Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
VERSLUNARHÚSNÆÐI PENNANS
í Hafnarstræti 18 er til leigu frá 1. júní nk.
húsnæði samtals 279 m2 á 1. hæð ásamt 60
og 80 m2 húsnæði á 2. hæð. Skipta má hús-
næðinu í tvær verslanir. Tilboð, merkt „Hafn-
arstræti 18", sendist á auglýsingadeild DV,
Þverholti 11, fyrir 28. febrúar nk.
GROFUMAÐUR
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða gröfumann á JCB
vél. Viðkomandi þarf að hafa tilskilin vinnuvélarétt-
indi. Allar upplýsingar gefur yfirverkstjóri í áhaldahúsi.
Bæjarverkfræðingur.
RITARI
Laust er til umsóknar starf skólaritara við Flensborgar-
skóla. Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf, skulu
berast bæjarskrifstofunum í Hafnarfirði eigi síðar en
27. febrúar nk.
Bæjarstjórinn í Haínarfiröi.
getr§una-
VINNINGAR!
27. LEIKVIKA - 21. FEBRÚAR 1987
VIIMNINGSRÖÐ: 21X-1X1-X2X-111
1. VINIMINGUR: 11 RÉTTIR,
kr. 43.700
1237 47056(4/10) 58906(4/10)
3615(3/10)+ 47077(4/10) 63425(4/10) +
11044(2/10)+ 55915(4/10) 98566(6/10)
102856(2/11.10/10)-*-
125951(6/10) +
126189(6/10)
129743(6/10)4
220880(11/10)
640288
2. VINNINGUR: 10 RÉTTIR,
kr. 1.161,-
792 16132 49870 60789 125085 129527' 220343 613805
3544 18802 + 50492 60852 126003' + 130274' 220634'+ 613820
4223 41377 50465 61420 126139 + 130414 + 220638'+ 639490'
4482 41756 + 50528 61993 126162 130550'+ 220894 639522
4608 42435 50907 62249 126172' 130697" 221056 640281
5685 44479 51480 62759 126183 168011 221061" 658265
6469 44922 51768 62786 126567' 168945 221093 658267
8111 45035 + 53381 62795 + 127051' 168992 221106 658390
10838 45101 * + 54604- 63354 127052' 188528 22115 658431
10856 45451• 55012 63636 + 127296' 201668' 563654 658433"
11042+ 45535 55783 63701+ 127816' 207240 563812 658434
11048+ 45565 56234' 63707 127872' 208207'+ 564913 658447
11111 +- 46761' 57839 95827 + 128077' 213134 564915 658700
11116+ 46828" 59507 + 97066 128377 214289 + 574516 658754
11126+ 480811 59535 + 97309 + 128753' 216214 600844 660005
11127+ 48392 59546 + 100283 128755' 216865' 600845 660074
13904 49648 59652 102833+1 128758' 216899 600850' 668989
14985 49864 60538 102855' + 129080' 218018' + 613800 ' = 2/10
" = 4/10
íslenskar Getraunir, íþróttamidstödinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmónnum og á skrifstofunni í
Reykjavik. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar fíl greina
Kærufrestur er til mánudagsins 16. mars 1987 kl. 12.00 á hádegi.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfana til íslenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
Fréttir______________________
Vasabiblía alkóhólistans
365 síður með daglegri hvatningu
„Þetta er bók sem allir alkóhólistar
ættu að eiga. Hún er í fallegu og þægi-
legu bandi og fer vel í vasa,“ sagði
Tómas Tómasson veitingamaður um
bók sem samtök einstaklinga, sem far-
ið hafa í meðferð vegna áfengissýki til
Hazelden í Bandaríkjunum, hafa gefið
út í samvinnu við styrktarfélag Sogns.
Bókin nefhist „Tuttugu og fjögurra
stunda bókin“ og efhi hennar er
bandarískt. Leyfi til þýðingar fékkst
gegn loforði um að hún yrði seld á
kostnaðarverði og án ágóða.
Bókin er 365 síður og á hverri blað-
síðu er hugleiðing hvers dags, íhugun
og bæn. 1 formála segir meðal annars:
„Höfúndurinn vonar að þessi dag-
lega lesning hjálpi AA-félögum að
finna þann kraft sem þeir þurfa til að
halda sér frá áfengi allar 24 stundir
sólarhringsins. Ef við tökum ekki
fyrsta sopann í dag tökum við hann
aldrei því að það er alltaf „í dag“.“
Hér fylgir sýnishom af blaðsíðu 59,
lesefni föstudagsins 20. febrúar:
AA-hugleiðing dagsins:
„Hér áður fyrr var Bakkus vinur
minn. Ég skemmti mér vel með honum
við drykkju. Öll mín skemmtun var
tengd drykkjuskap. En að því kom að
Bakkus brást mér. Ég veit ekki hven-
ær áfengið snerist gegn mér en ég
veit að það gerðist því að ég fór að
lenda í erfiðleikum. Síðan áfengið varð
andstæðingur er meginviðfangsefni
mitt að vera allsgáður. Brauðstrit eða
húshald er ekki lengur aðalverkefhi
mitt. Geri ég mér grein fyrir því að
aðalverkefni mitt er að vera alls-.
gáður?"
Ihugun dagsins:
„Ég get treyst því að Guð sjái mér
fyrir þeim styrk sem ég þarf til að ráða
við allar aðstæður. Forsendan er að
ég trúi í einlægni á þennan styrk og
biðji um hann af öllu hjarta um leið
og ég haga lífi mínu eins og ég held
að Guð vilji. Ég get komið til Guðs
eins og ráðsmaður sem kemur til góðs
húsbónda og veit að hann fær strax
hljómgrunn varðandi öll skynsamleg
erindi.“
Bæn dagsins:
„Ég bið um trú á því að Guð hafi
vilja og getu til að sjá mér fyrir öllu
sem ég þarf. Ég bið að ég fari ekki
fram á annað en trú og styrk til að
mæta hveiju sem að höndum ber.“
„Tuttugu og fjögurra stunda bókin“
fæst aðeins í Kirkjuhúsinu við Klapp-
arstíg og kostar 490 krónur.
-EIR
„En að þvi kom að Bakkus brást mér... Brauðstrit eða húshald er ekki leng-
ur aðalverkefni mitt.“ DV-mynd KAE
Gagnfræðaskólinn á Hvolsvelli:
Nemendur með sýn-
ingu á verkum sínum
HaDdór Kristjánssan, DV, Hvolsvelli:
Nemendur gagnfræðaskólans á
Hvolsvelli héldu fyrr í mánuðinum
sýningu á vinnu sinni á undangeng-
inni „þemaviku". Stofninn í þessari
viku var kynning á heimabyggðinni
og leituðu nemendur upplýsinga um
hin ólíkustu efni hjá ýmsum fyrir-
tækjum og stofnunum á Hvolsvelli
og næsta nágrenni.
Nemendumir sýndu mikla hug-
kvæmni og atorku við að koma
hugmyndum sínum á framfæri á
þessari glæsilegu sýningu í skólan-
um sínum. Má þar nefna ljósmyndir
með skýringum og blaðaútgáfu.
Þá gat að líta sýnishom af mat-
vælaframleiðslu, trjárækt frá
Tumastöðum og frá gömlum og nýj-
um reiðverum. Útvarpsstöðin Innrás
Trjárækt frá Tumastöðum var einn þáttur sýningarinnar sem nemendur
héldu. Hér er Jens Gíslason, einn þátttakenda i því verkefni, ásamt kenn-
ara sínum, Markúsi Runólfssyni.
Fjölmenni var á sýningunni sem þótti hin merkilegasta í alla staði.
DV-myndir Halldór
var rekin innan skólans á „þemavik-
unni.“
Nemendur 9. bekkjar sáu um veit-
ingar til fjáröflunar fyrir ferðasjóð
sinn.
Mikið fjölmenni sótti sýninguna
sem var hin athyglisverðasta í hvi-
vetna.