljós
að þátttaka forsetans í þessum umræð-
um hafi verið mjög lítil. Oft hafi hann
einungis spurt um bandarísku gíslana
sem eru í haldi í Líbanon og sagt gam-
ansögur, að sögn embættismanna sem
hafa séð skýrsluna.
í henni kemur einnig fram að Oliver
North hafi farið mjög frjálslega með
stefnu stjómarinnar í vopnasölumál-
inu og efnahagslegum stuðning við
contraskæruliðana. Hafi hann farið
langt út fyrir þann ramma sem Hvita
húsið ætlaði honum.
Reagan forseti staðfesti í gær að
hann gæti ekki munað hvort hann
hefði gefið leyfi til fyrstu vopnasend-
ingarinnar til Irans sem var í septemb-
er 1985. Á fundi með háttsettum
aðilum úr viðskiptalífinu sagðist Re-
agan í þvi sambandi vilja spyrja alla
viðstadda einnar spumingar. „Allir
sem muna hvað þeir voru að gera 8.
ágúst 1985 rétti upp hönd.“ Það kom
í ljós að enginn rétti upp hönd.
Smygla núna
myndböndum
Háukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahofa:
Smyglvenjur Dana hafa breyst tölu-
vert undanfarið ár. í stað þess að fela
lengjur með sígarettupökkum eða
brennivínsflöskur í farangiinum reyna
þeir nú að smygla skartgripum, mynd-
bandstækjum, plötum og snyrtivörum
sem er dýrt að kaupa í Danmörku
vegna hárrar álagningar ríkisins.
Hinar breyttu smyglvenjur tryggja
ríkiskassanum hærri upphæðir í formi
tolla og sekta. Þannig er ekki óvana-
legt að farþegar greiði tíu þúsund
danskar krónur af tvö þúsund króna
myndbandstæki á staðnum.
Um síðustu áramót tóku tollyfirvöld
í Danmörku sama fyrirkomulag í
notkun og tíðkast víðast hvar annars
staðar, það er rautt hlið fyrir þá sem
eru með tollskyldan vaming og grænt
fyiir þá sem ekkert tollskylt hafa.
Samkvæmt frásögn tollþjóns á Kast-
rupflugvelli er mikið um tollskýrslur
þessa dagana þar sem tollar og sektir
nema tíu þúsund dönskum krónum
eða meira.
Fólk reynir í auknum mæli að
smygla ódýmm raftækjum frá Aust-
urlöndum. Þó reglumar standi skýrum
stöfum á verðlista flugvélanna er mjög
algengt að fólk kaupi margfalt leyfi-
legt magn snyrtivara en þær em mjög
dýrar í Danmörku.
Þrátt fyrir oft og tíðum háar sektir
greiðir um helmingur farþeganna
sektirnar á staðnum.
Stjómvöld hvött til
aðgerða gegn eyðni
Gunnlaugur A Jónssan, DV, Lundi:
Vaxandi óþolinmæði gætir nú í
sænskum fjölmiðlum vegna seina-
gangs og aðgerðaleysis stjórnvalda í
baráttunni gegn eyðni. Svo virðist sem
augu fólks séu almennt að ljúkast upp
fyrir alvöm málsins. Þær raddir sem
fyrir nokkm héldu þvi fram að hræðsl-
an við eyðni væri stærra vandamál en
sjúkdómurinn sjálfúr virðast nú þagn-
aðar. „Eyðni er ekki aðeins heilbrigð-
isvandamál heldur samfélagsvanda-
mál af verstu tegund,“ segir í leiðara
eins dagblaðanna undir fyrirsögiiinni
Eyðni mitt á meðal okkar.
Gertmd Sigurdsen heilbrigðismála-
ráðherra skýrði í síðastliðinni viku frá
þeirri ákvörðun stjómvalda að láta
banna gufubaðsklúbba homma í þeim
tilgangi að draga úr smithættu. Að
öðm leyti hefur lítið farið fyrir aðgerð-
um stjómvalda sem segjast bíða eftir
tillögum sérfræðinga á heilbrigðis-
sviðinu. Læknar í Lundi eru teknir
að úthluta ókeypis sprautum til fikni-
efnaneytenda þrátt fyrir að það varði
enn sem komið er við Iög.
Aðgerð, sem helst er beðið eftir og
vænlegust þykir, er almennt blóðpróf
eða að minnsta kosti að eyðnipróf sé
tekið af öllum þeim sem af einhveijum
ástæðum þurfa að gangast undir blóð-
próf. Enn sem komið er er það ekki
leyfilegt og er því lítið vitað um raun-
vemlega útbreiðslu eyðnismitsins í
Svíþjóð. Blóðpróf í fangelsum munu
þó hafa aukist mjög og á síðastliðnu
ári munu alls hafa verið tekin 70 þús-
und blóðpróf í Svíþjóð í þeim tilgangi
að leita að eyðni. Smit fannst í 579
tilfella.
Nýlega tók einn af kunnustu rithöf-
undum Svíþjóðar sig til og samdi
leikþátt sem ætlaður er til að vekja
til umhugsunar um eyðni. Aðeins eitt
hlutverk er í leikritinu og var Emst
Hugo Járegárd, einum albesta og
þekktasta leikara Svíþjóðar, fengið
hlutverkið. Leikþátturinn verður ein-
göngu fluttur á vinnustöðum.
„Þetta er svarti dauði okkar tíma,“
segir höfundur verksins.
Þá hefur SIDA, sænska stofnunin
fyrir alþjóðlega þróunaraðstoð, í und-
irbúningi umfangsmikið vamarstarf
gegn eyðni í þriðja heiminum, í lönd-
um eins og Angóla, Kenýa,- Zambíu
og Víetnam. „Afstaðan til sjúkdómsins
í þessum löndum hefur breyst mjög
og enginn skortur er nú á samstarfs-
vilja stjómvalda,“ segja talsmenn
SIDA sem fyrst og fremst ætla að veita
fræðslu um smitleiðir og koma í veg
fyrir þær smitleiðir sem þegar hefur
að mestu tekist að hefta á Vesturlönd-
um, það er smit við blóðgjöf.
Jafntefli í áskor-
endaeinvíginu
Sovésku stórmeistararnir, Ana-
toly Karpov og Andrei Sokolov,
gerðu j afntefli í fyrstu einvígisskák
þeirra um réttinn til þess að skora
á heimsmeistarann, Garry Ka-
sparov.
Þetta flórtán skáka einvígi fer
fram í bænum Linares í Andalúsíu
á Spáni og byrjaði Sokolov með
hvítt. Karpov tefldi Carocann-vörn
og þótti Sokolov um hríð standa
til vinnings en Karpov komst út í
hróksendatafl þar sem Sokolov
bauð honum jaftitefli eftir 35 leiki.
Kvaðst Karpov vel ánægður með
jafnteflið.
Loks sammála um skattabreytingar
Gerard Stolfenberg, fjármálaráðherra V-Þýskalands (annar frá hægri á myndinni), tilkynnti á blaðamannafundi i
Bonn í gær að stjómarflokkarnir þrír, sem hafa verið i stöðugum viðræðum eftir kosningarnar (25. jan.) um nýj-
an stjórnarsáttmála, hafi nú loks orðið ásáttir um skattalagabreytingar. Með honum eru á myndinni framkvæmda-
stjórar flokkanna (f.v. talið): Gerald Tandler (CSU), Helmut Hausmann (FDP) og hins vegar við Stoltenberg situr
Heiner Geissler (CDU).
Símamynd Reuter