Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
9
Utlönd
Carisson reiddist illa
á þingi Norðuriandaráðs
Haukur L. Hauksscn, DV, Kaupmannahodn:
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sem fram að þessu hefur
þótt mun friðsamlegri í samskiptum
við stjómarandstæðinga i Svíþjóð
heldur en fyrirennari hans, reiddist
illa á þingi Norðurlandaráðs í Hels-
inki í gær og hundskammaði einn
af þingmönnum sænska Miðflokks-
ins.
Það var við umræður um málefrii
Suður-Afríku sem Gunnel Jonang,
þingmaður Miðflokksins, hafði
gagnrýnt Carlsson fyrir að koma
„tómhentan“ til Helsinki varðandi
Suður-Afríkumálið. Nú, þegar ljóst
væri að öiyggisráð Sameinuðu þjóð-
anna myndi ekkert aðhafast, hefði
Carlsson ekki átt að bíða lengur
heldur nota tækifærið á fundi Norð-
urlandaráðs og boða einhhða við-
skiptabann Svía á Suður-Afríku.
Carlsson tók gagnrýninni mjög illa
og margkvartaði undan henni við
fréttamenn og við móttöku síðar i
gær leitaði hann uppi Gunnel
Jonáng og hellti sér yfir hana.
„Þetta var óneitanlega óþægileg
uppákoma. Það er greinilegt að þetta
er mjög viðkvæmt mál fyrir forsætis-
ráðherrann," sagði þingmaðurinn.
Ein af ástæðimum fyrir viðkvæmni
Carlssons kann að vera sú að áður
hafa ýmsir gefið í skyn að Palme
hefði sýnt meiri hörku í Suður-Afr-
fkumáhnu hefði hann lifað. Almennt
er þó reiknað með að sænska ríkis-
stjómin muni þegar i næstu viku
boða viðskiptabann á Suður-Afríku.
Sýriendingar
harkalegir í Beirút
Obreyttir, (riðsamir borgarar hafa loks nú á allra síðustu dögum getað hætt
sér út fyrir til þess að gera nauðsynleg innkaup í verslunum þeim sem ennþá
eru uppistandandi en hafa ekki verið lagðar í rúst í skálmöldinni.
Slmamynd Reuter
Sýrlenskir herflokkar eru sagðir
hafa gengið mjög harkalega fram við
að friða múslimska borgarhlutann i
Vestur-Beirút í gær og er sagt að þeir
hafi stráfellt milli tuttugu og þrjátíu
varðliða úr samtökum Hizbollah sem
þó hefðu verið búnir að leggja niður
vopn og gefast upp fyrir þeim.
Sýrlendingamir hafa siðustu daga
lagt kapp á að hrekja úr skotvígjum
hina ýmsu baráttuhópa og afvopna þá.
í gær tóku þeir með áhlaupi byggingu
sem varðliðar Hizbollah höfðu á valdi
sínu. (Hizbollah þýðir „Flokkur Guðs“
og er hlynntur stefhu æjatollanna í
íran.) Var þá skotið á sýrlensku her-
menmna.
Þeir hófu þá í staðinn leit í öllum
nálægum húsum að vopnuðum mönn-
um og hótuðu íbúum að þeir mundu
sprengja upp hveija þá byggingu sem
notuð væri til þess að skjóta á þá úr.
Þegar þeir hreinsuðu til í Fathalla-
herskálunum, þar sem róttækir shítar
hafa haft aðsetur, var skotið á Sýr-
lendingana úr Al-Jazira-byggingunni
andspænis og hófst þá heiftarlegur
skotbardagi. Sjónarvottar sáu síðar
hvar Sýrlendingar drösluðu líkum
rúmlega 20 Hizbollah-varðliða út úr
byggingunni og hentu upp á vömbfla.
- Aður höfðu sýrlensku hermennimir
umkringt hverfið með fjölmennu liði.
Þær sögur fara af Fathalla-skálun-
um að vestrænir gíslar hafi stundum
verið hafðir þar í haldi áður.
Sýrlendingar, sem em nú með 7 þús-
und manna herlið, brynvagna og
skriðdreka í Beirút, hafa látið boð út
ganga meðal baráttuhópa múslima
jafnt sem kristinna að hver leyniskytta
eða aðrir, sem ekki leggja frá sér vopn-
in, verði teknir af lífi þegar til þefrra
náist. Þeir hafa yfirtekið yfir 50 skrif-
stofur og bækistöðvar baráttuflokka,
skotið tólf leyniskyttur (auk Hiz-
bollahdrápanna í gær) og tekið til
fanga tíu menn.
Beirútbúar, langþreyttir af ófriðnum i höfuðborginni, hafa yfirleitt fagnað komu sýrlensku herflokkanna til borgarinn-
ar. Simamynd Reuter