Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
31
Sandkorn
Kristján - ætlar ekki í vélsmiðjuna
aftur heldur i pizzeriið.
Hávaðasamur
vert
Það verður líklega f]ör í
pizzeríunni hans Kristjáns
Jóhannssonar eftir svona
15-20 ár. Hann sagði Hemma
Gunn það í trúnaði á sunnu-
daginn, í þætti Hemma á
Bylgjunni, að þegar söngferl-
inum lyki hefði hann mestan
áhuga á einhvers konar við-
skiptum og nefndi þar áhuga
sinn á að sveifla pizzum.
Þetta á auðvitað vel saman
því varla missir Kristján rödd-
ina þótt hann hvíli sig frá
óperunni einhvern tímann. Þá
getur hann sveiflað hvoru
tveggja upp á ítalska vísu í
einu, pizzunum og sonnettun-
um. En ætli hann langi ekki
stundum upp á háa cið?
Snævarr
í sjónvarpið
Hræringarnar í fjölmiðla-
heiminum, sem tóku mikinn
fjörkipp með stanslausum
fæðingum tímarita, útvarps-
ogsjónvarpsstöðva, halda
áfram og er ekkert lát á. Helst
taka menn þó eftir því þegar
raddir og andlit koma og
hverfa. Núna er Bogi Agústs-
son orðinn fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Ríkisútvarps-
ins og sagt er að hann verði
einhvers konar yfírkokkur á
rás 2.1 sæti hans í sjónvarpi
Ríkisútvarpsins sest svo Árni
Snævarr sem hefur verið
fréttamaður Bylgj unnar frá
því hún var stofnuð en var
áður blaðamaður á DV. Árni
verður sem sagt í erlendum
fréttum sjónvarpsins innan
tíðar.
Stcingrimur-tiltæki hans vekja
umtal nú sem oftast áður.
Steingrímur
Þáttur Steingríms Her-
mannssonar í kynningu á
smokknum hefur vakið gríð-
arlega athygli. Erlendir fjöl-
miðlar hafa fjallað um
viðburðinn og hér innanlands
var ekki um annað meira rætt
á tímabili þar sem fólk tók tal
saman og umræðan snerist um
lystisemdirlífsins. Núna fyrir
helgina hélt einn Lionsklúbb-
urinn í Reykjavík mikið blót
og snerist það að lokum upp
í allsheijar vísnagerð um for-
sætisráðherra og framan-
greint tiltæki hans. Til þess
að gefa hugmynd um kveð-
skapinn kemur hér ein vísan:
Stígur hann við stokkinn
stirnir á rauðan lokkinn
stinnan hefur hann skrokkinn
Steingrímur með smokkinn.
Herbergis-
númer líka!
Um síðustu helgi var
ónefndur hópur manna við
þinghald á ónefndum stað í
ónefndri sýslu sunnan heiða.
Dvaldi hann á hóteli staðarins
og urðu fundir langir og þreyt-
andi. Við þessu fengu menn
sér gjarnan ónefnda vökva í
glös. Þegar ætlunin var að
þingheimur gengi í hvílur sín-
ar voru margir orðnir svo
rassþungir að þeir gátu sig
hvergi hrært og sumir meira
að segja steinsofnaðir og urðu
með engu móti vaktir. Starfs-
menn hótelsins urðu því að
grípa til örþrifaráða, varpa
gestum á axlir sér og bera þá
íbólin.
Auðvitað voru fundarmenn
með sérstök nafnspjöld þings-
ins næld í boðunga sína. Þetta
létti hótelmönnum mjög að
fmna svefnstað hvers og eins.
Þó þurftu þeir jafnan að koma
við þar sem gestabókin lá í
afgreiðslunni og fmna þar
herbergisnúmer viðkomandi.
Einn hótelþjónninn var orð-
inn dálítið þreyttur á þessu
og ætlar að leggja til að næst
verði gestirnir með herbergis-
númerin skráð við nöfn sín á
nafnspjöldin.
Stöö3
Eins og DV greindi skil-
merkilega frá á dögunum
hefur Kristinn Finnbogason,
framkvæmdastjóri dagblaðs-
ins Tímans, látið setja upp
móttökudisk til þess að frétta-
menn blaðsins geti horft á
heimsfréttirnar gerast og
skrifað um þær eftir hendinni.
Þeir eru sem sagt ekki lengur
háðir fjarritum og löngum les-
málsstrimlum og geta meira
að segja valið á milli heimilda.
Sagan segir að þetta nýmæli
sé í rauninni aðeins sett á svið
til þess að breiða yfir áform
um stofnun og rekstur nýrrar
Kristinn - er kominn með stóran
móttökudisk, en til hvers?
sjónvarpsstöðvar, Stöðvar 3,
eða hvað svo sem hún muni
heita. Stöðinni sé alla vega
ætlað h'kt hlutverk og Stöð 2
og meiningin sé að fara í grjót-
harða samkeppni á þessum
markaði. Hvort Kristinn
stendur í þessu einn, með öðr-
um eða fyrir aðra er ekki vitað
mál.
Ámi
og Eggert
Aðferðir þingmanna við að
koma sér í mjúkinn hjá kjós-
endum eða halda andlegu
sambandi við þá er með ýms-
um hætti, ekki síst fyrir
kosningar. Undanfariðhefur
Árni Johnsen verið á allmörg-
um þorrablótum í kjördæmi
sínu, Suðurlandi. og dokaði
þar á meðal við á 400 manna
samkomu kvenfélagsins á
Hvolsvelli. Þar flutti Pálmi
Eyjólfsson vísu um þá Árna
og samflokksmann Eggert
Haukdal:
‘ Atkvæðaveiðin er erfið og
löng
en það er það sem daglega
varir,
hér austur frá hitta þær Árna
með söng
en Eggert við jarðarfarir.
Umsjón:
Herbert Guómundsson
Kúplingsdiskar
og pressur
í eftirtalda fólksbíla og jeppa:
Ameríska — Enska
Franska — ítalska
Sænska — Þýzka
Ennfrernur kúplingsdiska í
BENZ - MAN - SCANIA - VOLVO
HÁBER G “
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91 I-8 47 88
Cherokee Pioneer 1986, 4x4, einn með ollu. Verðiago-
ur til að seljast strax.
Minni Chevrolet Blazer 1983,4x4. Verð aðeins 690.000
kr. Pickup GMC Sierra 1982, með 6,2 dísilvél.
mm
Sigling með ferðamenn um Jökulsárlón er eitt af því sem var til umræðu á aðalfundi Ferðamálafélagsins.
Ferðamálafélag Ausfur-Skaftafellssýslu:
Úrbætur í ferða-
málum fýrirhugaðar
JúKa Imsland, DV, Höfn:
Aðalíundur Ferðamálafélags Austur-
Skaftafellssýslu var haldinn á Hótel
Höfh nýlega. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa voru ferðamál innan
sýslunnar rædd og gerðar áætlanir til
úrbóta.
Meðal annars var rædd nauðsyn
þess að koma á eins dags skoðunar-
ferðum frá Höfh, til dæmis upp á
Jökul, siglingu um Jökulsárlón og
ferðum í Skaftafell svo nokkuð sé
nefht.
I sumar verður unnið við veginn upp
á Skálafellsjökul og ef vel verður að
staðið mun þar verða sannkölluð
paradís til skíða- og vélsleðaferða. I
mars verður haldið námskeið á Höfh
á vegum félagsins fyrir alla sem við
ferðaþjónustu vinna. Bæta þarf að-
stöðu á tjaldstæðinu á Höfh og einnig
þarf að merkja göngulejðir sem víða
eru.
Stjóm Ferðamálafélagsins skipa
Ámi Stefánsson formaður, Vignir
Þorbjömsson, Guðbrandur Jóhanns-
son, Garðar Óskarsson og Viðar
Þorbjömsson.
Samþykkt var að hver hreppur í
sýslunni gæti sent einn fulltrúa á
stjómarfundi. Nýskipuð stjóm telur
fulla þörf á að ráða starfskraft til að
sinna verkefhum fyrir félagið. Þá vom
fundarmenn sammála um að hvetja
þyrfti til aukinnar þjónustu við ferða-
fólk og þannig gera þeim er hingað
koma dvölina sem ánægjulegasta.
lltvegum bifreiöar frá USA. Aðstoðum þá sem vilja
velja sína bifreið sjálfir í USA. Fyrirhuguðferð í mars.
INNFLUTNINGSÞJÓNUSTAN,
símar 985-20066 og 92-6644.
sími 28705
Aftur er komið að okkar
vinsælatiiboðisemallir
þekkja, 24 tímar á aðeins
1600 krónur.
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI