Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1987.
Dægradvöl
Þessar tvær mýs eru á stærð við fingur manns og þykja þær óvenjulegar á litinn.
Guðbrandur Jónsson rekur gæludýraverslun í Reykjavik og hefur sjálfur mestan áhuga á
fiskum.
ingar og fullorðnir sýna tiltölu-
lega jafnan áhuga. Algengt er að
krakkarnir byrja á því að kaupa
sér til dæmis fiska og fiskabúr en
svo er það pabbinn sem hellir sér
út í þetta eftir að krakkarnir
missa áhugann.
Páfagaukarnir eru ásamt fisk-
unum einna vinsælastir.
Þó svo að undarlegt sé, eru fisk-
arnir og dýrin svotil öll ræktuð
hérlendis því það er bannað að
flytja inn dýr til landsins. Reglur
um innflutning á gæludýrum eru,
eftir því sem Guðbrandur best
veit til, hvergi eins strangar og
hér á landi. Það er liðin tíð að
sjá skjaldbökur, salamöndrur og
froska til sölu í gæludýraverslun-
um. Undanþágur eru þó stundum
gefnar, sérstaklega fyrir skraut-
fiskum og stöku fugli sem verða
að fara í sóttkví þegar til landsins
kemur. Ástæðan fyrir þessum
innflutningshöftum er hræðsla
við að smit geti borist í menn og
dýr.
Jólin ekki síður hátíð dý-
ranna
Ótrúlegustu hluti er hægt að fá
fyrir gæludýrin og eru jólin ekki
síður orðin hátið dýranna sagði
Guðbrandur því allir muna eftir
fjórfættum eða fjöðruðum fjöl-
skyldumeðlimum.
Texti:
Dröfn
Hreiðarsdóttir
DV-myndir:
Gunnar V.
Andrésson
HJÖRULIÐIR, DRAGLIÐIR
OG TVÖFALDIR LIÐIR KOMNIR!
oe»
I VARA
SENDUM I
PÓSTKRÖFU.
VARAHLUTAVERS LUNIN
HLUTIR