Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
11
Utlönd
Abdallah
ekki
sjálfur í
réttar-
salnum
Runninn er upp þriðji dagur réttar-
haldanna yfir Líbanonmanninum
Abdallah, sem er ákærður fyrir
hryðjuverk og hlutdeild í hryðjuverk-
um en sjálfur er hann ekki viðstaddur
réttarhöldin. Kallar hann þau pólit-
ískan skrípaleik, settan á svið af
heimsvaldasinnum og auðvaldsríkjun-
um Frakklandi og Bandaríkjunum.
Abdallah er ákærður fyrir hlutdeild
í morðunum 1982 á bandarískum herr-
áðgjafa og ísraelskum diplómat.
Ennfremur fyrir morðtilræðið við
bandarískan ræðismann 1984. - Hann
er talinn hafa stoíhað og stjómað
hryðjuverkahópi frá Líbanon (FARL)
sem hefur lýst þessum morðum á hend-
ur sér.
Þegar Abdallah var handtekinn í
Frakklandi í fyrra upphófst mikil
hryðjuverkaalda. Þar á meðal vom
fimm sprengingar í París í september
en í þeim létu ellefu manns lífið og
hundrað og sextíu særðust.
Bandaríkjastjórn hefur áheymar-
fulltrúa við réttarhöldin.
Vegna hættunnar á að hryðjuverka-
öfl, sem standa að baki Abdallah,
reyni að hefna fyrir réttarhöldin yfir
honum i París hafa þjónar réttvisinnar
á sér mikinn andvara. Meira að segja
holræsakerfisins undir dómhúsinu er
vandlega gætt.
- Simamynd Reuter
Franska lögreglan hefur mikinn viðbúnað vegna réttarhaldanna yfir Ab-
dallah og hættunnar á þvi að hryðjuverkaöfl reyni að frelsa hann úr höndum
réttvísinnar. Þessir tveir lögreglumenn eru á verði á þaki dómhússins.
- Simamynd Reuter
Jómfrúferð Airbus A320
Jómfrúferð evrópsku flugvélarinnar, „Airbus A320“, sem fór sina fyrstu ferð í fyrradag, gekk að óskum. Lagði
vélin upp frá Toulouse í Frakklandi og endaði ferðina þar aftur eftir þriggja og hálfrar stundar ferð. - Það var glatt
á hjalla í Toulouse af þessu tilefni en við það tækifæri er myndin hér fyrir ofan tekin, Dreift var þúsund kampa-
vinsflöskum meðal starfsliðs til þess að halda upp á daginn. - simamynd Reuter
LOGSUÐU- OG SKURÐARTÆKI
Slöngurá
105 kr m
Logsuðusett frá
kr 8.650,-
Gas- og súrmælar,
kr.2.81 3#“
Arconmælar,
kr ,933f”
Útsölustaðir:
Verslun G. Þorsteinsson, Ármúla 1
Atlabúöin, Akureyri
Bílaverkstæöi Dalvíkur
Skipavík, Stykkishólmi
jón Fr. Einarsson, Bolungavík
Þröstur Marsellíusson, ísafiröi
Kaupfélag Ámesinga, Selfossi
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 10-13.
ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533