Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Qupperneq 20
20
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Iþróttir
Sagt að
leikslokum:
„Stórkostlegt er eina orðið sem
hægt er að hafa yfir þennan leik.
Þetta er einn stærsti sigur sem ís-
lenskt lið hefur unnið fyrr og síðar.
Júgóslavar eru ólympíu- og heims-
meistarar og því er þessi sigur enn
sætari. Allir strákamir í íslenska
liðinu léku á als oddi: Ég vil óska
íslenska liðinu innilega til ham-
ingju með þennan sigur. Nú verður
öll íslenska þjóðin að styðja við
bakið á íslenska landsliðinu íram
að ólympíuleikunum í Seoul, þeir
eiga það svo sannarlega skilið,“
sagði Sveinn Björnsson, forseti
ÍSI, í samtali við DV í gærkvöldi.
Pusnic, aðalmarkvörður
Júgóslava
„Island var mun betri aðilinn í
þessum leik og vann sanngjaman
sigur. Áhorfendur hér á íslandi em
frábærir og eiga enga sína líka
nema kannski brasilíska knatt-
spymuáhorfendur. Það má líkja
þeim vel saman. ísland er komið í
fremstu röð handknattleiksþjóða í
heiminum. Ég spái að það verði í
baráttu um verðlaunasæti á
ólympíuleikunum í Seoui. Einar
markvörður, Kristján. Alfreð og
Páll vom þeirra bestu menn í
leiknum." sagði Pusnic, markvörð-
ur' - úgóslava. en hann meiddist í
fyrri ieiknum og spilaði ekki þenn-
an leik.
Gísli Halldórsson:
„Þetta var stórkostlegt hjá ís-
lenska landsliðinu. Það er nánast
undravert að sjá að lítil þjóð eins
og við emm skuli ná þessum ár-
angri gegn Júgóslövum sem er
sterkasta iiandknattieiksþjóð í
heiminum. Ég vona að íslenska
þjóðin styðji vel við bakið á þessu
liði því góður tími er til stefiiu fram
að ólympíuleikunum í Seöul. Allir
leikmennimir stóðu sig eins og
hetjur og það er virkilega góð
breidd í íslenska liðinu,“ sagði
Gísli Halldórsson, formaður ís-
lensku ólympíunefndarinnar, í
samtali við DV að leik loknum í
gærkvöldi. -JKS
Stórsigur
Njarðvíkinga
Magnús Gíslascm, DV, Suöumesjum;
Meistaramir ,,étnir“
- íslenska landsliðið sýndi frábæran handknattleik og ólympíu- og heimsmeist
„Það var óskaplega gaman að taka þátt í þessu á ný með strákunum. Þetta var frábær leikur og
ég tel að þessi hópur geti náð mjög langt í framtíðinni,“ sagði Þorbjörn Jensson, fyrrum fyrirliði
íslenska landsliðsins í handknattleik, eftir frækilegan sigur íslenska liðsins á ólympíu- og heims-
meisturum Júgóslava í Laugardalshöll. íslenska liðið hefur ekki í annan tíma leikið betur en í
síðari hálfleiknum í gærkvöldi. Staðan var 9-10 í leikhléi, heimsmeisturunum í'vil, en lokatölur
urðu 24-20, íslandi í vil.
íslandsmeistarar Njarðvíkinga
tryggðu sér í gærkvöldi réttinn til
að leika í undanúrslitum bikar-
keppninnar í körfuknattleik. Lið
UMFN vann nágrannana í Kefla-
vík með 59 stigum gegn 76 en leikið
var í Keflavík fyrir troðfuilu
íþróttahúsi.
Leikurinn var jafn framan af en
á þriggja mínútna kafla í síðari
hálfleik skoraði UMFN 13 stig
gegn aðeins 2 stigum ÍBK og þar
með voru úrslitin ráðin. Staðan
breyttist úr 54-60 í 56-73.
Valur Ingimundarson skoraði 19
stig fyrir UMFN en ísak Tómasson
15, öll í síðari hálfleik. Hjá Kefla-
vík voru þeir Gylfi Þorkelsson og
Jón Kr. Gíslason stigahæstir með
14 stig hvor. Leikinn dæmdu þeir
Ómar Schewing og Kristinn Al-
bertsson og voru þeir bestir á
vellinum.
Maður leiksins: Isak Tómasson,
UMFN. -SK
Enn einu sinni sýndi íslenska landslið-
ið og sannaði getu sína. Hreint stórkost-
legur leikur í gærkvöldi og þá einkum
og sér í lagi síðari hálfleikurinn. Ekki
heíúr undirritaður séð betri hálfleik hjá
íslensku landsliði. Vamarleikurinn var
slíkur að á ellefu mínútna kafla skoruðu
heimsmeistaramir ekkert mark þótt þeir
rembdust eins og rjúpan við staurinn.
Og að baki vamarveggjarins stóð Einar
Þorvarðarson og varði eins og hann
best getur. Þar á meðal vítakast þegar
staðan var 18-16 og stundarfjórðungur
eftir af leik., Framtak Einars í vítinu
virkaði eins og örvandi lyf á allt ís-
lenska liðið og í kjölfarið fylgdu tvö
íslensk mörk sem gulltryggðu sigurinn.
Fjögurra marka munurinn hélst til
leiksloka. Alfreð Gíslason skoraði síð-
asta mark leiksins úr aukakasti þegar
leiktíminn var úti og endurtók því það
Valur áfram
KR sigraði Val, 85-83, f síðari leik lið-
anna í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ
í gærkvöldi. Valur vann fyrri leik lið-
anna, 68-55, og kemst því áfram
samaniagt í keppni en KR-ingar em úr
leik.
-JKS
afrek frá leiknum gegn Rússum á Baltic
á dögunum. Ljúfari gat endir þessa eftir-
minnilega leiks ekki orðið. Og það sem
meira er. íslenska liðið hefði með smá-
heppni getað unnið mun stærri sigur.
Missir góðra leikmanna engin
afsökun
Þrátt fyrir þá staðreynd að þrjá til
íjóra lykilmenn hafi vantað í lið heims-
meistaranna geta þeir ekki notað fjar-
vem þeirra sem afsökun fyrir tapinu. Á
móti kemur að okkur vantaði einnig
leikmenn og þetta júgóslavneska lið,
sem spriklaði á fjölum Hallarinnar í
gærkvöldi, hefúr verið á stanslausu
keppnisferðalagi undanfarið um víða
veröld og æft mikið saman. Ekki er
hægt að segja það sama um íslenska lið-
ið sem fékk nánast engan undirbúning
fyrir þessa tvo leiki. Ekki frekar en
venjulega liggur manni við að segja.
Og eftir frammistöðuna í leikjunum
tveimur er ekki nema von að menn
spyrji sig að því hvað þetta lið geti gert
í Seoul á næsta ári. Þar hljótum við að
stefna að toppsætinu og engu öðm.
Alfreð, Páll og Einar bestir
Þeir Alfreð Gíslason, Páll Ólafsson og
------------------------j
í miklum eifiðleikum |
Dalglish á
Stjóri Liverpool, Kenny Dalglish,
á í nokkrum vandræðum með að
koma saman liði í deildabikarleikinn
við Southampton á Anfield í kvöld.
Þetta er síðari leikur liðanna í und-
anúrslitum. Þeim fyrri lauk með
markalausu jafntefli í Southampton.
Þar var Paul Walsh rekinn af velli
og getur þess vegna ekki leikið í
kvöld. Nýi leikmaðurinn frá Oxford,
John Aldridge, má ekki leika með
Liverpool þar sem hann hafði leikið
með Oxford í deildakeppninni. Þá
áttu þeir Craig Johnston og Steve
McMahon við meiðsli að stríða í gær
og ekki víst að þeir geti leikið.
Sennilega verður Dalglish sjállúr að
draga fram skóna í kvöld og leika
þrátt fyrir litla leikæfingu. Hefur
ekki leikið síðustu vikumar.
Jesper Olsen, danski landsliðs-
maðurinn hjá Man.Utd, meiddist illa
í leiknum við Chelsea á laugardag. I
I gær var tilkynnt að hann yrði frá *
leik að minnsta kosti í mánuð vegna |
tognunar í liðböndum. Jafnframt .
skýrði stjóri United, Alex Ferguson, |
frá því að hann hefði boðið Olsen ■
nýjan samning við félagið en samn- I
ingur Danans rennur út í vor. I
-hsím *
I
-I
•Júgóslavar héldu uppteknum
hætti í síðari landsleiknum gegn
íslendingum í gærkvöldi. Á þess-
ari mynd sést greinilega hvernig
einn júgóslavnesku leikmann-
anna tekur í annan fót Páls
Ólafssonar. Brot sem þessi eru
stórhættuleg og geta valdið al-
varlegum slysum og hafa
reyndar gert það.
DV-mynd Brynjar Gauti