Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
21-
Iþróttir
„Ahorfendumir
alveg sérstakir“
- sagði Pocrajac,
„Þetta var skemmtilegur leikur fyrir
áhorfendur. Báðir Iandsleikirnir voru
mjög hraðir en um leið nokkuð vel
leiknir af beggja hálfu. Þó verð ég að
segja að mínir menn gerðu sig seka
um alvarleg mistök í þessum leik og
það kostaði okkur sigurinn hér í
kvöld,“ sagði Pocrajac, þjálfari Júgó-
slava, eftir leikinn gegn íslandi í
gærkvöldi.
„ísland er með mjög gott lið. íslensk-
ir áhorfendur eru alveg sérstakir og
getur íslenska liðið þakkað þeim kær-
lega fyrir þann stuðning sem þeir
fengu. Ég vil ekki dæma neinn sér-
stakan leikmann íslenska liðsins fyrir
frammistöðu sína í leiknum. Ég var
ekki svo mikið að fylgjast með þeim.
Horfði meira á mína menn. Ég vil
engu spá hvemig íslenska liðinu muni
vegna á ólympíuleikunum í Seoul. En
eitt er víst ömggt að þessi bæði lið
muna alla vega verða í baráttu um
efstu sætin í keppninni þar. Undirbún-
þjátfari Jugoslava
ingur júgóslavneska liðsins fyrir
ólympíuleikana hófst í desember sl.
og eru landsleikirnir hér á landi einn
mikilvægasta hlekkurinn í þeim und-
irbúningi, því hér á Islandi er alveg
sérstakt andrúmsloft, það er mótherj-
unum og áhorfendum að þakka.
Okkur vantaði nokkra leikmenn í þessa
íslandsferð. Ég er að prufa mig áfram með
liðið og reyna nokkra nýja leikmenn, sem
von er. Næstu landsleikir okkar verða
gegn Austurríki eftir hálfan mánuð. Fljót-
lega eftir þá landsleiki fer liðið í æfinga-
búðir til Japan 'og er ætlunin að vera þar
við æfmgar í ,2 vikur og ieika þar nokkra
æfingaieiki. I sumar verður svo liðið í
ströngum æfingabúðum heima í Júgóslav-
íu. Dagana 25. júní til 1. júlí fer fram í
Júgóslavíu mjög sterkt handknattleiks-
mót, svonefnt Júgósiavía Trohpy. Þar
verða saman komnar 8 sterkustu hand-
knattleiksþjóðir í heiminum og verður
Island að sjáfsögðu meðal þátttökuþjóða
í þeirri keppni. Við ætlum að gera allt sem
í okkar valdi stendur til að verða í sem
allra bestu æfingu þegar ólympítileikamir
í Seoui hefjast haustið 1988 enda eigum
við ólympíutitil að verja og því mikið í
húfi,“ sagði Pocrajac landsliðsþjálfari að
lokum. -JKS
Box hjá Dönum og
Vestur-Þjóðverjum
- Danir töpuðu í slagsmálaleik á Ítalíu, 17-23
Brynjar SteC og Heimir Rikarðs, DV, ftaliu;
Aðalleikur B-keppninnar á Italíu í
gærkvöldi var tvímælalaust leikur
Vestur-Þýskalands og Dana og lyktaði
leiknum með sigri Vestur-Þjóðveija,
23-17, eftir að Danir höfðu haft eins
marks forystu í hálfleik, 11-12. Leikur-
inn var einn sá grófasti sem sést hefur
lengi. Líktist hann á köflum frekar
boxi en handknattleik. Dómarar leiks-
ins voru frá Júgóslavíu, og höfðu þeir
engin tök á leiknum. Tvo leikmenn
þurfti að bera af velli vegna meiðsla.
Danir leiddu mestallan fyrri hálfleikinn.
En fljótlega í seinni hálíleik jöfnuðu Vest-
ur-Þjóðverjar, 14-14, og komust síðan í
16-14. Þá forystu létu þeir ekki af hendi.
Um miðjan seirrni hálfleik var Dananum
Per Skárup, sem leikur sem kunnugt er
með Fram, sýnt rauða spjaldið og er það
í þriðja skiptið í keppninni sem honum er
vikið af velli. Skömmu síðar var Röpstorf
einnig vikið af velli. Danir tóku til bragðs
síðustu mínútumar að taka maður á
mann, en allt kom fyrir ekki.
Mikael Krieter, markvörður Vestur-
Þjóðverja, átti stórleik lokakafla leiksins
og varði meðal annars þrjú víti. Daninn
Morten Stig og Vestur-Þjóðverjinn Jochen
Fraatz voru báðir bomir af leikvelli sökum
meiðsla. Fimm leikmenn aðrir fengu
blóðnasir. í allt varð um 15 mínútna töf á
leiknum á meðan dómarar leiksins voru
að róa leikmenn niður, svo mikil harka
var í leiknum.
Urslit í öðrum leikjum í gærkvöldi urðu
þessi.
Noregur-ltalía.................24-19
Pólland-Frakkland................31-22
Rússland-Rúmenía.................30-22
Búlgaría-USA.....................21-19
Tékkóslóvakía-Sviss..............20-19
aramir steinlágu í Höllinni, 24-20
Einar Þorvarðarson voru bestu leik-
menn íslenska liðsins í gærkvöldi. Alfreð
hefur reyndar verið einn jafnhesti maður
landsliðsins í síðustu leikjum þess og
Einar og Páll hafa verið á stöðugri upp-
leið. Annars áttu allir leikmennirnir
skínandi leik og krafturinn í strákunum
í síðari hálfleik verður lengi í minnum
hafður.
Lið heimsmeistaranna er mjög sterkt
en óneitanlega setja ruddaleg brot leik-
manna liðsins (sjá myndir á síðunum)
leiðinlegan blett á leik liðsins. Heims-
meistararnir hafa eflaust beitt þessum
brögðum lengi en þau hafa verið upp-
götvuð hér á íslandi á síðustu dögum.
Þökk sé færum ljósmyndurum.
Slakir franskir dómarar
Hinir frönsku dómarar leiksins voru
mjög slakir. Ekki tókst þeim að sjá
fólskuleg brot Júgóslavanna í gærkvöldi
þrátt fyrir itrekaðar ábendingar fyrir
leikinn. Vonandi eiga þeir ekki oftar
eftir að blása i flautur sínar hér á landi.
-SK
Ruddabragð Júgóslavanna!
Stórhættuleg ruddabrögð leikmanna heimsmeistaraliðs Júgóslava hér á landi undanfama tvo daga hafa vak-
ið feiknalega athygli. Ekki bara hér heldur viða erlendis. DV birti síðastliðinn fóstudag grein sem birtist í
norsku blaði um þessi fólskubrögð Júgóslavanna sem fáir vissu um en enginn gat sannað. í gær birtist síðan mynd
í einu dagblaðanna þar sem sannanlega sést er einn leikmannanna notar þetta hættulega brot. íslenskir íþrótta-
ljósmyndarar hafa nú fest þessi fólskubrögð á fiknu og hefur álþjóðlega handknattleikssambandið ásamt norsku
dagblaði þegar pantað mvndir af brotum Júgóslavanna. Hér að ofan og neðan sést þetta enn betur. Á efri
mýndinni er Júgóslavinn að gera sig líklegan við að taka í fót Guðmundar Guðmundssonar og á neðri mvnd-
inni fullkomnar hann brotið. Auðvitað eiga slíkar aðfarir að andstæðingnum ekkert skvlt við íþróttir og eru
þær Júgóslövum til skammar. DV-nnmdir Brynjar Gauti
Sóknarnýting íslands var 63,3%
íslenska landsliðið fékk 38 sóknir í
leiknum gegn Júgóslövum í gærkvöldi
og nýtti 24 þeirra sem gerir 63,3% nýt-
ingu sem er frábær árangur. Júgóslavar
fengu jafhmargar sóknir, skoruðu 20
mörk sem gerir 52,6% nýtingu.
•Alfreð Gíslason skaut 9 skotum í
gærkvöldi, skoraði 7 mörk en 2 skot
voru varin.
•Páll Ólafsson skaut 6 skotum og
skoraði 6 mörk, vann boltann einu sinni
og tapaði honum tvisvar.
•Þorgils Óttar Mathiesen skaut 9
skotum, skoraði 5 mörk, 3 skot voru
varin og 1 fór framhjá.
•Guðmundur Guðmundsson skaut 3
skotum og skoraði úr öllum. Gummi
átti eina linusendingu og fiskaði 2 víta-
köst sem bæði gáfu mörk.
• Kristján Arason skaut 6 skotum og
skoraði 2 mörk úr vítaköstum, 2 skot
voru varin og jafnmörg fóru framhjá.
•Bjami Guðmundsson skaut 2 skot-
um, eitt mark og eitt var varið.
•Sigurður Sveinsson skaut einu skoti
og það var varið.
• Atli Hilmarsson tapaði einum bolta
og gaf tvær línusendingar.
• Einar Þorvarðarson varði alls 16
skot, þar af eitt vítakast.
• Þeir Þorbjöm Jensson, Jakob Sig-
urðsson og Geir Sveinsson komu ekki
við sögu i leiknum.
•Júgóslavar voru einum færri í 4
mínútur en Islendingar í 2 mínútur.
-SK
FIRMA- 0G FÉLAGSHÓPAKEPPNI
KR í innanhússknattspyrnu 1987 hefst mánudaginn
2. mars. Leikið er í stóra salnum í KR-heimilinu, í átta
fimm liða riðlum. Þátttaka tilkynnist í síma 27181.