Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Eyjafjorðun
Átta nýir bændur hefja búskap
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii;
Átta nýir bændur hófu búskap við
Eyjafjörðinn á síðasta ári. Flestir
þeirra voru aðkomnir og keyptu
jarðimar samkvæmt upplýsingum
hjá Búnaðarsambandi Eyjaijarðar.
Tveir bændanna hófu búskap í
Svarfaðardal, einn í Hörgárdal, þrír
í Öxnadal og tveir í Öngulsstaða-
hreppi í Eyjafirði.
Einn bóndi við Eyjafjörð, Halldór
Jónsson á Jarðbrú í Svarfaðardal,
seldi jörð sína og framleiðslurétt. Sá
sem keypti af Halldóri býr á Jarðbrú
en vinnur á Dalvík. Hann stundar
því ekki búskap.
Miklir erfiðleikar hafa, sem kunn-
ugt er, verið hjá bændum vegna
minnkandi framleiðslu en kvóta-
kerfið er við lýði bæði í kúa- og
fjárbúskap.
Þeir bændur, sem standa hvað
verst, eru þeir sem hafa fjárfest mik-
ið á síðustu árum.
Ég er bjart-
sýnn maður
- segir Hermann Jónsson
Hermann keypti Barkána á síðasta ári og horfir björtum augum til framtíðarinnar. Hans álit er að styrkja eigi stöðu
landbúnaðarins með nýjum greinum, en sjálfur býr hann með 40 nautgripi og 100 kindur.
DV-mynd JGH
Jón G. Haukssan, DV, Akureyn;
„Ég er að mörgu leyti bjartsýnn
. maður og ég vona að búskapurinn
gangi," svaraði Hermann Jónsson
bóndi spumingu um hvort hann ætti
að fá bjartsýnisverðlaunin 1986 sem
einn þeirra átta bænda sem hófu bú-
skap við Eyjafjörð á síðasta ári.
Hermann býr að Barká í Hörgárdal.
Hann keypti jörðina sl. vor.
Hermann er 46 ára og býr að Barká
með konu sinni, Sveinfríði Jóhanns-
dóttur, og fjórum bömum. „Við vissum
fyrir að hveiju við gengum og þetta
hefur gengið eins og við áttiun von
ég keypti jörðina, ég átti talsvert fyrir
og það hefur allt að segja. Þeir eiga í
mestu erfiðleikunum sem skulda
mest.“
Hermann bætti því við að það væri
reyndar orðið mjög erfitt að fá lán í
landbúnaði sem nokkm næmi. „Þetta
er mikið fjármagn sem þarf ef vel á
að vera.“
- Á hvað keyptir þú Barkána?
„Ég hef nú ekki flíkað því til þessa
og ætli ég haldi mig ekki enn við það.“
Jörðin er með 30 hektara tún. Her-
mann hefur 40 gripi í fjósi og er með
100 kindur. Aðrar skepnur er hann
ekki með nema þá hunda á bænum,
auðvitað.
- Nú fer framleiðslan í landbúnaðin-
um alltaf minnkandi, sérstaklega í
kúabúskap og sauðfjárrækt.- Hvemig
lístjiér á landbúnaðinn næstu árin?
„Ég tel að málin séu að komast í
jafnvægi. Þetta má ekki verða verra
en núna því þá held ég að einhveijir
landshlutar fari í eyði.“
- Þið byijuðuð átta bændur við
Eyjafjörð á síðasta ári. Finnst þér þessi
tala vera há?
„Ég hef nú ekki hugsað mikið um
það en Eyjafjörðurinn er gott svæði.
Ef ekki er hægt að stunda búskap hér
þá er það hvergi hægt. Það er mikil
veðursæld í héraðinu."
Hermann er fæddur í Bárðardal í
Þingeyjarsýslu. Hann fluttist síðan að
bænum Möðruvöllum inni í Eyjafirði.
Þar bjó hann félagsbúi með systkinum
sínum til ársins 1981 þegar hann söðl-
aði um og fluttist til Akureyrar, „í
bæinn“ eins og það er nefnt.
„Við vorum fjögur systkinin sem
rákum búið þegar ég hætti. Þetta var
um það leyti sem kvótakerfið var að
komast á. Við vorum einfaldlega of
mörg. Fyrstu viðbrögðin vom að einn
hætti svo hin sem eftir væm gætu
borið jafhmikið út býtum og áður.“
- Reiknaðir þú með að verða bóndi
aftur?
„Ég reiknaði ekkert frekar með því
en eftir að hafa búið á Akureyri í
nokkur ár fann ég að bóndinn blund-
aði í mér og fannst mér eins og hann
ætti betur við mig en það sem ég var
þá að starfa við. Maður var því farinn
að fylgjast með þegar jarðir vom aug-
lýstar.“
- Hvemig líst þér á landbúnaðinn á
íslandi á næstu árum?
„Ég vona að landbúnaðurinn sé
kominn niður í þá lægð sem hann fer
í. Hann má ekki fara neðar eigi ekki
illa að fara. Vegna offramleiðslu í
mjólkur- og fjárbúskapnum verður að
styrkja stöðuna með nýjum greinum
og geri ég mér vonir um að minka-
og refarækt fari vaxandi," sagði Her-
mann Jónsson bóndi.
Egllsstaðir:
íbúamir minnast 40 ára skólahalds
Arma IngóJisdóttLr, DV, Egflsstöðum;
í tilefni 40 ára samfellds skólastarfs
á Egilsstöðum var haldin opin vika í
Egilsstaðaskóla með fjölskylduhátíð í
kjölfarið.
Nemendur í 1.-3. bekk gátu valið
um sex mismunandi starfshópa í opnu
vikunni og nemendur í 4.-9. bekk höfðu
úr þrettán hópum að velja. Má nefna
ljósmyndahóp, íþróttahóp, blaðaútg-
áfuhóp, mælskuhóp og fleiri, svo og
einn hóp sem sá um undirbúning há-
tfðarinnar. Mæltist vika þessi vel fyrir
hjá krökkunum sem sýndu svo verk-
efhi sín eða afrakstur vikunnar á
hátíðinni.
Helgi Halldórsson er skólastjóri
þetta árið í fjarveru Ólafs Guðmunds-
sonar. Helgi er ánægður með bömin,
STERKIR
TRAUSTIR
Vinnupallar
fró BRIMRÁS
Kaplahrauni 7 65 19 60
segir þau jákvæð og hafa unnið vel.
Vill hann þakka þeim og sérstaklega
utanaðkomandi aðilum sem tóku þátt
í hátíðarframkvæmdum. Vom þar
meðal annars foreldrar sem miðluðu
þekkingu sinni á námskeiðunum. Há-
tíðin fór vel fram og var selt inn, auk
þess sem seldar vom nýbakaðar vöffl-
ur með rjóma og kaffi. Hagnaður af
hátíðinni rann allur í ferðasjóð 9.-
bekkinga en þeir stefna að því að fara
með Norrænu til Færeyja í vor.
Dagskrá afmælishaldsins
Dagskráin hófst með ýmsum uppá-
komum, svo sem brúðuleikþætti, dans-
og fimleikasýningu og fleiru. Rakin
var saga skólahalds á Egilsstöðum en
um áramótin 1946-47 hófst formlegt
skólastarf í Egilsstaðaþorpi, eingöngu
fyrir böm búsett í þorpinu. Var það
til húsa í dýralæknisbústaðnum. Vom
nemendur þá um 10 talsins. Fyrsti
kennarinn var Guðlaug Sigurðardótt-
ir. Kennslan hélt áfram á Egilsstöðum
Fimleikaháfíð var haldin í tengslum við fjölskylduhátiðina i Egilsstaðaskola og
er þessi mynd tekin þar.
og fjölgaði nemendum jafht og þétt.
Árið 1956 tók fyrsti skólastjórinn til
starfa, Þórður Benediktsson. En þá
vom nemendur orðnir 40 að tölu. Árið
1972 var tekin upp kennsla forskóla-
bama og réðst Ólafur Guðmundsson
sem skólastjóri sama ár. Fyrstu gagn-
fræðingamir útskrifuðust 1974.
Nemendafjöldi nú
I dag em nemendur 320 talsins,
kennarar 24 auk yfirkennara og skóla-
stjóra. Flestir starfandi kennarar em
með full starferéttindi og margir hverj-
ir sérþjálfaðir í ákveðnum kennslu-
greinum. Tómstundastarf nemenda
hefur verið mjög líflegt og það er nú
orðið fastur liður í skólastarfinu. For-
eldradagar hafa verið vel sóttir enda
hefúr skólinn kappkostað að auka
tengsl og samskipti heimila og skóla,
t.d. með fréttabréfum.
Krakkarnir gerðu sér ýmislegt til gamans á hátiðinni. Þeir bjuggu meðal ann-
ars til eftirlíkingu af sjálfum Lagarfljótsorminum. DV-myndir Austri