Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
17
Hvernig væri að MX 21 færi landsbyggðarrúntinn svo sveitafólkinu gæfist kostur á að fá skerf af fjörinu.
MX 21 best
J. og B. skrifa:
Við viljum hvetja MX 21 til að fara
rúntinn í kringum landið til að halda
hljómleika. Þetta er svo óréttlátt, við
sveitafólkið fáum sjaldan eða nánast
aldrei tækfæri til að hlusta á jafnfrá-
bæra hljómsveit og MX 21. Þetta er
uppáhalds íslenska hljómsveitin okkar
og það væri æðislegt ef MX 21 sæi sér
fært að halda hljómleika á Akureyri.
Svona, strákar, drífið ykkur af stað.
Það er alveg furðulegt hvað er troðið inn á Borgina, hvar er eftirlitið eiginlega?
Yfirfullt á Borginni
Katrín hringdi:
Mikið hefur maður séð skrifað um
„fullt hús“ á Borginni. En ekki virð-
ast þau skrif hafa borið tilætlaðan
árangur þvi alltaf er jafntroðið á
Borginni.
Það er nú reyndar alveg merkilegt
hvað hægt er að bjóða fólki, því það
er ekki fræðilegur möguleiki að
skemmta sér þama, maður má telj-
ast heppinn að vera ekki genginn
niður í mannþyrpingunni. En mér
finnst það alls engin afsökun að for-
ráðamönnum þessa staðar skuli
líðast þetta að stappa og þjappa eins
mikið og þeir geta látið inn. Hvað
með þetta eftirlit ef svo má kalla
það, hvar er það eigilega? Ja, alveg
örugglega ekki á Borginni því þá
væri búið að loka staðnum.
Maður er orðinn svona hálfvon-
laus að það verði nokkuð garfað í
þessu eða nokkuð eftirlit haft með
staðnum. Þá er bara eitt til bragðs
að taka, lesendur góðir, skrifið og
látið heyra í ykkur, þið þekkið þetta
öll!
SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN.
Smáauglýsingadeild
EUROCAOD
- simi 27022.
LITANIR, SKOL OG STRÍPUR FYRIR ALLA
VERIÐ VELKOMIN
VALHOLL
ÓÐinSQÖTU 2, REYKJAVm
V HÁRQREIÐSLUSTOFA
SIMU22138
Rannsóknarstofur o.fl., Ármúla 1
Tilboð óskast í innanhússfrágang fyrir rannsóknarstof-
ur o.fl. í Ármúla 1 A í Reykjavík.
Rannsóknarstofurnar eru á hluta 1. hæðar og kiallara,
alls um 1100 m2. Auk þess skal ganga frá mötuneyti
o.fl. á um 150 m2. Einnig á aó steypa upp viðbygg-
ingu og ganga frá henni, um 200 m2. Á vinnusvæðinu
á aó leggja allar lagnir og loftræsingu, auk frágangs
veggja, gólfa, lofta og raflagna.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Reykjavík, til og með föstudegi 6. mars 1987
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 17.
mars 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGAFTTÚNI 7 SlWI 26644 PÓSTMÓLF 1441 TELEX 2006
N Á M S K E I Ð
saMskipti
f oreldra og barna
Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér
ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum
foreldra og barna. Þar verður m.a. fjallað um
hvað foreldrar geta gert til að:
• aðstoða börn sín við þeirra vandmál
• leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi
• byggja upp jákvæð samskipti innan tjöl-
skyldunnar
Námskeiðin byggja á hugmyndum Dr. Thomas
Gordons sálfræðings og hafa nær 1.000.000
foreldra sótt slík námskeið bæði í Bandaríkjun-
um sem í Vestur-Evrópu („Parents Effectiveness
Training").
Leiðbeinendur hafa hlotið tilskilda þjálfun og
leyfi til að halda þessi námskeið á íslandi.
Námskeiðin verða 3 klst. í einu, í 8 skipti.
Næstu námskeið byrja
mánud. 22 sept. og fimmtud. 25 sept.
Skráning og upplýsingar
í síma 25770 kl. 16 - 19.
saNskipti
FRÆÐSLA OG RÁOGJOF 5.F.