Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Side 34
34
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
Andlát
Rigmor C. Magnússon lést 17. febr-
úar sl. Hún fæddist í Danmörku 17.
október árið 1909. Foreldrar hennar
voru Christian Elof Koch og Emmy
Johanne. Rigmor giftist Óskari
Magnússyni en hann lést árið 1982.
Bálför Rigmors verður gerð frá Foss-
vogskapellu í dag kl. 13.30.
Þuríður Helgadóttir lést 16. febrú-
ar sl. Hún fæddist á Stóru-Reykjum
í Hraungerðishreppi 26. mars 1905.
Foreldrar hennar voru Ólafía Krist-
rún Magnúsdóttir og Helgi Jónsson.
Þuríður giftist Sigurði Jónssyni en
hann lést árið 1959. Þeim hjónum
varð fjögurra barna auðið. Útför
Þuríðar verður gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík í dag kl. 13.30.
Hafsteinn Jónsson bílamálara-
meistari, Laugateigi 36, lést að
morgni 23. febrúar í Landspítalanum.
Útför Birgis Guðjónssonar versl-
unarmanns, Lindarbraut 4, Seltjarn-
arnesi, fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 26. febrúar kl. 15.
Kristrún Hjartardóttir frá Grjót-
eyri, sem andaðist þann 19. þ.m. á
Dvalarheimilinu Höfða , Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju
föstudaginn 27. febrúar kl. 14.15.
Magnús Eiríksson, Álftamýri 14,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 26. febrúar kl.
15.
Oddur Oddsson, Hrafnistu, Reykja-
vík, áður Vesturgötu 37, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni
fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13130.
Ólína Þorvaldsdóttir verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 26. febrúar kl. 13.30.
Ólöf Ingimundardóttir, Lindarflöt
43, verður kvödd frá Dómkirkjunni
föstudaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Sigurjón Svanberg Hallgrímsson,
Hraunbæ 86, sem lést af slysförum
þann 18. febrúar, verður jarðsunginn
frá Áskirkju fimmtudaginn 26. febrú-
ar kl. 13.30.
Sigurlaugur Jón Sævar Þórðar-
son, Hringbraut 97, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju 26.
febrúar kl. 10.30.
Jarðarför Þorvaldar Sigurgeirs-
sonar frá ísafirði verður gerð frá
Fossvogskapellu föstudaginn 27.
febrúar kl. 10.30. Jarðað verður í
Gufuneskirkjugarði.
Ýmislegt
Bubbi Mortens og MX 21 á
Akureyri
Fimmtudaginn 26. febrúar munu Bubbi
Mortens og Mx21 halda dansleik í Sjallan-
um á Akureyri. Föstudaginn 27. febrúar
verða þeir með tónleika í Iþróttahöllinni
á Akureyri en á laugardaginn 28. febrúar
kl. 20.30-21.30 kemur Bubbi einn fram í
Sjallanum með kassagítarinn sér við hönd
og seinna sama kvöld verður hann ásamt
Mx21 með dansleik í Víkurröst, Dalvík.
Kvöldvaka Ferðafélagsins
1 kvöld, 25. febrúar, efnir Ferðafélag Is-
lands til kvöldvöku í Risinu, Hverfisgötu
105, kl. 20.30. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
sér um efni þessarar kvöldvöku. Páll Páls-
son frá Aðalbóli, Hrafnkelsdal. sýnir
myndir og segir frá eyðibyggðinni á Jökul-
dalsheiði. Um miðja 19. öld fór fólk að
setjast að á Jökuldalsheiði en síðasta heið-
arbýlið fór í eyði um 1946. Áhugavert efni.
sérstæð byggðasaga. Fræðist um landið
ykkar og notið ykkur leiðsögn Ferðafé-
lagsins. I lok dagskrár verður myndaget-
raun og verðlaun veitt fyrir réttar lausnir.
Aðgangur kr. 100.
Hallgrímskirkja - starf aldr-
aðra
fellur niður á morgun, fimmtudag. En þess
í stað verður flutt leikritið Kaj Munk fyr-
ir aldraða og öryrkja. Nánari upplýsingar
gefur safnaðarsystir í síma 39965.
Tónleikar í Duushúsi
Fimmtudaginn 26. febrúar heldur hljóm-
sveitin Súld tónleika í veitingahúsinu
Duushúsi. Efnisskrá hljómsveitarinnar er
fjölbreytt og að mestu frumsamin. Meðlim-
ir sveitarinnar eru: Szymon Kuran: fiðla.
Trvggvi Hubner: gítar. Stefán Ingólfsson:
bassi. Steingrímur Guðmundsson: tromm-
ur. Tónleikarnir hefjast kl. 10. Aðgangs-
evrir er kr. 300.
Forsætisráðherra í opinbera
heimsókn til Danmerkur
Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra og kona hans. frú Edda Guðmunds-
dóttir. hafa þegið boð um að koma í
opinbera heimsókn til Danmerkur 4.-5.
mars nk. Forsætisráðherrahjónin munu
koma til Danmerkur á heimleið frá Sovét-
ríkjunum.
Fyrirlestur um óskir og þarfir
i öldrunarþjónustu.
Föstudaginn 27. febrúar nk. mun prófessor
Hall frá Southampton í Englandi flytja
fyrirlestur í boði fræðslunefndar Læknafé-
lags Islands og Öldrunarfræðafélags
ísíands. Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsakynnum Krabbameinsfélags íslands
að Skógarhlíð 8 og hefst kl. 17. Prófessor
Hall mun Jjalla um óskir og þarfir í öldr-
unarþjónustu (Wants and needs in ger-
iatric Service) og verður hann fluttur á
ensku. Eins og flestum mun kunnugt hafa
Bretar verið fyrstir til þess að viðurkenna
öldrunarlækningar innan læknisfræðinn-
ar og mikill hluti þeirrar þekkingar sem
aflað hefur verið innan fræðigreinarinnar
kemur þaðan. Prófessor Hall er einn af
fyrstu prófessorum í öldrunarlækningum
(Geriatrics) á Bretlandseyjum og er þann-
ig meðal frumkvöðla greinarinnar. Hann
hefur ritað mikið um það efni sem verður
til umíjöllunar og ennfremur hefur hann
stundað talsvert lyljarannsóknir. einkum
meðal einstaklinga með einkenni um
heilabilun. Hann er eftirsóttur fyrirlesari
á fjölþjóðaþingum og er því augljóslega
mikill fengur að komu hans hingað. Fund-
urinn er opinn öllum sem áhuga hafa.
Húsmæðrafélag Reykjavikur
Sýnikennsla verður á austurlenskum rétt-
um í félagsheimilinu, Baldursgötu 9,
miðvikudag 25. febrúar kl. 20.30. Allir vel-
komnir. Mætið vel.
„Njósnarinn“ Chris Panos til
Islands
Trúarprédikarinn og bókarhöfundurinn
Chris Panos er væntanlegur til landsins í
dag frá Bandaríkjunum í boði Vegarins
kristins samfélags. Nýlega var gefin út hér
á landi bók hans Njósnarinn. Bókin segir
frá lífi Panosar, æskuárum hans, ferðalög-
um og lífsreynslu. Chris Panos er víða um
heim þekktur fyrir sinn kröftuga vitnis-
burð og boðskap þar sem á samkomum
hans hefur íjöldi fólks upplifað kraft og
kærleika fagnaðarerindisins. Chris Panos
hefur ferðast um allan heiminn, einkum
þó til þeirra landa sem lokuðust eru fyrir
boðskap fagnaðarerindisins. Milljónir í
Bandaríkjunum sækja samkomur hans og
fylgjast með vikulegum sjónvarpsþáttum
hans og hlusta reglulega á útvarpsþætti
hans. Vegurinn - kristið samfélag, stendur
að heimsókn Chris Panosar og verða sam-
komur með honum í Reykjavík, Keflavík
og á Akureyri. Fyrstu samkomurnar verða
í húsnæði Vegarins, Þarabakka 3, í kvöld
kl. 20.30 og á fimmtudagskvöld í Fríkirkj-
unni kl. 20.30.
í gærkvöldi
Pétur Guðjónsson stjómunarráðgjafi:
„Segir svo mikið um þjóðarsálinau
Það var nú heppni að ég var heima
við í gærkvöldi þar sem mikið er að
gera í tengslum við landsfundinn
sem haldinn verður á laugardaginn.
Því notaði ég tækifærið til þess að
horfa á sjónvarpið og hlusta á út-
varpið. Það langskemmtilegasta í
sjónvarpinu í gærkvöldi var sigur
Islands yfir heimsmeisturum Júgó-
slava, það var gaman að horfa á
samspilið sem og einstaklingsfram-
takið í leiknum sem var mjög góður.
Það er ekki bara gaman að horfa á
handboltann sem slíkan heldur segir
þetta svo mikið um þjóðarsálina sem
býr innra með okkur Islendingum.
Maður tók eftir því í tapleiknum á
mánudagskvöldið og einnig í sigur-
leiknum í gærkvöldi. Að honum
loknum horfði ég á Kastljós, sem eru
mjög góðir þættir, en var heldur yfir-
borðslegur í gærkvöldi. Það eru til
svo mörg rannsóknarblaðaefni sem
hægt væri að moða úr. Þar ættu
þeir að taka til fyrirmyndar kana-
díska og ástralska sjónvarpið. Eíhið
Pétur Guðjónsson
þar er mjög gott einnig stefha þess-
ara stöðva í fréttamennsku.
Þættinum um franska rithöfund-
inn Simone de Beauvoir, hinn kunna
listamann, var að ýmsu ábótavant
hjá kvennalistakonunum. Umfjöll-
unin hefði mátt vera gagnrýnni og
fleiri sjónarhorn hefðu mátt kóma
þar fram. Mér fannst eins og þetta
hefði verið tekið upp úr mennta-
skólabók.
Fréttimar hjá ríkisútvarpinu eru
bæði málefnalegar og víðfeðmar en
ansi misjafhar hjá sjónvarpsstöðv-
unum tveim. Þeir eru alltaf að leggja
fólkinu orð í munn sem verður til
þess að svör þess verða ýmist já eða
nei. Ég er alveg handviss um að ís-
lendingar eru málefnalegri en svo.
Að síðustu langar mig að leggja
áherslu á að þeir opni fjölmiðlana
meira fyrir almenningi. Að hann fái
að koma inn einn til tvo tíma á dag,
enda er mikil þekking sem býr i þjóð-
félaginu. Þeir ættu að hafa þessar
skyldur gagnvart almenningi. Þátt-
urinn Um daginn og veginn er
einmitt spor í rétta átt.
Ólöf Pálsdóttir heiðursfélagi
konunglega breska
myndhöggvarafélagsins
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari hefur verið
kjörin heiðursfélagi, Hon. FBRS, í „The
Royal Society of British Sculptors". Félag
þetta var stofnað um síðustu aldamót og
er núverandi verndari þess Elísabet II.
drottning. Auk Ólafar hafa 4 menn verið
kjörnir heiðursfélagar I félaginu, þar á
meðal, forsetar „National Sculptore Soci-
ety“ í New York og „Royal Scottish
Academy", í Edinburgh. Ólöf stundaði
nám í Konunglega listaháskólanum í
Kaupmannahöfn hjá próf. Utzon-Frank: í
Karió og Luxor í Egyptalandi, hjá próf.
Wissa Wassef: og í Róm, hjá próf. Fatz-
zini. Hún hlaut gullverðlaun Konunglega
listaháskólans í Khöfn, 1955 fyrir verkið
„Sonur“, sem er í eigu Listasafns Islands
og var sæmd íslensku fálkaorðunni 1970.
Ólöf hefur hlotið opinbera listastyrki, hér-
lendis og erlendis, m.a. frá Danmörku og
Ítalíu, Finnlandi og N'oregi, en þar hlaut
hún Edward Munch listastyrkinn í Ekely.
Hún hefur lengi búið erlendis og unnið
þar mestmegnis að list sinni, sýnt og selt
verk sín þar víða og hlotið lof listgagnrýn-
enda í fjölmiðlum eins og stundum hefur
komið fram í íslenskum fréttum. I Eng-
landi sýndi Ólöf fyrst 1971 er Cambridge-
háskóli bauð henni að sýna verk sín í
Kettles Yard Museum, í Cambridge. Einn-
ig hafði hún sýningu í Islington ráðhúsi í
London 1977 og einkasýningu í Mayfair,
London 1982. Þá má geta þess að 1983 var
höggmynd eftir Ólöfu Pálsdóttur seld á
hinu heimsfræga listauppboði Christie’s í
listaflokknum: „Impressionist and Modern
Paintings and Sculpture". En þar voru
m.a. seld verk eftir Francis Bacon, Ben
Nicholson, Rodin, Schwitters, Chirico og
Picasso.
Fundir
Samtök gegn astma
og ofnæmi
halda félagsfund í Domus Medica við Eg-
ilsgötu fimmtudaginn 26. febrúar kl. 20.30.
Helgi Kristbjarnarson læknir flytur fyrir-
lestur um öndunarerfiðleika í svefni og
svarar fyrirspurnum. Kaffiveitingar. Allir
velkomriir.
Fræðslufundur
Fuglaverndunarfélags íslands
verður haldinn í Norræna húsinu fimmtu-
daginn 26. febrúar 1987 kl. 20.30. Efni
fundarins: Fuglabjörg, ílytjandi: Arnþór
Garðarsson prófessor. Öllum heimill að-
gangur.
Aðalfundur Jöklarannsóknar-
félags íslands
verður haldinn í Risinu, Hverfisgötu 105,
miðvikudaginn 4. mars 1987 kl. 20.30. Dag-
skrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Kaffidrykkja, 3. Fyrsta vélsleðaferðin.
Kvikmynd Árna Stefánssonar. Einar B.
Pálsson talar með myndinni.
Bækur
UM
Bæklingur um stam
skólabarna
Hjá Námsgagnastofnun er kominn út nýr
bæklingur sem ber heitið um stam skóla-
barna. Bæklingurinn er þýddur úr sænsku
og eru dæmi tekin úr sænskum skólum en
þau gætu eins hafa gerst hér. I bæklingn-
um er m.a. reynt að svara eftirfarandi
spurningum: Hvað er stam?, hver er orsök
stams?, hve algengt er stam?, hvernig má
meðhöndla stam? Það eru talkennararnir
Guðfinna Guðmundsdóttir, Helga Ingi-
bergsdóttir, Hildur Þórisdóttir og Pétur
Pétursson sem hafa annast þýðingu en
höfundar eru Karin Svanholm talkennari
og Lennart Larsson talmeinafræðingur.
Lennart Larsson hefur sérhæft sig í með-
ferð stams en hann stamaði mikið sjálfur.
Bæklingurinn er 27 bls. I litlu broti.
Viðurkenning í samkeppni
Námsgagnastofnunar
um bækur á léttu máli.
Út er komin hjá Námsgagnastofnun bókin
Bjarni og Svenni eftir Kristján Guð-
mundsson með teikningum eftir Búa
Kristjánsson. Sagan hlaut viðurkenningu
í samkeppni Námsgagnastofnunar um
bækur á léttu máli og er frágangur bókar-
innar sérstaklega miðaður við þarfir
þeirra barna sem erfitt eiga með lestur.
Lítið lesmál er á hverri síðu, letur er skýrt
og línur stuttar. Sagan fjallar um félagana
Bjarna og Svenna og hvað þeir taka til
bragðs er reiðin knýr dyra. Bókin er 37
bls. og mikið myndskreytt. Sagan Bjarni
og Svenni er einnig gefin út á hljómbandi
sem ætlast er til að notað sé með bók-
inni. Barnið hlustar á hljómbandið um
leið og það fylgist með orðunum í bók-
inni. Þessi aðferð hefur reynst vel mörgum
hæglæsum börnum þar sem hún styrkir
bæði sjónræna og heyrnræna skynjun
þeirra. Reynt er að lesa svo skýrt að hver
málhljóð heyrist án þess þó að lesturinn
verði óeðlilegur. Það er höfundur sem les.
Samkeppni um ritun barna-
bóka
Námsgagnastofnun hefur efnt til sam-
keppni um gerð lesbóka fyrir 6-9 ára börn.
Samkeppnin mun standa næstu tvö til
þrjú ár með þeim hætti að skil handrita
verður þrisvar á ári, 1. maí, 1. september
og 1. janúar. I fyrstu verður lögð áhersla
á bækur handa 6-7 ára börnum. Allt að
þrenn verðlaun verða veitt hverju sinni,
fyrir texta og/ eða myndefni, að upphæð
kr. 30.000 hver. Auk þessa verða veittar
sérstakar viðurkenningar fyrir verk sem
þykja álitleg. Ráðgert er að dómnefnd skili
áliti eigi síðar en mánuði eftir skiladag
hverju sinni. Samkeppnin hefur verið aug-
lýst í dagblöðum en Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir, Námsgagnastofnun, og Guðmundur
B. Kristmundsson, Æfinga- og tilrauna-
skóla K.H.Í., munu veita væntanlegum
þátttakendum nauðsynlegar upplýsingar,
m.a. um lengd, þyngd, hlut myndefnis og
efnissvið. 1.. skiladagur er 1. maí 1987.
Árshátíðir
Bakkfirðingar í Reykjavík
Hið árlega Bakkfirðingamót verður haldið
í Drangey, húsi Skagfirðingafélagsins að
Síðumúla 35, laugardaginn 28. febrúar kl.
21.
Árshátíð Átthagasamtaka
Héraðsmanna
verður haldin í Domus Medica laugardag-
inn 28. febrúar og hefst með borðhaldi kl.
20. Húsið opnað kl. 19. Á dagskrá verður
danssýning, söngur með gítarundirleik,
(Ná)grannatríóið, fegurðarsamkeppni
hreppanna. Hljómsveit Þorvaldar Jóns-
sonar leikur fyrir dansi. Einnig mun
Þorvaldur leika létt lög á meðan á borð-
haldi stendur. Heiðursgestir á árshátíð-
inni verða hjónin Svandís Skúladóttir og
Gunnar Guttormsson, Litla Bakka. Að-
göngumiðar að árshátlðinni verða seldir
I anddyri Domus Medica kl. 17-19 fimmtu-
dag og föstudag 26. og 27. febrúar. Verð
aðgöngumiða verður kr. 1.600 fyrir matar-
gesti en kr. 500 fyrir þá sem koma að loknu
borðhaldi.
Átthagafélag Ingjaldssands
heldur árshátíð sína laugardaginn 28. fe-
brúar kl. 19 að Ármúla 40.
Happdrætti
Björgunarsveitin Björg, Eyr-
arbakka
Dregið hefur verið í happdrætti björgunar-
sveitinnar Bjargar. Upp kom númer 275.
Félagsvist
Húnvetningafélagið í Reykja-
vík
Félagsvist verður spiluð laugardaginn 28.
febrúar kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni
17. Allir velkomnir.