Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1987, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987.
37 -
Sviðsljós
Nafnasafn
á nakjnn búkiim
Stöð andfætlinga okkar í Melbourne í Ástralíu bauð 200 Ástralíudali þeim
er safnað gæti 125 eiginhandaráritunum á beran skrokkinn innan klukku-
stundar. Joshepine Comita varð óumdeilanlegur sigurvegari því hún lauk
verkinu á hálftíma með því að stöðva skólabörn, skrifstofublækur og jafnvel
lögreglumenn.
Útvarpsstöðvar keppa um hlustendur á fleiri vígstöðvum en á íslandi og
nota ýmsar aðferðir við að fanga eyru almennings. - símamynd Reuter
Byltmgarbömin
mætast
Leikkonan Jane Fonda hefur verið þekkt fyrir ýmislegt annað en afskipta-
leysi af stjórnmálum og á stundum þótt þar uppreisnargjörn í meira lagi.
Sama gildir um pólska Samstöðuleiðtogann, Lech Walesa, og þótti því vel
við hæfi að byltingarbörnin hittust. Það varð svo að veruleika í Gdansk í
Póllandi síðastliðinn mánudag.
Vel fór á með þeim Lech Walesa og Jane Fonda í Póllandi.
- Símamynd Reuter
Sorgbitið augnaráðið er ekki að ástæðulausu því móðirin vill ekkert með
apakrílið hafa. - Simamynd Reuter
Undan sápimi svíður áki
11
Það er lítið gaman að vera tíu mánaða apakríli og þurfa að sætta sig við það
að móðirin hafni algerlega foreldrahlutverkinu. Þetta þarf samt Gordy Íitli
að sætta sig við en það er þó huggun harmi gegn að mannfólkið sinnir hon-
um af því meiri alúð. Hann er Lowland górilla og fvrstur þeirrar tegundar
til þess að fæðast í dýragarði. Staðurinn er San Diego Zoo og á myndinni
stendur yfir höfuðþvottur - að sjálfsögðu er aðeins notað sjampó sem ekki
svíður í augun undan.
John Landis mætir til réttarhaldanna ásamt eiginkonu sinni - Debbte.
- Simamynd Reuter
Takan kostaði
þrjú maimslíf
Leikstjórinn John Landis var ákærður um manndráp eftir að þyrla hrap-
aði við tökurnar á kvikmyndinni Twilight Zone. Meðal annarra innanborðs
voru þrír leikendur myndarinnar - leikarinn Vic Morrow og tvö börn - og
létu þau lífið samstundis. Atriðið átti að gerast í Víetnamstríðinu en var
tekið upp i útjaðri Los Angeles árið 1982 og segist Landis hafa haldið að
tökurnar væru hættulausar með öllu.
Ólyginn
sagði...
Haraldur
krónprins
Noregs þykir blíðlyndur með
afbrigðum og fyrrum efuðust
landar hans um að hann hefði
næ'gilegt bein I nefinu til þess
að stjórna ríkinu eftir daga Olafs
föður hans. En það er seigt i
Haraldi þótt hægt fari. Hann
sannaði það með því að gefast
ekki upp fyrir þrýstingi aðalsins
í hjónabandsmálum heldur
standa fast við að ganga að eiga
sína borgaralegu Sonju sem nú
er tilvonandi drottning Noregs.
Reyndar segja menn núna að
Sonja sé einmitt lykillinn að
auknu sjálfstrausti og staðfestu
krónprinsins þannig að karl
virðist hafa vitað hvað hann var , (
að gera í eiginkonuvalinu þótt
andstaðan væri talsverð í upp-
hafi.
Britt Ekland
sagðist ætla að verða meira nafn
en Greta Garbo þegar hún yfir-
gaf Sviþjóð fyrir allmörgum
árum. Hún varð býsna þekkt á
stjörnuhimninum en ekki sist
fyrir eiginmennina sem bæði
urðu margir og frægir að auki.
Sá nýjasti er sautján árum yngri,
heitir Slim Jim og er rokkpopp-
ari að atvinnu. Um Mjóa-Jóa
segir Britt að hann standi með
hælana þar sem aðrir elskhugar
hafi haft tærnar og hefði hún
kynnst honum tuttugu árum fyrr
hefði ekki þurft svo mörg hjóna-
bönd sem raun ber vitni. Þetta
var að sögn Ijóskunnar hrein-
ræktað kynslóðavandamál, sá
guðdómlegi reyndist ekki fædd-
ur þegar Britt sjálf var milli tektar
og tvítugs.
Priscilla
Presley
elskaði Presley aldrei að dómi
harmi lostinna aðdáenda rokk-
arans sem eru hreint óðir af
vonsku yfir því að hún skuli
voga sér að ganga með barn
annars manns - þrátt fyrir að sá
ágæti Presley hafi dvalið undir
grænni torfu allgóða stund.
Aðdáendaklúbbur karlsins á
Manhattan efndi til mikilla mót-
mælaaðgerð vegna meðgöngu
rokkekkjunnar og ekki gnísta
menn þar siður tönnum yfir að
einkadóttir Presleys - Lisa Marie
-skuli hafa opinberlega lýstyfir
ánægju með væntanlegt syst-
kini. Þar vestra bíða menn
spenntir eftir þvi að skruðning-
arnir heyrist þegar Presley karl-
inn fer að snúa sér við í gröfinni
vegna sviksemi eftirlifandi vina
og vandamanna.
J