Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1987.
Neytendur
1
í 'Op*
Fjöldinn allur af líkamsræktarstöðvum hefur risið víða um land á undanförnum árum og þvi ætti að vera vanda-
laust að stunda líkamsrækt hvort sem er úti eða inni.
Fítnar folk í
megrunarkúrum?
Ekki nóg að gæta að mataræðinu, hreyfing er einnig nauðsynleg, segir Gísli Ðnarsson læknir í grein í Þiymli
Megrun og offita eru málefni sem
nánast allir hafa áhuga á. Margir
halda að til þess að megra sig sé nauð-
synlegt að halda í við sig af öllum
mætti, borða sem allra minnst og bara
ákveðnar matartegundir. Þetta er
hinn mesti misskilningur. Þeir sem eru
of þungir og ætla sér að létta sig mega
aldrei sleppa úr máltíð. Þeir geta borð-
að langflestan mat en ekki eins mikið
og þeir eru vanir.
Það er einmitt ef þeir fara að sleppa
úr mikilvægum þáttum úr mataræðinu
sem vandræðin hefjast fyrir alvöru.
Þá vantar mikilvæg efni í líkamann.
Það er alkunna að þeir sem eru of
feitir hafa tamið sér að borða „ramm-
vitlausan mat“ og þannig líða þeir af
hörgulsjúkdómi sem lýsir sér í offitu.
Þannig geta megrunarkúrar beinlínis
valdið offitu.
Þetta sýnist þversögn en í ársriti
nema í sjúkraþjálfun, Þrymli, er grein
eftir Gísla Einarsson lækni þar sem
þessar kenningar eru ræddar. Þar seg-
ir m.a. með leyfi útgefanda:
„Segja má að til séu tvær aðferðir
fyrir fri'skt fólk að minnka líkams-
þyngd sína, annars vegar að borða
minna og hins vegar að hreyfa sig
meira. Hið undarlega er að megrunar-
kúrar liðinna ára og áratuga einskorð-
ast nær einvörðungu við ráðleggingar
um að borða minna ásamt matarupp-
skriftum og hollráðum um hvemig
fara skuli að því. Margir megrunar-
kúranna byggja á þeirri gmndvallar-
reglu að einungis skuli neytt einnar
eða mjög fárra matartegunda. Má sem
dæmi nefna „ananaskúrinn“, „ban-
anakúrinn", „eggjakúrinn" og marga
fleiri þvílíka. í flestum tilfellum gengur
megrunin mjög vel fyrstu dagana eða
fyrstu vikuna og léttist fólk um 4-5
kg á fyrstu dögunum. Því miður er
hér ekki um minnkun á fituvef h'k-
amans að ræða heldur er það að mestu
leyti vatn, svo og vatnsblanda kol-
vetnis (glykogen) sem geymt er í
vöðvum líkamans og lifrinni. Glykog-
en er raunar varaforði líkamans ef að
sverfur til skamms tíma. Missi maður
þennan forða lækkar blóðsykur, hung-
urtilfinning eykst, svo og þreyta og
deyfð, sem sem flestir þeir sem reynt
hafa megrunarkúra kannast vel við.
Að loknum kúmum bætir líkaminn
sér upp þennan varaforðamissi og má
þá búast við að þyngdin aukist á nýjan
leik um 4-5 kg af þeirri ástæðu einni.
Ef um er að ræða megrun i lengri
tíma fer að ganga á fituvef líkamans.
Gallinn er þó sá að aðrir vefir lík-
amans rýma einnig, ekki síst vöðva-
vefur. Sá sem vill grenna sig má þó
síst við því þar sem starfsemi vöðva-
vefs krefst mun meiri orku en starf
fituvefs og verður niðurstaðan því sú
að viðkomandi brennir minni orku
eftir kúrinn en áður. Hlutfóllin milli
fitu og vöðvavefs breytast einnig og
getur svo farið að fituhlutfallið verði
hærra en það var áður en megrun
hófst. Þetta er einmitt skýring þess
að megrunarkúrar ganga yfirleitt
mjög illa nema helst í bvrjun og mis-
takast hjá flestu fólki er til langs tíma
er litið. Raunar er það svo að stór
hluti fólks, sem telur sig of feitt og
hefur áhuga á að losa sig við fituvef,
er meira og minna i stöðugri megrun.
Sýnir það betur en flest annað hald-
leysi megrunarkúra einna og sér og
má þá til sanns vegar færa þáð sem
einn kunnáttumaður á þessu sviði lét
hafa eftir sér nýlega að: „fólk verður
feitt af að vera í megrun“.“
Feitir borða ekki meira en mjóir
Þá segir í grein Gísla að til þess að
fituvefur líkamans aukist verður við-
komandi að hafa innbyrt fleiri hitaein-
ingar eða meiri orku en hann notaði
á ákveðnu tímabili. Þá kemur vanda-
málið við að ná þessum aukakílóum
af sér aftur. Hann segir að ýmislegt
bendi til þess að feitt fólk borði yfir-
leitt ekki meira en grannt fólk svo
neinu nemi.
Ástæðuna telur Gísli vera að fituvef-
ur hefur minni orkuþörf en vöðvavefur
og þeir sem eru feitir hafa minni
vöðvavef þannig að orkuþörf og orku-
neysla of feitra verður minni.
Niðurstaðan er þvi sú að margt feitt
fólk lendir í vítahring.
Gísli segir að ekki megi skilja orð
hans svo að allir megrunarkúrar séu
ranglega samansettir í næringarfræði-
legu tilliti eða að megrunarklúbbar
veiti fólki rangar upplýsingar. Hins
vegar hafa einungis örfáir staðfestu
eða getu til að fylgja kúmum ná-
kvæmlega og einnig að brevta svo
lifnaðarháttum sínum á eftir þannig
að ekki sæki aftur í sama horfið og
áður.
Gísli segir að of feitt fólk sé nánast
stöðugt í megrun en án árangurs.
Einnig bendir hann á að fjöldi megr-
unarkúra sé nánast óendanlegur og
má af því marka, segir í greininni. að
enginn einn eða nokkiir geta verið
mjög afdrifaríkir þar eð slíkir myndu
fljótlega verða einráðir á markaðin-
um.
Breytt mataræði og aukin
hreyfing
Hvað er þá til ráða?
Ekki dugir að breyta mataræðinu
einu heldur verður að auka hrevfingu.
Án þess getur megrun leitt til fituvefs-
aukningar. Fituvefur er varaforði
líkamans sem hægt er að grípa til ef
hungur sverfur að. Leiða má líkum
að því að því oftar sem einstaklingur-
inn grípur til megrunarkúra því betur
reynir líkami hans að veija þennan
varaforða ágangi. Vefjarý’rnun getur
því orðið þar sem síst skvldi. þ.e. á
vöðvavef.
Það sem þaif að gera er að brevta
mataræði sínu til frambúðar og jafn-
framt taka upp hæfilega líkamshreyf-
ingu, skokk, sund eða eitthvað annað
sem reynir alhliða á líkamann.
í grein sinni mælir Gísli með þvi að
skokkað sé í hálftíma um það bil þrisv-
ar í viku til þess að bæta úthald sitt
og auka súrefnisupptöku vöðva.
-A.BJ.
HJOLKOPPAR I URVALI
VARAHLUTAVERSLUNIN
0 3 7 2 7 3
13
OKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaðri vinnu. Þú stundar námið heima
hjá þér á þeim hraða sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8
milljónir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann. Líttu á
listann og sjáðu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfa-
skólinn hefur örugglega námskeið sem hæfir áhuga þínum
og getu. Prófskírteini í lok námskeiða. Sendu miðann strax
í dag og þú færð ókeypis bækling sendan í flugpósti. (Setj-
ið kross í aðeins einn reit.) Námskeiðin eru öll á ensku.
□
□
□
□
□
Tölvuforritun
Rafvirkjun
Ritstörf
Bókhald
Vélvirkjun
□
□
□
□
Almennt nám
Bifvélavirkjun
Nytjalist
Stjórnun
fyrirtækja
Garðyrkja
Kjólasaumur
□ Innanhúss
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaða
□ Blaðamennska
□ Kælitækni og
loftræsting
Nafn .
Heimilisfang ................................................
ICS International Correspondence schools Dept. Y.M.S. 312/314
High Street, Sutton, Surrey SM 1 1PR, England
MERCEDES BEIMZ
280 SE árg. 1982
Til sölu gullfallegt eintak, rækilega útbúið, s.s. velúr-
innrétting, sjálfskiptur, rafmagn I rúðum, sóllúga,
sportfelgur, ekinn 93.000 km. Skipti - skuldabréf.
BÍLATORG
NÓATÚN 2 - SÍMI 621033
Auglýsing til
mjólkurframleiðenda
er ætla að taka tilboði Framleiðnisjóðs um
sölu eða leigu fullvirðisréttar næsta haust
Ríkissjóður mun frá og með 23. febrúar 1987 til og
með 31. ágúst 1987 gefa þeim mjólkurframleiðendum
er ætla að taka tilboði Framleiðnisjóðs næsta haust
kost á því að hætta framleiðsiu nú þegar. Fyrir hvern
I af ónotuðum fullvirðisrétti þessa verðlagsárs mun
ríkissjóður greiða 15 kr.
Tilboð þetta er háð samþykki viðkomandi búnaðar-
sambands.
Eigi verður leigt minna magn hjá hverjum framleið-
anda, nema sérstakar ástæður liggiTyrir, en sem svarar
til 20% af úthlutuðum fullvirðisrétti hans verðlagsárið
1986/87.
Greiðsla leiguupphæðar fer fram eigi síðar en þremur
vikum frá undirskrift samnings.
Skrifleg umsókn sendisttil landbúnaðarráðuneytisins,
Arnarhvoli, 150 Reykjavík, en það veitir jafnframt allar
nánari upplýsingar.
19. febrúar 1987
Landbúnaðarráðuneytið.