Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Spumingin
Finnst þér fræðsluher-
ferðin gegn eyðni hafa
verið nægjanleg?
Þórlaug Haraldsdóttir, starfar í far-
miðasölu BSÍ: Nei, hún gæti verið
kraftmeiri. Smokkaæðið hefur nátt-
úrlega komið umræðunni vel á stað
en mér finnst ekki mega einblína á
þá, það mætti leggja meiri áherslu á
að reyna að draga úr lauslætinu.
Þetta er hætta við hvers manns dyr
þannig að fræðslan verður að vera
markviss.
Sigriður Gissurardóttir húsmóðir:
Já, í alla staði er fræðslan að auk-
ast. Ég tel það gott sem komið er.
Rúnar Vífilsson nemi: Ég tel hana
alveg ágæta hér eins og annars stað-
ar. Smokkaherforðin hefur lagt sitt
af mörkunum í baráttunni gegn
eyðni og vakið athygli á hversu
hræðilegur sjúkdómur þetta er.
Einar Jóelsson verkamaður: Mér
finnst að taka megi harðar á þessu
máli. Mér fmnst eðlilegast að taka
eyðnisjúklinga úr umferð í þjóðfélag-
inu og einangra þá.
Ingibjörg Stefánsdóttir fóstra: Það
er alltaf gott að fá umræður um þarft
mál sem þetta. Smokkaherferðin hef-
ur hrist laglega upp í þessari umræðu
en allt getur farið út í öfgar. Mér
finnst of lítil áhersla lögð á aðalvörn-
ina en það er að draga úr fjöliyndinu.
Sigurður Jónsson: Mér finnst fræðsl-
an alveg orðin nógu mikil nú þegar.
Fólk er farið að gera sér fyllilega
grein fyrir þessum sjúkdómi og þeim
afleiðingum sem honum geta fylgt.
Lesendur
„Allt vrtlaust“
Maria Björnsdóttir hringdi:
Ég fór á „showið" í Broadway,
Allt vilaust, og þessi sýning stóð svo
sannarlega undir naíhi, þar var allt
á fullu og hvergi gefið eftir.
Mér fannst dansamir alveg ferlega
frumlegir og góðir og var einnig
mjög ánægð með lagavalið. Af öllu
fannst mér söngvarinn Eyjólfúr
Kristjánsson bera af, hann lifði sig
svo inn í hlutverkið að það er alveg
synd að hann skuli ekki hafa verið
uppi á þessu rokktímabili.
Að lokum vil ég þakka fyrir
ánægjulega og vel heppnaða sýn-
ingu. !
Ureltur
sektarmiði
7622-1774 skrifar:
Ég vil rétt aðeins segja frá sam-
skiptum mínum við lögregluna í
Reykjavík og á Reyðarfirði.
Þannig er mál með vexti að ég fékk
sekt á bíl minn á Reyðarfirði vegna
rangstæðu, eins og þeir kalla það.
Sektarmiðinn, sem ég fékk hjá lögg-
unni þar, var heldur betur fornaldar-
legur því hann var frá árinu 1970
en það var búið að breyta ártalinu
með penna í 1987. Miðinn var því frá
því fyrir myntbreytinguna og þar af
leiðandi elliær reglugerðin aftan á
honum og sektir í gömlum kr. Hljóð-
aði sekt mín'upp á 3 þús. kr. en eftir
minni eftirgrennslan em þessar
sektir í dag u.þ.b. 340 kr.
Lögregluþjónninn á Reyðarfirði
(Jónas nr. 1), sem sektaði mig, taldi
ekkert athugavert við þessa sekt.
Því var farið með sektarmiðann á
lögreglustöðina í Rvk. Fyrst var yfir-
‘lögregluþjóninn spurður um þetta
og honum fannst þetta svo ótrúlegt
að hann sagði að þetta hlyti að vera
grín. Mér var því vísað á annan lög-
regluþjón þarna á stöðinni sem
sagðist skyldi ltringja austur á Reyð-
arfjörð og athuga þetta en að því
tilskildu að hann fengi að halda
sektarmiðanum. Er ég ætlaði að
sækja sektarmiðann aftur (eins og
upphaflega stóð til) harðneitaði
löggan að láta mig fá hann. Sektar-
miðinn átti víst að fara til sýslu-
mannsins í Suður-Múlasýslu og hjá
honum fékk ég það svar að raiðann
fengi ég ekki.
Það er svo sem ekki mikið gagn í
að vera að sekta ef lögreglustöðin
gleypir síðan alla sektarmiðana, er
þá bara ekki óþarfafyrirhöfn að vera
að sekta á annað borð? Eða er
kannski bara verið að hylma yfir
úreltan sektarmiða? Til að bæta
gráu ofan á svart var tekið fi-am á
miðanum að bíllinn hefði staðið
ólöglegur við Heiðarveg en hann
stóð á Lindargötu.
Svona í lokin. það þarf heldur bet-
ur að fara að bæta löggæsluna á
Reyðarfirði.
Kristilegt rokk
Ein ánægð hringdi:
Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir
kristilegum hljómleikum sem haldn-
ir voru í Broadway við mikinn
fognuð áhorfenda. Aðsóknin var gíf-
urlega mikil og því vil ég hvetja þá
er að þessum hljómleikum stóðu að
gera meira að þessu.
Þama var múgur og margmenni
og stemningin var svo góð og allir
virtust skemmta sér svo vel. Þetta
er eitt það yndislegasta kvöld sem
ég hef upplifað.
Það er virkilega þörf á svona
hljómleikum sem hafa kristilegan
boðskap að leiðarljósi.
Allt vitlaust, sýning sem stóð svo sannarlega undir nafni.
Er kjötið
innflutt?
Guðjón hringdi:
Ég veit að það er eitthvert lítið
brpt af bandaríska hemum í Stokks-
nesi við Homafjörð, það væri gaman
að vita hvort það væri erlent eða
íslenskt kjöt sem er fiutt þangað á
stöðina.
Kynferðisafbrot
- hvers á saklaust bam að gjalda?
Sigurður skrifar:
Viðvíkjandi grein, sem birtist í DV,
um neyðaróp móður um herðferð
gegn kynferðisglæpamönnum vil ég
taka undir það sem þar kemur fram.
Manni líður hálfilla þegar maður les
svona grein og ósjálfrátt fer maður
að hugsa, ef bamið mitt yrði fyrir
þessu þá myndi ég ekki hika að taka
lögin í mína hendur. Því hvað gerir
réttarkerfið við þessa menn? Þetta
er vandasöm spuming en svarið er
einfalt, það gerir ekkert. Þessi menn
eru komnir strax út á götuna aftur
og halda uppteknum hætti. Það er
alveg vitað mál að það hlýtur að
vera eitthvað að þessurn mönnum
og þeir þurfa kannski hjálp en hjálp-
in felst ekki í því að leyfa þeim að
halda áfram að misnota saklaus
börn! Saklaust bam á ekki að gjalda
þess að „lúnitikar" leika lausum
hala í bænum.
Önnur dagblöð ættu að taka DV
til fyrirmyndar hvað varðar mynd-
birtinguna á síbrota kynferðis-
glæpamanni. Þá á að birta myndir
af svona fólki sem hefur staðið oftar
en einu sinni að svona ódæði til
þess að vara böm við þessum mönn-
um. Ef þessum mönnum er sýnd
einhver mótspyrna og viðurlögin
hert þá myndu þeir kannski hugsa
sig tvisvar um áður en þeir fremja
svona ódæðisverk.
Ég vil nota tækifærið og hvetja
foreldra til að standa saman og krelj-
ast þess að réttarkerfið hætti þessum
skrípaleik. Dómskerfið á að huga
meira að rétti barnanna og hætta
að vemda svona glæpamenn.
,,Eg horfi alltaf á þennan þátt og finnst mér hann alveg virkilega skemmtilegur."
RÚV:
„Ágætis afþreying“
Gunnlaugur Karlsson hringdi:
Mig langar að mótmæla þeim nei-
kvæðu skrifum sem hafa átt sér stað
á lesendasíðunni um þáttinn Sjúkra-
húsið í Svartaskógi. Ég horfi alltaf á
þennan þátt og finnst mér hann alveg
virkilega skemmtilegur og alveg ágæt-
is afþreying. Ef fólki finnst þessir
þættir svona leiðinlegir þá hlýtur að
vera langgreiðast að slökkva á imban-
um og leyfa þeim að fylgjast með
þáttunum sem hafa áhuga á þeim.
HRINGIÐ
ÍSÍMA
27022
MIIiLI KL.
13 OG 15
EÐA
SKRIFIÐ